Bæjarins besta - 20.02.2002, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2002 5
smáar
Ungt par óskar eftir ódýrri
3ja herb. íbúð á eyrinni.
Upplýsingar í símum 869
9008 og 456 5004.
Til sölu er Evenrude utan-
borðsmótor, 25 hp. Þarfn-
ast smá lagfæringar. Fæst
fyrir lítið. Upplýsingar í
síma 848 0928.
Eigendur e.t.v. í Miðtúni
eða Sætúni. Viljið þið
minnka við ykkur? Leit-
um að makaskiptum á
stærra húsnæði og á eign
okkar að Smiðjugötu 1.
Áhugasamir hafi samband
í síma 456 3215.
Til sölu er VW Golf, 4x4,
station, árg. 1997. Skipti á
ódýrari bíl koma til greina.
Bílalán getur fylgt. Upplýs-
ingar í síma 892 1688 eða
456 4216.
Til sölu eru Dynastar skíði,
1,95 og Atomic skíði 1,65,
1.20 og 0,9. Á sama stað
eru til sölu tvennir Rossig-
nol klossar nr. 26,5 og 24,5
og barnaklossar sem henta
6-7 ára. Upplýsingar í síma
897 6795.
Til sölu eru þokkalega góð
33x12,5x15 Sidewinder,
radial jeppadekk. Upplýs-
ingar í síma 456 4186.
Til leigu er herbergi í vest-
urbæ Reykjavíkur. Uppl. í
síma 562 1737.
Óska eftir notuðu trommu-
setti. Upplýsingar í síma
456 3178.
Kiwanisklúbburinn Þor-
finnur heldur hlutaveltu
sunnudaginn 24. febrúar
kl. 14 í íþróttahúsinu á
Flateyri.
Til sölu er 2ja herb. íbúð
að Urðarvegi 78. Uppl. gef-
ur Erlingur í símum 456
3928 og 456 4323.
Til sölu eða leigu er Skóla-
stígur 19, neðri hæð í Bol-
ungarvík. Íbúðin er laus.
Uppl. í síma 462 7499.
Óska eftir notaðri eldavél,
ódýrt eða gefins. Upplýsing-
ar í síma 456 4226.
Grunnvíkingar! Hið árlega
þorrablót verður haldið í
Félagsheimilinu í Hnífsdal
laugardaginn 23. febrúar.
Miðapantanir hjá Friðbirni
í síma 456 3727/863 3859,
Rebekku s. 456 4047/867
7794 og Halldóri Páli s.456
7183/898 1935.
Til sölu er Brio kerruvagn
með burðarrúmi. Upplýs-
ingar í síma 456 4345 og
862 1845.
Krabbameinsfélagið Sigur-
von óskar eftir stofuborði,
hillum og tölvu gefins. Upp-
lýsingar gefur Sigrún í síma
891 7654.
Til sölu eða leigu er lítið
hús á eyrinni á Ísafirði.
Upplýsingar gefa Jón í síma
896 3387 eða Heiðar í síma
896 3441.
Til sölu er Artic Cat Prowler
vélsleði árg. 1992, 440cc.
Upplýsingar í símum 699
3068 eða 456 3068.
Brún lopapeysa í stærð 8
var tekin í misgripum fyrir
svarta loðkápu, stærð 9-10
í Grunnskólanum í Hnífs-
dal um jólin. Uppl. í símum
456 3825 og 865 6487.
Tek að mér alhliða hrein-
gerningar. Uppl. gefur
Berglind í símum 456 3496
og 849 8836.
Til sölu er leðursófi, hillu-
samstæða og lítill glerskáp-
ur. Fæst fyrir lítið. Uppl. í
síma 456 4681.
Óska eftir 3ja-4ra herb.
íbúð til leigu frá 1. mars.
Einnig kemur 2ja herb. til
greina. Upplýsingar í síma
690 8224.
Til leigu er stór 5 herb.
íbúð. Uppl. gefa Jón í síma
896 3387 og Heiðar í síma
896 3441.
Sævar Óskarsson, framkvæmdastjóri Pólsins hf. á Ísafirði
„Óþolandi mismunun milli
landsbyggðar og Reykjavíkur“
Heilbrigðisskoðun vegna
atvinnuleyfis útlendinga kost-
ar tæpar 20 þúsund kr. á Heil-
brigðisstofnuninni Ísafjarð-
arbæ en á lungna- og berkla-
varnadeild Heilsuverndar-
stöðvar Reykjavíkur er ekkert
gjald tekið fyrir slíka skoðun.
Telur Sævar Óskarsson, fram-
kvæmdarstjóri Pólsins á Ísa-
firði, að þarna sé um óþolandi
mismunun að ræða og segir
ekkert réttlæti í því að fyrir-
tæki á landsbyggðinni eða er-
lendir starfsmenn þeirra séu
skattlagðir sérstaklega þegar
aðilar með starfsemi á suð-
vestursvæðinu fái þessa þjón-
ustu greidda af skattpeningum
allra landsmanna.
Segir Sævar að Póllinn hafi
ráðið til sín tékkneskan raf-
eindavirkja er hóf störf hjá
fyrirtækinu í byrjun janúar.
Hafi síðan verið unnið að því
að afla tilskilinna leyfa fyrir
manninn, en meðal þess sem
atvinnurekandi þarf að leggja
fram er íslenskt læknisvottorð,
en það er samkvæmt fyrir-
mælum Landlæknisembættis-
ins og það þegar eftir komu
útlendingsins til landsins. Fór
hinn tékkneski starfsmaður
Pólsins því í heilbrigðisskoð-
un hjá Heilbrigðisstofnuninni
Ísafjarðarbæ 8. janúar sl. og
segist Sævar hafa greitt fyrir
það möglunarlaust reikning
upp á kr. 19.822 enda sé þar
veitt fyrsta flokks þjónusta og
ekkert yfir fagmennsku og
viðmóti þar að kvarta.
Hann sagðist þó hafa heyrt
af því að í Reykjavík, nánar
tiltekið hjá Heilsuverndar-
stöðinni við Barónsstíg, væri
þessi þjónusta veitt mönnum
að kostnaðarlausu. Þar sem
honum þótti þessi mismunur
með ólíkundum og gæti varla
staðist, hringdi hann í um-
rædda heilsugæslustöð og
óskaði eftir upplýsingum um
gjald fyrir heilbrigðisskoðun
útlending vegna atvinnuleyfis.
Spurði hann nákvæmlega eftir
því hvað væri innifalið í skoð-
uninni og segir að það hafi
allt passað við þá ágætu þjón-
ustu sem fékkst á Ísafirði. Þeg-
ar hann spurði svo hvað væri
greitt fyrir þetta, þá var svarið:
„Ekki neitt“.
Í framhaldi af símtalinu
hafði Sævar samband við
Heilbrigðisstofnunina Ísa-
fjarðarbæ og spurði hvort
gjaldheimtan þar gæti staðist.
Starfsfólkið sagði sem von var
að því væri uppálagt að inn-
heimta fyrir þessa þjónustu
og var fyrirspurnin þá borin
upp við framkvæmdastjóra
Heilbrigðisstofunarinnar. Var
hann hissa á að þessi mis-
munur væri milli stofnana og
sagðist munu senda erindi til
heilbrigðisráðuneytisins um
hverju þetta sætti. Sævar segir
að þegar ekkert hafði heyrst
af málinu um nokkrun tíma,
hafi hann fyrir hönd Pólsins
sent framkvæmdarstjóranum
tölvupóst þar sem óskað var
eftir endurgreiðslu reikninga
vegna umræddrar heilbrigðis-
skoðunar, enda væri staðreynd
að sama þjónusta væri veitt
annars staðar gjaldlaust. Fékk
hann þau svör að skv. þeim
upplýsingum sem fyrir lægju
hjá stofnuninni væri ekki ann-
að séð en að rétt hefði verið
staðið að málum vegna þess-
arar skoðunar og því væri
beiðni um endurgreiðslu hafn-
að. Var Sævari jafnframt bent
á að beina fyrirspurnum sínum
til Vinnumálastofnunar fé-
lagsmálaráðuneytisins.
Sævar segir fyrirtækið ekki
hafa sett fram kröfu um end-
urgreiðslu vegna þess að um
háar fjárhæðir væri að ræða,
heldur vegna þess að hér væri
um óþolandi mismunun og
aðstöðumun að ræða. Nóg
væri fyrir af aukakostnaði sem
legðist á atvinnureksturinn á
landsbyggðinni, þó að heil-
brigðisstofnanirnar færu ekki
að taka upp misjafna álagn-
ingu eftir því hvar á landinu
þær eru staðsettar. „Kannski
er þetta einn angi byggða-
stefnunar, að við sem erum
búsett á landsbyggðinni verð-
um að niðurgreiða heilbrigð-
isþjónustu þeirra sem komnir
eru í „sæluríkið“. Ef það er
raunin þá líður mér strax betur
og hef þá gert a.m.k. eitt góð-
verk þann 8. janúar síðastlið-
inn“, sagði Sævar að lokum.
Hjá Heilsuverndarstöð
Reykjavíkur fengust þær upp-
lýsingar að umrædd þjónusta
væri veitt endurgjaldslaust á
lungna- og berkladeild sam-
kvæmt sérstökum samning
við Landlækni og heilbrigð-
isráðuneytið. Á öðrum heilsu-
gæslustöðum þyrfti hins veg-
ar að greiða fyrir þjónustuna.
Krabbameinsfélagið Sigurvon á norðanverðum Vestfjörðum
Stuðningshópar stofnaðir
Ákveðið hefur verið að
stofna stuðningshópa innan
Krabbameinsfélagsins Sig-
urvonar á norðanverðum
Vestfjörðum. Til að byrja
með verða stofnaðir stuðn-
ingshópar fyrir krabba-
meinssjúklinga annars veg-
ar og hins vegar fyrir að-
standendur krabbameins-
sjúklinga. Síðar er ráðgert
að skoða möguleiga á stofn-
un fleiri hópa. Fundir stuðn-
ingshópanna verða á síðustu
þriðjudags- og fimmtudags-
kvöldum í hverjum mánuði
og hefjast þeir kl. 20 í húsnæði
félagsins að Sindragötu 11 á
Ísafirði (gengið inn að sunn-
anverðu). Fyrstu fundirnir
verða 26. og 28. febrúar nk.
Á þriðjudagskvöldum verð-
ur fundur fyrir aðstandendur
krabbameinssjúklinga og er
þar átt við þá sem eru að-
standendur krabbameins-
sjúklinga í dag eða hafa verið
aðstandendur einstaklings
með þennan vágest. Forsvars-
menn fyrir þennan hóp eru
þær Ásthildur Gestsdóttir og
Anna Lind Ragnarsdóttir.
Nánari upplýsingar veitir Ást-
hildur í síma 898 8828.
Á fimmtudagskvöldum
verður fundur fyrir krabba-
meinssjúklinga og er þar átt
við alla þá sem greinst hafa
með krabbamein, jafnt þá sem
náð hafa bata. Forsvars-
menn fyrir þann hóp eru
þau Jóhann Magnússon og
Heiðrún Björnsdóttir. Nán-
ari upplýsingar veitir Jó-
hann í síma 891 7704.
Stjórn Krabbameinsfé-
lagsins Sigurvonar hvetur
alla sem greinst hafa með
krabbamein sem og að-
standendur þeirra til að
mæta á fundina.
Ísafjarðarbær
Starfshóp-
ur skipaður
í jafnréttis-
málum
Bæjarráð Ísafjarðarbæj-
ar hefur samþykkt að fé-
lagsmálanefnd skipi
starfshóp í í afmörkuð
verkefni nefndarinnar, þ.e.
til að endurskoða og
kynna jafnréttisáætlun
bæjarins og til að kanna
stöðu jafnréttismála í
sveitarfélaginu. Er þetta
gert samkvæmt beiðni frá
Ingibjörgu Maríu Guð-
mundsdóttur, forstöðu-
manni Skóla- og fjöl-
skylduskrifstofu, en hún
segir að jafnréttismál hafi
setið á hakanum í vinnu
félagsmálanefndar Ísa-
fjarðarbæjar sem á að
sinna jafnréttismálum
samkvæmt erindisbréfi.
Nefndin hafi hins vegar
í mörg horn að líta þar
sem félagsmál, barna-
vernd og málefni aldraðra
mynda málaflokkinn og
verkefnin eru fjölmörg.
Árið 1999 fékk félags-
málanefnd styrk að upp-
hæð kr. 400.000 frá Eign-
arhaldsfélagi Brunabóta-
félags Íslands til að vinna
að kynningu og fram-
kvæmd jafnréttisáætlunar
Ísafjarðarbæjar en hann
hefur ekki verið nýttur enn
sem komið er þar sem
nefndin hefur ekki séð sér
fært að vinna verkefnið.
Sparisjóður
Vestfirðinga
Verður aðal-
styrktaraðili
Boltafélagsins
Sparisjóður Vestfirðinga
verður aðal styrktaraðili
Boltafélags Ísafjarðar,
BÍ´88, næstu þrjú árin.
Samkomulag þess efnis
var undirritað á sunnudag
af þeim Kristjáni Pálssyni,
formanni BÍ og Eiríki
Finni Greissyni, aðstoðar-
sparisjóðsstjóra. Í frétt
frá BÍ´88 segir að samn-
ingurinn sé afar mikilvæg-
ur fyrir starfsemi félagsins
því fyrirhuguð sé víðtæk
endurreisnarstarfsemi hjá
félaginu. Í því skyni hafi
verið mótuð stefna til
þriggja ára þar sem gert
er ráð fyrir talsverðum
breytingum á rekstri sem
og að starfsemin verði
aukin mjög á öllum
sviðum. Meðal annars er
ráðgert að senda meistara-
flokk og 2. flokk karla til
keppni á Íslandsmóti í ár
eftir nokkurt hlé. Þá mun
félagið halda áfram að
leggja áherslu á yngri
flokkana og hefur Trausti
Hrafnsson verið ráðinn til
að hafa yfirumsjón með
því starfi.
Eiríkur Finnur Greipsson og Kristján Pálsson handsala samninginn.