Bæjarins besta - 20.02.2002, Page 3
MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2002 3
Nemendur!
Getum bætt við nokkrum nemendum á
harmóníku og píanó. Höfum harmóníkur til
útláns fyrir nemendur.
Hafið samband við skrifstofu skólans, sem
er opin virka daga frá kl. 13-16. Síminn er
456 3926.
Skólastjóri.
Ísafjörður
Páll Rósin-
krans syngur
í kirkjunni
Söngvarinn góðkunni
Páll Rósinkrans mun
syngja á fjáröflunartón-
leikum KFÍ í Ísafjarðar-
kirkju á sunnudag. Á tón-
leikunum, sem hefjast kl.
20:00, ætlar Páll með að-
stoð undirleikara að
syngja blandaða dagskrá
með gospelívafi þar sem
hann tekur jafnt eigin lög
sem og lög úr ýmsum átt-
um sem hann hefur verið
þekktur fyrir að syngja.
Miðaverð á tónleikana er
kr. 1500.
KFÍ hyggst á næstu
dögum og mánuðum
verða með allar klær úti
til að fjármagna starfsemi
félagsins. Ber þar hæst
tónleikana með Páli Rós-
inkrans. Guðjón Þor-
steinsson, framkvæmda-
stjóri KFÍ, býst við hús-
fylli í Ísafjarðarkirkju á
sunnudaginn, enda átti
Páll söluhæstu íslensku
plötuna fyrir síðustu jól.
„Svo erum við með fullt
af öðrum hlutum í skoð-
un. Hinir nýverðlaunuðu
XXX-Rottweilerhundar
hafa verið í sambandi við
okkur varðandi tónleika-
hald og hugmyndir eru
uppi um að setja upp leik-
rit í samstarfi við Litla
Leikklúbbinn.
Næstu helgi verður „Dagur
tónlistarskólanna“ haldinn há-
tíðlegur um land allt til að
vekja athygli almennings og
stjórnvalda á því mikla starfi
sem fram fer í tónlistarskólum
landsins. Á Ísafirði verður
samkvæmt hefðinni boðið til
,,Tónlistarhátíðar æskunnar”,
en miðsvetrartónleikar hafa
verið haldnir í Tónlistarskóla
Ísafjarðar svo lengi sem elstu
menn muna.
Að þessu sinni verða þrenn-
ir tónleikar með afar fjöl-
breyttri dagskrá þar sem að-
aláherslan er lögð að nem-
endur komi fram í samleik. Er
um afar viðamikla tónleika
að ræða með þremur mismun-
andi efnisskrám og koma hátt
á annað hundrað nemendur
fram á tónleikunum. Er þar
um ýmsa hljóðfærahópa að
ræða, - dúó, tríó, kvartetta og
stærri hópa, m.a. strengjasveit
skólans sem flytur La Folia
eftir Vivaldi. Tveir kórar munu
syngja; Litli kórinn, sem skip-
aður er 6-8 ára börnum, og
Stúlknakór skólans, sem er
skipaður tíu stúlkum á aldrin-
um 14-19 ára með úrvals
söngraddir.
Laugardaginn 23. febrúar
verða tvennir tónleikar í
Hömrum, kl. 15 og aftur kl.
17, en tónleikarnir á sunnu-
deginum hefjast kl. 17. Að-
gangur að þeim er ókeypis og
öllum heimill enda ekki hvað
síst haldnir til kynningar á
starfi skólans fyrir foreldra og
aðra velunnara. Rétt er að geta
þess að Styrktarsjóður skólans
mun selja léttar veitingar í tón-
leikahléum.
Tónlistarskóla Ísafjarðar
Tónlistarhátíð æskunn-
ar haldin næstu helgi
Sýslumannsembættið á Ísafirði
Sigríður Björk
tekur við 15. apríl
Sigríður Björk Guðjóns-
dóttir, nýskipaður sýslu-
maður á Ísafirði, hefur feng-
ið frest á að mæta til starfa
til 15. apríl nk. Unnur Brá
Konráðsdóttir, settur sýslu-
maður á Ísafirði, mun því
áfram að gegna stöðu sýslu-
manns til 15. apríl.
Unnur Brá segir ekkert
athugavert við að nýskip-
aður sýslumaður taki sér
tíma til þess að ganga frá
sínum málum, enda hafi
ekki verið gengið frá ráðn-
ingunni fyrr en rúmri viku
áður en hún átti að taka við
embættinu. Unnur segir
jafnframt gott og hvetjandi
að finna til þess að starfs-
mönnum sýslumannsem-
bættisins sé treyst til þess
að fara með stjórn þess í
svo langan tíma.
Knattspyrnuvöllurinn á Skeiði á Ísafirði
Skautasvell útbúið
í næsta frostakafla
Að undanförnu hafa verið
uppi hugmyndir hjá forráða-
mönnum Ísafjarðarbæjar þess
efnis að komið verði upp
skautasvelli á Skeiði á Ísafirði.
Að sögn Björns Helgasonar,
íþrótta- og æskulýðsfulltrúa,
hefur hugmynd þessi verið á
borðinu um skeið og verður
stefnt að því að útbúa skauta-
svellið í næsta frostkafla.
„Ísafjarðarbær hefur marg-
oft staðið fyrir gerð skauta-
svella með misjöfnun vin-
sældum. Síðast gerðum við
skautasvell á Skeiði fyrir 4-5
árum. Þá var hálfur völlurinn
skafinn og vatni dælt ofan í
rásina með aðstoð slökkvi-
liðsins. Það gekk mætavel en
síðan slökkviliðið fór að krefj-
ast greiðslu fyrir að dæla vatn-
inu, hafa hugmyndir um
skautasvell ekki á jafn mikið
upp á pallborðið,“ segir Björn
Helgason, íþrótta- og æsku-
lýðsfulltrúi.