Bæjarins besta


Bæjarins besta - 20.02.2002, Page 13

Bæjarins besta - 20.02.2002, Page 13
MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2002 13 Upprisa Stranda- manna tókst vel Þorrablót Átthagafé- lags Strandamanna var haldið í Félagsheimilinu Hnífsdal sl. laugardags- kvöld og var það liður í endurvakningu félagsins eftir um sex ára hlé. Segir Kári Þór Jóhanns- son, formaður félagsins, að um 150 manns hafi mætt á blótið og ekki sé hægt að segja annað en að upprisan hafi tekist mjög vel í alla staði. Veislustjórn var í hönd-um hins lands- þekkta mat-reiðslu- og skotveiðimanns Sigmars B. Haukssonar og var dagskráin með nokkuð hefðbundu sniði. Fyrst var sest við trogin og étnar kræsingar að fornum hætti en síðan komu skemmti- atriðin hvert á fætur öðru, bæði leikþættir og gaman- vísur. Þá fór Sophus Magnússon, bílstjóri á Ísafirði, með gamanmál og þótti heldur betur fara á kostum. Fékk hann menn til að veltast um af hlátri og sýndi svo ekki varð um villst að hann er ekki Strandamaður fyrir ekki neitt. Þegar skemmtiatr- iðum var lokið tók hljóm- sveitin Hjónabandið við sviðinu og voru margir fótalúnir sem héldu heim undir morgun eftir mik- inn og fjörugan hama- gang á dansgólfinu. Fleiri myndir af þorra- blótinu munu birtast á svipmyndum á bb.is í vikunni.

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.