Bæjarins besta


Bæjarins besta - 23.07.2003, Qupperneq 15

Bæjarins besta - 23.07.2003, Qupperneq 15
MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 2003 15Lestu nýjustu fréttir daglega á www.bb.is veðrið Horfur á fimmtudag: Austlæg átt, 5-8 m/s norð- anlands, en hægari syðra. Rigning víða um land, þó einkum sunnanlands og austan. Hiti yfirleitt á bilinu 10 til 15 stig.. Horfur á föstudag: Breytileg átt, víðast fremur hæg. Dálítil rigning eða skúrir víða um land, þó síst suðvestantil. Hiti áfram 10 til 15 stig. Horfur á laugardag: Breytileg átt, víðast fremur hæg. Dálítil rigning eða skúrir víða um land, þó síst suðvestantil. Hiti áfram 10 til 15 stig. Horfur á sunnudag: Breytileg átt, víðast fremur hæg. Dálítil rigning eða skúrir víða um land, þó síst suðvestantil. Hiti áfram 10 til 15 stig. Horfur á mánudag: Breytileg átt og léttir heldur til í flestum lands- hlutum. Arnar G. Hinriksson hdl. Silfurtorgi 1 • Ísafirði • Sími: 456 4144 • Fax: 456 4243 Fasteignaviðskipti Hef til sölu fasteignir víða á Vestfjörðum Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Laugardagur 26. júlí 14.00 Landsmótið í golfi 2003. Saman- tekt frá öðrum keppnisdegi. 15.00 Landsmótið í golfi 2003. Bein út- sending frá þriðja og næstsíðasta keppn- isdegi. 18.00 Champions World 19.50 Lottó 20.00 MAD TV 21.00 Heavenly Creatures. (Himneskar verur) Þessi stórgóða mynd er byggð á sannsögulegum atburðum og segir frá vinkonunum Juliet Hulme og Pauline Parker. Með þeim þróast einstakt vin- áttusamband þar sem bókmenntir og óbeislað ímyndunarafl leikur lausum hala. Smám saman fjarlægjast þær fjöl- skyldur sínar og sökkva sífellt dýpra inn í sameiginlegan hugarheim sinn. Að lok- um reynir móðir Pauline að stía þeim í sundur en það reynist hafa hörmulegar afleiðingar. Aðalhlutverk: Melanie Lynskey, Kate Winslet. 22.40 Jirov/Toney/Tarver/Griffin. Útsending frá hnefaleikakeppni í Conn- ecticut í Bandaríkjunum. Á meðal þeirra sem mættust voru Vassiliy Jirov og James Toney en í húfi var heimsmeistaratitill IBF-sambandsins í milliþungavigt. Á sama stað mættust einnig Antonio Tarver og Montell Griffin og börðust um heims- meistaratitil IBF-sambandsins í létt- þungavigt. Áður á dagskrá 31. maí 2003. 00.40 Portrait of Sunrise. Erótísk kvik- mynd. 02.05 Dagskrárlok og skjáleikur Sunnudagur 27. júlí 15.00 Landsmótið í golfi 2003. Bein útsending frá fjórða og síðasta keppnis- degi. 19.00 US PGA Tour 2003 20.00 European PGA Tour 2003 21.00 Daylight Robbery (4:8) 21.50 Champions World. Bein útsend- ing frá leik Manchester United og Club America. 00.00 English Premier League 02/03 00.55 Champions World. Bein útsend- ing frá leik Barcelona og Juventus. 03.00 Dagskrárlok og skjáleikur Föstudagur 25. júlí 18:30 Hjartsláttur á ferð og flugi (e) 19:30 Charmed (e) 21:00 According to Jim. Heimilisfað- irinn Jim er óþroskaður smápjakkur í líki fullorðins rums. Hann er nánast óþolandi á heimili og gerir hvað hann getur til að gera líf sinna nánast óbærilegt. Og hann veit það ekki einu sinni! Bakvið óheflað yfirborðið er Jim þó mesta gæðaskinn, segja þeir, hvað finnst þér? 21:30 Drew Carey. Drew er fyrirmynd- ardrengur, vinnusamur húseigandi sem sækir barina stíft með vinum sínum Os- wald Lee Harvey, Lewis og Kate. Þeir félagarnir njóta takmarkaðrar kvenhylli og Kate kýs sér yfirleitt sambönd af verra taginu. Þetta plagar Drew töluvert og þó er sú honum verst sem honum þykir langverst en það er Mimi samstarfs- kona hans, skrautleg dúkka með munninn fyrir neðan nefið. 22:00 Gleðisveit Ingólfs (e) Í þáttunum um Hljómsveit Íslands, eða Gleðisveit Ingólfs, er fylgst með Ingólfi umboðs- manni koma meðlimum Gleðisveitar- innar í fremstu röð sveitaballahljóm- sveita og vera snöggur að því! Ingólfur fær tæpt sumar til að gera strákana fræga og í þáttunum, sem eru nokkurs konar blanda af heimildar- og skemmtiþáttum, verður fylgst með því hvaða aðferðum hann beitir. Gleðisveitinni verður fylgt eftir á ferðum sínum um landið í leit að frægð og frama og áhorfendur sjá með eigin augum hvernig óþekkt bílskúrs- band breytist í hljómsveit Íslands! Gleðisveitin er aufúsugestur á hverju heimili, plötuskáp og félagsheimili og eins og Ingólfur sjálfur orðar það: ,,Við erum að tala um hljómsveit sem er ekki bara hópur af mönnum sem búa til frábæra tónlist, heldur fjölskylda sem ÞÚ ert partur af!”. 22:30 The King of Queens (e) Arthur kveikti í húsinu sínu og situr nú uppi á Carrie dóttur sinni og Doug eiginmanni hennar. Hann er þeim óþægur ljár í þúfu, alltaf á kvennafari og að skemmta sér. En verst er að hann sefur í sjón- varpsherberginu hans Doug. Carrie er kvonfang af bestu sort og vinnur á lög- mannastofu en Doug keyrir sendibíl með aðra hönd á stýri og ávallt í stuttbuxum. 23:00 Nátthrafnar. Drew Carey - Titus – City of Angels 02:00 Dagskrárlok Laugardagur 26. júlí 15:00 Jay Leno (e) Jay Leno sýnir fram á keisarans nekt á hverju kvöldi er hann togar þjóðarleiðtoga, frægt fólk og bara hversdagslega vitleysinga sundur og saman í háði. Síðan spjallar hann í rólegheitum um stjórnmál, kvik- myndir, saumaskap og gæludýrahald við gesti sína sem eru ekki af verri endanum, margverðlaunaðar stjörnur og stuðboltar. Þættinum lýkur yfirleitt á að síkátir söngvarar koma fram. 16:30 Dateline (e) 17:30 Wildest Police videos (e) 18:15 48 Hours. Prýðilegir fréttaþættir sem lúta stjórn hins víðfræga frétta- manns Dan Rather. Tekið er á einu at- hyglisverðu máli í hverjum þætti og það krufið til mergjar, og efnt til sér- stakra rannsókna ef efni standa til. 19:30 Guinness World Record (e) 21:00 Law & Order CI (e) Eitursnjall er hann og ímyndunaraflið engu líkt. Goren, aðalstórmála-sveitarlögga svífst einskis við að koma upp um durga, dóna og durta sem plaga New York búa. Fæstir standast Goren snúning enda nýtur hann dyggrar aðstoðar Alexöndru Eames lög- reglumanns og Ron Carver saksóknara. 21:40 Bob Patterson (e) 22:00 Law & Order SVU (e) Geðþekkur og harðsnúinn hópur sérvitringa vinnur að því að finna kynferðisglæpamenn í New York. Stabler og Benson, Munch og Tutuola undir stjórn Don Cragen yfirvarð- stjóra og Alexöndru Cabot saksóknara leita allra leiða til að finna tilræðismenn. 22:50 Traders (e) Slóttugir og undirför- ulir kaupsýslumenn með vafasama fortíð sitja í bankaráði fjárfestingabanka í Kan- ada og leita allra leiða til að hámarka gróða sinn. Þeir eru fyrir löngu búnir að merkja fyrir rýtingnum á bakinu á hverjum öðrum en þeir eru líka slyngir í að standast hverjum öðrum snúning. Plott, peningar og ill augnaráð eru þeirra líf og yndi. 23:40 Ladies Man (e) 00:10 Nátthrafnar. 02:25 Dagskrárlok Sunnudagur 27. júlí 15:00 Jay Leno – tvöfaldur þáttur (e) 16:30 Brúðkaupsþátturinn Já (e) 17:15 Boston Public (e) 18:00 Law & Order (e) 18:45 Cybernet (e) 19:15 Mótor Sumarsport (e) 19:45 According to Jim – Drew Carey 21:00 48 Hours 22:00 Traders. Slóttugir og undirförulir kaupsýslumenn með vafasama fortíð sitja í bankaráði fjárfestingabanka í Kanada og leita allra leiða til að hámarka gróða sinn. Þeir eru fyrir löngu búnir að merkja fyrir rýtingnum á bakinu á hverjum öðrum en þeir eru líka slyngir í að standast hverj- um öðrum snúning. Plott, peningar og ill augnaráð eru þeirra líf og yndi. 22:50 Hjartsláttur á ferð og flugi (e) 23:40 Gleðisveit Ingólfs (e) 00:10 Nátthrafnar City of Angels 01:40 Dagskrárlok kirkja Flateyrarkirkja: Gospelguðsþjónusta sunnudaginn 27. júlí kl. 20:30. Gospelkórinn kemur í heimsókn. Unaðsdalskirkja: Guðsþjónusta á sunnu- dag kl. 14:00. fréttir Fékk golf- kúlu í augað Laust upp úr kl. 14 á mánudag var lögreglunni á Ísafirði tilkynnt um að maður sem var við slátt á golfvellinum í Tungudal á Ísafirði hafi orðið fyrir golf- kúlu. Maðurinn ók dráttar- vél með sláttuvél í eftir- dragi sem virðist að sögn lögreglu hafa þeytt golf- kúlu af all miklu afli í auga hans. Brotnuðu við það gleraugu mannsins. Mun hann hafa meiðst á auga og var sendur með sjúkra- flugi til Reykjavíkur. kristinn@bb.is bb.is – þessieinisanni! „Koma fyrir einhverjir dallar“ Á föstudag opnaði Pétur Guðmundsson myndlistamaður sýningu í Edinborgar- húsinu á Ísafirði. Pétur sýnir þar myndir sem búnar eru til með kartonspreyi, en sú aðferð mun vera ný fyrir honum. „Þarna eru fjórtán myndir sem munu hanga uppi út Siglingadagana, fram á sunnudag“, segir Pétur. Aðspurður segir hann myndirnar ekkert frekar vera tengdar siglingum. „Það koma samt fyrir einhverjir dallar, en líka sól og tungl, fuglar og fiskar.“ Á myndinni er Pétur Guðmundsson við verk sín á sýningunni. (Ljósmynd: Þorsteinn J. Tómasson). – halfdan@bb.is 29.PM5 18.4.2017, 11:2715

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.