Bæjarins besta


Bæjarins besta - 23.07.2003, Blaðsíða 1

Bæjarins besta - 23.07.2003, Blaðsíða 1
Hættur að svekkja mig á gangi mála – segir „stýrimaðurinn í Dubai“, Flosi Arnórsson frá Ísafirði. Sjá viðtal í miðopnu Miðvikudagur 23. júlí 2003 • 29. tbl. • 20. árg. ÓHÁÐ Á V E S T F J Ö R Ð U MFRÉTTABLAÐ Stofnað 14. nóvember 1984 • Sími 456 4560 • Veffang: www.bb.is • Netfang: bb@bb.is • Verð kr. 250 m/vsk Þorskafli dregst minna saman á Vestfjörðum en á landsvísu Tæp 25 þúsund tonn komin á land Frá upphafi yfirstandandi fiskveiðiárs í september til loka júní var landað 24.909 tonnum af þorski í höfnum á Vestfjörðum en á sama tímabili í fyrra hafði verið landað 26.669 tonnum á svæð- inu. Á landsvísu minnkar afl- inn úr 194.096 á sama tíma- bili í fyrra í 173.770 tonn nú. Á Vestfjörðum dregst því þorskaflinn saman um 6,7% en 10,4% á landsvísu. Í heild- ina hafa borist á land á Vest- fjörðum frá upphafi fiskveiði- ársins til loka júní 49.914 tonn en á sama tíma fyrir ári hafði verið landað 60.084 tonnum. Vegur þar þyngst að engin loðna barst á land í Bolungar- vík á vetrarvertíð. Í lok júní var loðnuaflinn í Bolungar- vík frá upphafi fiskveiðiárs 866 tonn en var 13.134 tonn á sama tíma í fyrra. Ísafjörður Þrír teknir fyrir ölvun við akstur Lögreglan á Ísafirði stöðvaði þrjá ökumenn grunaða um ölvun við akst- ur aðfaranótt sunnudags. Einn ökumannanna var stöðvaður innan bæjar á Ísafirði, annar var á ferð í jarðgöngunum milli Ísa- fjarðar og Suðureyrar og sá þriðji við Ögur í Ísa- fjarðardjúpi þar sem hald- inn var dansleikur í félags- heimilinu. Bolungarvík Minni eignir Hrein eign Lífeyrissjóðs Bolungarvíkur minnkaði á síðasta ári um 87 milljónir eða 4,2% Hrein eign Líf- eyrissjóðs Vestfirðinga minnkaði um 1,9% á sama tímabili. Í heildina jókst hrein eign íslenskra lífeyr- issjóða um rúma 34 millj- arða eða um 5,3%. Af 51 lífeyrissjóði í samantekt Fjármálaeftirlitsins rýrnaði hrein eign 16 þeirra. 29.PM5 18.4.2017, 11:271

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.