Bæjarins besta - 20.02.2002, Side 7
MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2002 7
Sýslumaðurinn
á Ísafirði
Uppboð á
lausafjármunum
Eftirtaldar bifreiðir og annað lausafé verður
boðið upp við gömlu lögreglustöðina, Fjarð-
arstræti, Ísafirði, miðvikudaginn 27. febrúar
2002 kl. 17.
Bifreiðir:
GI-538, IY-603
Toyota 5FBE18 lyftari, JL-3785, Ser. no:
24641, árg. 1998.
Uppboðið á sér stað eftir kröfu sýslumanns-
ins á Ísafirði og ýmissa lögmanna. Greiðslu
verður krafist við hamarshögg.
18. febrúar 2002
Sýslumaðurinn á Ísafirði,
Unnur Brá Konráðsdóttir,
settur sýslumaður.
Eyðibyggðastefna í framkvæmd
Guðjón Arnar Kristjánsson,
alþingismaður skrifar
,,Engin merki eru um að
ríkisstjórnin ætli að gera neitt
til að styrkja samkeppnis-
stöðu minni sjávarbyggða“
Stærstu byggðir landsins á
SV-horninu og við Eyjafjörð
munu halda áfram að eflast.
Bættar samgöngur frá öðrum
landsvæðum sem næst liggja
þessum svæðum ráða mestu
um hvert þjónustan verður
sótt. Smæstu sjávarbyggðirn-
ar þurfa forgang að auðlindum
sínum og þar með forgang að
strandveiðum. Snúa þarf frá
þeirri hugsun og framkvæmd
að verðmæti landsins og arð-
semin vaxi með því að veikja
atvinnusvæði sem eru háð
sjávarútvegi og landbúnaði.
Við þurfum að efla önnur
byggðasvæði í stað þess að
vinna gegn þeim. Þannig hef-
ur þó framkvæmdin í raun
verið hvað sem líður fögrum
orðum í byggðastefnu og yf-
irlýsingum um að fjölga störf-
um úti á landi.
Nýja byggðaskýrslan
Það hefur verið sagt og haft
eftir stjórnarþingmönnum í
fjölmiðlum að höfundar þessa
plaggs séu fullir af sleggju-
dómum og fordómum. Höf-
undar þessa dæmalausa
plaggs hafa ekki aðrar for-
sendur frá ráðherra byggða-
mála sem fékk samþykki rík-
isstjórnar fyrir að kynna ,,rit-
ið” en að enn frekari kvóta-
setning í hefðbundnum at-
vinnugreinum, fiskveiðum og
landbúnaði, sé ríkisstjórnar-
stefnan. Hvergi hefur verið
tekið undir að það skipti máli
fyrir íbúa við Breiðafjörð, á
Vestfjörðum, NV-landi, eða á
NA-horni landsins að þeir
þurfi að fá að njóta kosta sinna
til sjós og lands og fái til þess
forgang. Meðan vegið er að
sjávarbyggðum og í engu tek-
ið tillit til þess að sum lands-
væði eru háð því um langa
framtíð að byggja á þessum
hefðbundnu atvinnuvegum
sem undirstöðu þessara
byggða er ekki að undra þó
ekki sé gert ráð fyrir því í
texta hinnar nýju skýrslu að
t.d. Vestfirðir eflist. Texti
skýrslunnar um Vestfirði end-
urspeglar raunverulega stefnu
ríkisstjórnar. Minni sjávar-
byggðum er ekki ætlað að
vaxa í því kvótakerfisum-
hverfi sem er á stefnu ríkis-
stjórnarinnar og til þess hefur
ríkisstjórnin fengið fullan
stuðning þingmanna sinna.
Hvað svo sem sagt er nú og
síðar um að þeim líki illa
byggðaþróunin þá hafa stjórn-
arþingmenn á endanum kosið
þessa þróun yfir sig með at-
kvæðum sínum á Alþingi.
Engin merki eru um að
ríkisstjórnin ætli að gera neitt
til þess að styrkja samkeppn-
isstöðu minni sjávarbyggða.
Ennþá skilja menn þar á bæ
ekki að það þurfi að skipta
fiskveiðiflotanum upp í að-
greinda útgerðarflokka og
skiptir í því sambandi ekki
máli hvort veiðum er stýrt með
kvótakerfi eða ekki.
Ennþá vantar skilning á því
að kvótareikningur getur ekki
verið sá sami þegar veiddur
þorskur á sumum landsvæð-
um vestan- og norðanlands er
að jafnaði 2-3 kg. en 5-7 kg. á
miðum við suður og vestur-
land en kvótakílóið kostar
óveitt 150 kr. sama hvaðan
sem gert er út. Þorskfiskstærð-
in á Vestfjarða- og norður- og
norðausturmiðum hefur verið
2-3 kg. sl. 100 ár og verður
það áfram hvaða verð sem
menn neyðast til að borga til
sægreifanna.
Ennþá vantar skilning á því
að tryggja fjárhagslegan að-
skilnað veiða og vinnslu og
hagkvæmni þess.
Ennþá vantar skilning á því
að verðlagningu aflans á fisk-
markaði fylgir mikill virðis-
auki fyrir fólkið í landinu.
Óbreytt framkvæmd
eyðibyggðastefnunnar
Meðan atvinna af fiskveið-
um og landbúnaði fer minnk-
andi á þeim landsvæðum NV-
lands og NA-lands sem eru
mest háð þessum atvinnu-
greinum og enginn vilji er hjá
ríkisstjórn að breyta lögum
aftur á þann veg að þessi
svæði geti eflst, er ekki við
því að búast að breyting verði
í búsetumálum á þessum land-
svæðum. Þingmenn stjórnar-
flokkanna geta haft uppi ,,yfir-
borðskennt snakk” og sagt að
í byggðaáætlun ríkisstjórnar-
innar felist ,,fordómar, slegg-
judómar og textanum hafi
verið breytt af ríkisstjórn”. Því
verður hins vegar ekki á móti
mælt að þessari stefnu fylgja
stjórnarþingmenn af þeim
landsvæðum sem harðast hef-
ur verið vegið að. Nægir í því
sambandi að benda á að í
ályktun Eldingar, félags smá-
bátaeigenda í Ísafjarðarsýslu
í sl. viku segir að línuútgerð
sé nú ekki nema svipur hjá
sjón miðað við undanfarin ár.
Erfiðleikar einstakra útgerða
og þjónustuaðila hafa fylgt í
kjölfarið samfara atvinnuleysi
hjá verkafólki og sjómönnum.
Þarna tala þeir sem best
þekkja til áhrifa nýsettra laga
stjórnarþingmanna á atvinnu
og búsetumál á Vestfjörðum.
Er nema von að eftirskrift
byggðaráðherrans, sem birtist
í nýrri skýrslu um ,,byggða-
stefnu”, og sýnir hennar fram-
tíðarsýn til hinna dreifðu
byggða þar sem gert er ráð
fyrir frekari fækkun fólks á
Vestfjörðum, sé í samræmi við
stefnu ykkar stjórnarþing-
manna í verki?
– Guðjón A. Kristjánsson.
Starfsfólk Flugfélags Ís-
lands og Flugmálastjórnar
á Ísafirði hélt árshátíð sína
í flugstöðinni á Ísafirði sl.
laugardagskvöld. Til fagn-
aðarins var einnig boðið
öllum þeim sem á einhvern
hátt tengjast starfseminni,
t.d. starfsfólki bílaleiga,
ferðaskrifstofa og umboða
flugfélagsins sem og
heiðursgesti kvöldsins
Birgir Valdimarssyni,
fyrrum flugumferðar-
stjóra á Ísafirði.
Í tilefni dagsins var
flugstöðin skreytt í hólf og
gólf og sett í sitt fínasta
púss. Stólar, borð og
leirtau var sótt eftir
þörfum annað en síðan
slegið upp mikilli veislu
sem um 80 manns sátu.
Boðið var upp á hlaðborð
þar sem blandað var
saman gömlum og nýjum
matarhefðum, þ.e. þorra-
mati og framandi pottrétt-
um, en síðan tók við viða-
mikil dagskrá heima-
tilbúinna skemmtiatriða
sem stóð í einar tvær
klukkustundir. Þar var
margvíslegt glens og grín
haft um hönd og óhætt að
segja að allir hafi skemmt
sér konunglega.
Að borðhaldi loknu var
slegið upp balli í flug-
stöðinni en því var hins
vegar lokið nokkru áður
en morgunvélin sveif inn
til lendingar á sunnudags-
morgun. Höfðu þá ein-
hverjir árrisulir starfs-
menn tekið daginn
snemma og afmáð öll
ummerki um gleðskapinn
áður en hið daglega
amstur hófst að nýju.
Ljósmyndari blaðsins kom
við á árshátíðinni og tók
þar meðfylgjandi myndir.
Fleiri myndir munu
birtast á svipmyndum á
bb.is
Glaumur og gleði í flug-
stöðinni fram á nótt