Bæjarins besta - 23.07.2003, Page 16
ÓHÁÐ Á V E S T F J Ö R Ð U MFRÉTTABLAÐ
Stofnað 14. nóvember 1984• Sími 456 4560 •Fax 456 4564 • Netfang: bb@bb.is • Verð kr. 250 m/vsk
Póls hf. á Ísafirði og bandaríska fyrirtækið FoodCraft
Umfangsmikið sam-
starf í kjúklingaiðnaði
Póls hf. á Ísafirði hefur hafið
samstarf við bandaríska fyrir-
tækið FoodCraft um markaðs-
setningu og dreifingu á tækja-
búnaði Póls til kjúklingafram-
leiðenda í Norður-Ameríku.
Að sögn Harðar Ingólfssonar,
stjórnarformanns Póls, er mik-
ill áhugi meðal manna í banda-
rískum kjúklingaiðnaði á bún-
aði sem getur búið til skammta
ef meiri nákvæmni en hefur
tíðkast.
„Hvert prósent skiptir máli
þegar framleiðslumagnið er
mikið. Sá búnaður sem al-
mennt er notaður þykir ekki
ná viðunandi árangri og því
beinast augu manna að nýjum
aðferðum sem geta skilað betri
árangri“, segir Hörður.
„Nýlega voru lykilstjórn-
endur FoodCraft að ganga frá
útlitsteikningum á vinnslu-
línum fyrir kjúklingaslátur-
hús, sem munu byggja á tækni
Póls á sviði vigtunar, flokk-
unar og skömmtunar. Food-
Craft hefur starfað í kjúklinga-
iðnaði í Bandaríkjunum í 25
ár og framleiðir meðal annars
skurðarvélar fyrir kjúklinga-
vinnslur. Póls hefur jafn langa
sögu í framleiðslu tækjabún-
aðar fyrir fiskiðnað og hefur
einkaleyfi í mörgum löndum
á þrautreyndri aðferð við að
búa til skammta af fastri vigt.
Það er álit forsvarsmanna
FoodCraft að lausnir Póls á
þessu sviði eigi fullt erindi á
bandarískan kjúklingamark-
að“, segir Hörður.
Póls hf. mun þróa og fram-
leiða nauðsynlegan búnað,
með sérstaka áherslu á vinn-
slulínur og skömmtun með
þeirri tækni sem fyrirtækið
hefur yfir að ráða. Póls hefur
um árabil sérhæft sig í gerð
svokallaðra samvalsvéla sem
vigta og velja saman mismun-
andi þunga bita í ákveðna
pakkningarvikt.
„Samstarf fyrirtækjanna
verður á því formi að Food-
Craft sér um markaðssetningu
og veitir Póls hf. tæknilegar
upplýsingar um kjúklingaiðn-
aðinn“, segir Hörður. „Það er
mat forsvarsmanna Póls að
samstarfið við FoodCraft gefi
félaginu einstakt færi á að
komast inn á þennan stóra
markað og að sama skapi muni
sú tækni og þær aðferðir sem
Póls hf. ræður yfir geta styrkt
stöðu FoodCraft verulega á
næstu árum. Póls mun leita
samstarfs við önnur íslensk
fyrirtæki til að tryggja nægi-
lega afkastagetu í hönnun og
framleiðslu vegna þeirra verk-
efna sem eru framundan í
tengslum við samstafið við
FoodCraft“, segir Hörður Ing-
ólfsson, stjórnarformaður Póls
hf.
halfdan@bb.is
Kjúklingabitar vigtaðir með samvalsvél frá Póls.
Lífeyrissjóður Vestfirðinga
Hrein eign minnk-
aði um 245 milljónir
Hrein eign Lífeyrissjóð
Vestfirðinga til greiðslu líf-
eyris minnkaði um 245
milljónir króna á síðasta ári.
Í lok árs 2002 var hrein eign
sjóðsins 12,9 milljarðar og
hafði þá rýrnað um 1,9%.
Lífeyrissjóður Vestfirðinga
er nú 14. stærsti lífeyrissjóð-
ur landsins.
Guðrún Guðmannsdóttir
framkvæmdastjóri sjóðsins
segir rýrnunina skýrast af
neikvæðra ávöxtun erlendra
verðbréfa og lækkandi gengi
dollars. „Lífeyrissjóðurinn á
í verðbréfasjóðum erlendis
sem fjárfesta bæði í skulda-
bréfum og hlutabréfum.
Þegar verið er að horfa á
raunávöxtun lífeyrissjóða er
það gert til lengri tíma. Þess-
ar eignir voru að skila okkur
15% ávöxtun á árinu 1999
og að sama skapi eru horfur
bjartar fyrir þetta ár“, segir
Guðrún.
Verðbréfaeign Lífeyris-
sjóðs Vestfirðinga var tæp-
lega 11,8 milljarðar í lok
síðasta árs. Guðrún segir að
ef litið er til erlendra lífeyr-
issjóða þá séu íslensku sjóð-
irnir að ná góðum árangri.
„Víða erlendis erum við að
sjá allt að 30% neikvæða
ávöxtun.
Stjórn Lífeyrissjóðs Vest-
firðinga hefur markað þá
stefnu að horfa til langs tíma
og halda í þessar eignir með-
an niðursveiflan gengur yfir.
Við ætlum að fá hækkunina
að fullu inn aftur. Ég hef
séð virkilega sorgleg dæmi
um að fólk hafi farið á taug-
um þegar bréf hafa lækkað.
Fólk hefur haldið sig vera
að tapa öllu og selt bréf á
mjög lágu gengi sem síðan
hafa rétt úr kútnum, jafnvel
nokkrum mánuðum síðar.
Þetta hefur hent mjög marga
einstaklinga“, sagði Guðrún
Guðmannsdóttir.
kristinn@bb.is
Kaup RARIK á Hitaveitu Dalabyggðar
Komu Orkubúinu
í opna skjöldu
Kaup RARIK á Hitaveitu
Dalabyggðar virðast hafa
komið stjórnarmönnum
Orkubús Vestfjarða í opna
skjöldu samkvæmt fréttum
Svæðisútvarps Vestfjarða.
Áður hafði verið áformað
að selja Orkubúinu hitaveit-
una og átti aðeins eftir að
ganga frá formsatriðum.
Í fréttum útvarps í síðustu
viku kom fram að Orkubúið
hefði boðið 135 milljónir
króna í hitaveituna en á
mánudag hafi komið tilboð
frá RARIK upp á 140 millj-
ónir króna. Bæði Orkubúið
og RARIK eru í ríkiseigu.
Kristján Haraldsson orku-
bússtjóri sagði í samtali við
Ríkisútvarpið að tilboð
Orkubúsins stæði en fyrir-
tækið ætlaði ekki að taka
þátt í yfirboðum tveggja rík-
isfyrirtækja. Ef kaup RAR-
IK á Hitaveitu Dalabyggðar
væru til þess fallin að skapa
meiri sátt um málið meðal
heimamanna þá væri það
jákvætt.
kristinn@bb.is
Höfuðstöðvar Orkubús
Vestfjarða á Ísafirði.
29.PM5 18.4.2017, 11:2716