Bæjarins besta


Bæjarins besta - 23.07.2003, Page 12

Bæjarins besta - 23.07.2003, Page 12
1 2 MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 2003 Lestu nýjustu fréttir daglega á www.bb.is Friðun Vestfjarða Stakkur hefur ritað vikulega pistla í Bæjarins besta í mörg ár. Skoðanir hans á mönnum og málefnum hafa oft verið umdeildar og vakið umræður. Þær þurfa alls ekki að fara saman við skoðanir útgefenda blaðsins. Þrátt fyrir það bera ábyrgðarmenn blaðsins ábyrgð á skrifum Stakks á meðan hann notar dulnefni sitt. SPURNINGIN Netspurningin er birt viku- lega á bb.is og þar geta lesendur látið skoðun sína í ljós. Aðeins er tekið við einu svari frá hverri tölvu. Niðurstöðurnar eru síðan birtar hér. Spurt var: Ætlar þú í haustferð til útlanda? Alls svöruðu 191. Já sögðu 59 eða 31% Nei sögðu 102 eða 53% Óvíst sögðu 30 eða 16% bb.is Þar sem púlsinn slær... STAKKUR SKRIFAR Þakkir Hjartans þakkir til allra sem glöddu mig á 85 ára afmælisdeginum mínum með kveðj- um, gjöfum og heimsóknum. Sérstakar þakkir til barna minna, tengdabarna og barnabarna. Bestu kveðjur. Sölvey Jósefsdóttir (Eyja). Góð aðsókn hefur verið að Byggðasafni Vestfjarða í Neðstakaupstað á Ísafirði að sögn Tinnu Hermannsdóttur starfsmanns safnsins. „Hér hefur verið mikið rennirí og saltfiskveislurnar hafa hlotið góðar undirtektir. Þetta er ósköp svipuð umferð og síðasta sumar, heldur meiri ef eitthvað er“, segir Tinna. Veitingasala hefur verið í Tjöruhúsinu frá 20. júní og verður hún opin til 20. ágúst. Þar er boðið upp á súpu og brauð í hádeginu en fram eftir degi geta gestir safnsins fengið sér kaffi, kakó, vöfflur og fleira góðgæti. Jafnt Íslendingar sem útlendingar heimsækja safnið en Tinna telur stærri hluta þeirra vera Frónbúa. Byggðasafn Vestfjarða í Neðstakaupstað opnar upp úr 10 á morgnana og lokar um 17 en Tinna segir fólk einnig skoða sig mikið um í umhverfi safnsins utan reglulegs opn- unartíma. „Fólk er mikið að skoða sig um hérna og kíkja í fjöruna. Ferðafólkið er ósköp hrifið af saltfisknum sem við dreifum út hérna og spyr mikið út í hann. Þá fær það smá hluta af sögu staðarins“, sagði Tinna. – kristinn@bb.is Byggðasafnið í Neðstakaupstað á Ísafirði Góð aðsókn í sumar Móttaka ferðamanna í Neðstakaupstað. Mikið um að vera á Siglingadögum Fjórir hraðbátar sigldu í hóp um Pollinn á Ísafirði á laugardag áður en tveir þeirra héldu saman í Grunnavík í Jökulfjörðum. Var uppákoman liður í hátíðinni Siglingadagar sem nú stendur yfir á Ísa- firði. Vonast hafði verið eftir fleiri bátum, en vegna anna skipstjóra og bilana var hópurinn minni en til stóð. „Þetta var samt frá- bær ferð. Það var farið í Grunnavík og gengið að Staðarkirkju undir leið- sögn Friðriks Jóhannsson- ar staðarhaldara. Svo grilluðum við úti áður en haldið var á ball í Ögri“, segir Úlfar Ágústsson, einn ferðalanganna og starfs- maður Siglingadaga. Köfunarkynning sem vera átti í Sundhöll Ísa- fjarðar á föstudag féll niður. „Menn höfðu sýnt þessu mikinn áhuga og við höfðum áhyggjur yfir því að koma ekki öllum fyrir. En þegar á reyndi mættu menn ekki og því féll þetta niður“, segir Úlfar. Meðal annarra viðburða á Sigl- ingadögum um liðna helgi má nefna kajaknámskeið í Reykjanesi undir stjórn Halldórs Sveinbjörnssonar og tveggja daga kajakferð sem Stefán Dan Óskarsson stóð fyrir. „Það vakti at- hygli að konur voru í meirihluta í þeirri ferð. Hópurinn fór inn að Fola- fæti og gisti þar, en endaði svo á bátaballi í Ögri“, seg- ir Úlfar Ágústsson. Sigl- ingadögum verður fram haldið næstu daga og fram yfir næstu helgi. Á laugar- dag verður keppt í kajak- róðri og fimmtarþraut. „Þó nokkrar skráningar eru komnar, en það er mjög mikilvægt að áhuga- samir skrái sig sem allra fyrst. Það auðveldar allan undirbúning“, segir Úlfar Ágústsson, starfsmaður Siglingadaga. –halfdan@bb.is Fjórir hraðbátar sigldu í hóp um Pollinn. Myndir: Þorsteinn J. Tómasson. Frá setningu Siglingadaga á Silfurtorgi á föstudag. Það hefur vakið sérstaka athygli þjóðarinnar hve mikið er um að vera í menn- ingarlífi Vestfirðinga það sem af er ári. Hæst ber að sjálfsögðu Söngvaseið, sem hlaut mikið lof og var sýndur nokkrum sinnum í Þjóðleikhúsinu við góðar undirtektir. Safnhúsið á Eyrartúni var opnað á þjóðhátíðardaginn og var sér- stakt gleðiefni. Sæluhelgi á Suðureyri er að baki og grænlenskir dagar á Flat- eyri. Hátíðin Bíldudals grænar... þótti heppnast vel. Siglingadagar stóðu á Ísa- firði síðustu helgi, Ögurballið heppnaðist vel, óvenju margir þáðu rabbarbara- grautinn, og loks bíður unglingalandsmót UMFÍ um verslunarmannahelgina. Þá verður mikið um að vera á Ísafirði. Mót og hátíðir sumarsins sýna þann kraft sem býr í Vestfirðingum og hvers þeir eru megnugir þegar saman er staðið og menn eru reiðubúnir að leggja sig fram og leggja mikið á sig. Samt fækkar Vestfirðingum. Hvernig á að snúa þróun byggðarinnar við og fjölga íbúum á ný? Svarið eða svörin öllu heldur eru ekki auðsæ. Af gamansemi má rifja upp í því sambandi, að refurinn á Hornströndum var friðaður fyrir nokkru og er nú að taka yfir dýr- heima. Varp bjargfugla er með minnsta móti þetta árið. Sumarhúsaeigendur á Hornströndum kvarta undan því að mófuglinn láti í minni pokann og honum fækki ár frá ári, því refurinn éti eggin. Bændur, sem enn búa í Ísafjarðardjúpi kvarta undan ágangi refs og mikilli fjölgun hans. Sama sagan er reyndar af öllu landinu. Friðun refs kynni því að vera athyglisvert fordæmi. Skyldi duga að friða Vestfirðinginn til þess að hann fjölgaði sér? Hann á þó sameiginlegt með refnum að leita um allt land og fjölga sér annars staðar. Þessi þróun er kannski hafin með stækkun Hornstrandafriðlands og væntanlegum nýjum þjóðgarði í fyrrum Rauðasandshreppi, nú Vesturbyggð. Látrabjarg og Rauðisandur verða þá í nýjum þjóðgarði. Hornstrandafriðlandið mun ná í mitt Kaldalón og nýtt friðland vegna gróðurs verður á Austurströndum. Í friðlandinu býr enginn Vestfirðingur, refurinn situr að því í skjóli friðunar sinnar. Spurningin verður því hvort friða eigi Rauðsendinga innan þjóðgarðsins nýja, sem að vísu verð- ur ekki stofnsettur fyrr en landeigendur hafa veitt samþykki sitt. Fólk er víst sjaldan friðað og mun það ekki hafa verið gert á Íslandi. En um er að ræða spendýr sem líkt og refurinn þarf sitt rými, land og aðstæður til þess að þrífast og dafna. Vestfirðingar hafa verið til frá upphafi Íslandsbyggðar og víst er að flestum landsmönnum finnst þeir skera sig frá meirihlutanum vegna dugnaðar og þrautseigju. Þeir láta ekkert tækifæri ónotað til þess að segja sína skoðun umbúðalaust, bæði á mönnum og málefnum. Forseti Ís- lands er Vestfirðingur, líkt og Sveinn Björnsson fyrsti forseti lýðveldisins. Héðan hafa komið margir af drýgstu stjórnmála- og athafnamönnum þjóðar- innar um aldir og hörðustu embættismennirnir allt fram á síðustu öld. Hvergi voru fleiri brenndir fyrir galdara. Það er því ástæða til friðunar stofnsins áður en hann blandast um of. Ekki sakar ef stofninn fjölgaði sér í kjölfarið. 29.PM5 18.4.2017, 11:2712

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.