Bæjarins besta - 20.02.2002, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2002
helgardagbókin
skemmtanir · fundir · fólk · sjónvarp · veður · íþróttir · fréttir · kirkjustarf
Sportiðí beinni○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○
Ríkissjónvarpið
Laugardagur 23. febrúar kl. 14:25
Þýski boltinn: Leikur óákveðinn
Laugardagur 23. febrúar kl. 16:30
Íslandsmótið í handbolta karla: Leikur óákveðinn
Sunnudagur 24. febrúar kl. 14:00
Íslandsmótið í atskák: Helgi Ólafsson – Helgi Áss Grétarsson
Sýn
Miðvikudagur 20. febrúar kl. 19:30
Meistarakeppni Evrópu: Barcelona – Roma
Miðvikudagur 20. febrúar kl. 21:40
Meistarakeppni Evrópu: Liverpool – Galatasaray
veðrið
Horfur á fimmtudag:
Austlæg átt, 10-15 m/s og
dálítil snjókoma sunnan-
lands en hægari og él
fyrir norðan. Frost 0-10
stig, minnst syðst.
Horfur á föstudag:
Norðanátt og éljagangur
eða snjókoma, einkum þó
norðanlands. Áfram kalt.
Horfur á laugardag:
Norðanátt og éljagangur
eða snjókoma, einkum þó
norðanlands. Áfram kalt.
Horfur á sunnudag:
Norðanátt og éljagangur
eða snjókoma, einkum þó
norðanlands. Áfram kalt.
Horfur á mánudag:
Norðanátt og éljagangur
eða snjókoma, einkum þó
norðanlands. Áfram kalt.
Föstudagur 22. febrúar
17.05 Leiðarljós
17.50 Táknmálsfréttir
18.05 Stubbarnir (79:90)
18.35 Nornin unga (17:24)
19.00 Fréttir, íþróttir og veður
19.35 Kastljósið
20.10 Gettu betur. Spurningakeppni
framhaldsskólanna. Menntaskólinn í
Reykjavík og Fjölbrautaskólinn í Garða-
bæ keppa.
21.15 Buena Vista Social Club. (Buena
Vista Social Club) Heimildarmynd eftir
Wim Wenders frá 1999 um hóp roskinna
tónlistarmanna á Kúbu sem notið hefur
mikilla vinsælda á seinni árum og hélt
m.a. tvenna tónleika í Reykjavík í fyrra.
Í myndinni er m.a. sýnt frá plötuupptök-
um þeirra í Havana og frá tónleikum í
Amsterdam og New York.
23.00 Allt eða ekkert. (To Have and
Have Not) Bandarísk bíómynd frá 1944
byggð á sögu eftir Ernest Hemingway. Í
myndinni segir frá tveimur félögunum,
sem reka bátaleigu á Martinique og taka
að sér að ferja franskan andspyrnumann
á flótta undan nasistum, og stormasömu
ástarsambandi annars þeirra við söng-
konu. Aðalhlutverk: Humphrey Bogart,
Walter Brennan, Lauren Bacall, Dolores
Moran og Hoagy Carmichael.
00.40 Útvarpsfréttir í dagskrárlok
Laugardagur 23. febrúar
09.00 Morgunsjónvarp barnanna
09.02 Stubbarnir (81:90)
09.30 Bubbi byggir (22:26)
09.45 Litlu skrímslin (33:52)
09.50 Gulla grallari (20:26)
10.25 Pokémon (34:52)
10.45 Búrabyggð (38:92)
11.10 Kastljósið
11.35 Mósaík
12.10 At
12.35 Skjáleikurinn
13.40 Markaregn
14.25 Þýski fótboltinn. Bein útsending
frá leik í úrvalsdeildinni.
16.30 Íslandsmótið í handbolta. Bein
útsending frá leik í Essó-deildinni.
18.00 Táknmálsfréttir
18.05 Forskot (1:40) (Head Start)
Breskur myndaflokkur um sjö ungmenni
sem fá styrk til að hrinda draumum sínum
í framkvæmd og hreiðra um sig í gamalli
vörugeymslu en gengur misvel að fóta
sig. Aðalhlutverk: David Hoflin, Nadia
Townsend, Megan Dorman, Garth
Holcombe, Gareth Yuen, Freya Stafford,
Ryan Johnson og Blair Venn.
18.54 Lottó
19.00 Fréttir, íþróttir og veður
19.35 Kastljósið
20.00 Milli himins og jarðar
20.50 Mambó-kóngarnir. (Mambo
Kings) Bandarísk bíómynd frá 1992 gerð
eftir verðlaunasögu Oscars Hijuelos um
tvo bræður, tónlistarmenn frá Kúbu, sem
freista gæfunnar í New York á sjötta ára-
tugnum. e. Aðalhlutverk: Armand Ass-
ante, Antonio Banderas, Cathy Moriarty
og Maruschka Detmers.
22.35 Líf í tuskunum. (La vida es silbar)
Margverðlaunuð kúbversk bíómynd frá
1998 um dansmey, félagsráðgjafa og
slagverksleikara í Havana sem verða að
gera það upp við sig hvernig þau vilja
lifa lífinu. Aðalhlutverk: Rolando Brito,
Luis Alberto García, Claudia Rojas,
Coralia Veloz og Jorge Molina.
00.25 Paradís á jörðu. (Un paraíso
bajo las estrellas) Kúbversk gamanmynd
frá 1998. Vörubílstjóri í Havana tekur
heim með sér ungan mann sem hann ók
á. Dóttir hans og pilturinn verða ástfangin
en ekki eru allir sáttir við þá þróun mála.
Aðalhlutverk: Thais Valdés, Vladimir
Cruz, Amparo Muñoz, Enrique Molina,
Daisy Granados, Satiago Alfonso, Jac-
queline Arenal, Litico Rodriguez og Alic-
ia Bustamante.
01.55 Útvarpsfréttir í dagskrárlok
Sunnudagur 24. febrúar
09.00 Morgunsjónvarp barnanna
09.02 Disneystundin
10.22 Babar (34:65)
10.55 Stafakarlarnir (20:24)
11.05 Nýjasta tækni og vísindi
11.20 Kastljósið
11.45 Skjáleikurinn
13.20 Mósaík
14.00 Íslandsmótið í atskák. Bein út-
sending frá úrslitaeinvígi Íslandsmótsins
í atskák á milli Helga Ólafssonar og
Helga Áss Grétarssonar.
16.15 Markaregn
17.00 Geimferðin (10:26)
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Stundin okkar
19.00 Fréttir, íþróttir og veður
19.35 Kastljósið
20.00 Í görðum Ósíris (2:4) (Un pique-
nique chez Osiris) Franskur verðlauna-
myndaflokkur um þrjár konur sem fara
til Egyptalands um aldamótin 1900 og
kynnast þar nýjum og spennandi heimi.
Aðalhlutverk: Dominique Blanc, Domin-
ique Reymond og Marina Hands.
20.55 Sönn íslensk sakamál. Ný syrpa
úr hinni vinsælu þáttaröð þar sem farið
er ofan í saumana á íslenskum sakamál-
um.
21.55 Helgarsportið
22.20 Jarðarber og súkkulaði. (Fresa
y chocolate) Kúbversk bíómynd frá 1993
um homma sem verður ástfanginn af
gagnkynhneigðum og kreddufullum
manni. Þetta er fyrsta myndin frá Kúbu
sem hefur verið tilnefnd til óskarsverð-
launa. Aðalhlutverk: Jorge Perugorría,
Vladimir Cruz, Mirta Ibarra og Franc-
isco Gattorno.
00.10 Kastljósið
00.35 Dagskrárlok
Föstudagur 22. febrúar
06.58 Ísland í bítið
09.00 Glæstar vonir
09.20 Í fínu formi
09.35 Oprah Winfrey (e)
10.20 Jag (3:24) (e)
11.10 Myndbönd
12.00 Nágrannar
12.25 Í fínu formi
12.40 Dharma og Greg (5:24) (e)
13.00 Dóttir Artagnans. (La Fille d´
Artagnan) Þegar dóttir d´Artagnans
hylmir yfir með morðingja og gerist sek
um samsæri gegn sjálfum konunginum
er skyttunum þremur, Aramis, Arthos
og Portos, ljóst að hún er í mikilli hættu.
Þótt þremenningarnir séu komnir af
léttasta skeiðinu kviknar líf í gömlum
glæðum og þeir fara að hugsa sér til
hreyfings. Aðalhlutverk: Raoul Billerey,
Jean-Luc Bideau, Charlotte Kady.
15.05 Andrea (e)
15.30 NBA-tilþrif
16.00 Barnatími Stöðvar 2
18.05 Seinfeld
18.30 Fréttir
19.00 Ísland í dag
19.30 Simpson-fjölskyldan (16:21)
20.00 Steinaldarmennirnir í Vegas.
(The Flinstones in Viva Roc) Lauflétt
gamanmynd fyrir alla fjölskylduna.
Steinaldarmennirnir eru heldur betur í
essinu sínu þegar þeir heimsækja Vegas.
Fred og Barney lenda í ótal ævintýrum
og Wilma kynnist glaumgosa sem eltir
hana á röndum. Myndin er byggð á
sívinsælum teiknimyndasögum eftir
William Hanna og Joseph Barbera.
Aðalhlutverk: Mark Addy, Stephen Bald-
win, Kristen Johnston, Jane Krakowski.
21.35 Blóðsugubaninn Buffy (1:22)
22.25 Myrkraverur. (Pitch Black)
Hörkuspennandi vísindaskáldsögutryll-
ir. Geimskip með 40 manns innanborðs
lendir í óveðri og brotlendir á óþekktri
plánetu. Þar er ekkert lífsmark að finna
og vandséð hvernig ferðalangarnir eiga
að lifa af. Þegar nóttin skellur á kemur
hins vegar í ljós að þau eru aldeilis ekki
ein og yfirgefin á þessum kaldranalega
stað. Aðalhlutverk: Vin Diesel, Radha
Mitchell, Cole Hauser.
00.15 Músin sem læðist. (Office Killer)
Dorinu virðast allar bjargir bannaðar
þegar hún missir starfsaðstöðu sína í rit-
stjórn neytendablaðs og er gert að starfa
heima. Hún á erfitt með að sætta sig við
breyttar aðstæður en kemst fljótt að því
að með aðstoð tölvunnar getur hún náð
meiri völdum hjá neytendablaðinu en
nokkurn hafði órað fyrir. Valdagræðgi
og hefnigirni hennar á sér engin takmörk
og bráðum tekur að fækka ískyggilega í
ritstjórninni. Aðalhlutverk: Molly Ring-
wald, Jeanne Tripplehorn.
01.40 Póstmaðurinn. (The Postman)
Sögusviðið er Bandaríkin árið 2013 eftir
borgarastyrjöld. Stjórnleysi ríkir og
óaldarflokkur Betlehems hershöfðingja
fer fremstur í að hrella þá sem eftir lifa.
En þá kemur flækingur nokkur til sög-
unnar sem boðar betri tíma þar sem lög
og regla ræður ríkjum á ný. Aðalhlut-
verk: Kevin Costner, Will Patton, Larenz
Tate.
04.35 Seinfeld
05.00 Ísland í dag
05.25 Tónlistarmyndbönd
Laugardagur 23. febrúar
08.00 Barnatími Stöðvar 2
10.10 Hundatilþrif
11.50 Glæstar vonir
13.30 60 mínútur
14.15 Alltaf í boltanum
14.45 Enski boltinn. Bein útsending.
17.05 Best í bítið
17.40 Oprah Winfrey
18.30 Fréttir
18.55 Lottó
19.00 Ísland í dag
19.30 Dharma og Greg (23:24)
20.00 Vinir (5:24)
20.30 Kosningin. (Election) Tracy Flick
er klárasta stelpan í skólanum og ætlar
sér að verða forseti nemendafélagsins.
Jim McAllister kennir við skólann og
þrátt fyrir að þrá Tracy heitt hefur hann
fengið nóg af yfirgangi hennar og fær
eina af íþróttahetjum skólans til þess að
fara í mótframboð. Á einhver möguleika
gegn Tracy? Aðalhlutverk: Matthew
Broderick, Reese Witherspoon, Chris
Klein.
22.15 Hurricane. Mögnuð kvikmynd,
byggð á sannsögulegum atburðum. Rub-
in Carter var efnilegur hnefaleikari sem
fékk viðurnefnið The Hurricane. Hann
þótti einn besti millivigtarboxari sem
fram hafði komið og við honum blasti
glæstur ferill í hringnum. En þá dundi
ógæfan yfir. Carter var ranglega sakfelld-
ur fyrir hroðalegan glæp og dæmdur í
lífstíðarfangelsi. Árin liðu en velunnarar
hans neituðu að gefast upp, staðráðnir í
færa Carter frelsið á nýjan leik. Aðalhlut-
verk: Denzel Washington, Deborah
Unger, John Hannah, Liev Schreiber.
00.45 Denise í símanum. (Denise Calls
up) Rómantísk gamanmynd um líf og
ástir nútímafólks og samskipti sem fara
aðallega fram í gegnum síma. Martin er
maður sem helgar sig starfi sínu og hefur
lítinn tíma fyrir vini og fjölskyldu. Hon-
um verður illa brugðið þegar hann fær
símtal frá konu sem segist vera ólétt eftir
að hafa fengið sæði sem hann hafði gefið
í sæðisbanka. Með barnalegu og einlægu
tali tekst konunni að kynnast þessum
annars hrjúfa og vinnusama manni.
Aðalhlutverk: Tim Daly, Caroleen Fee-
ney, Dan Gunther.
02.05 Dauði í Granada. (Death in Gran-
ada) Myndin er byggð á tveimur verkum
rithöfundarins Ians Gibsons um hið
þekkta spænska skáld Federico Garcia
Lorca sem hvarf með dularfullum hætti
í spænsku borgarastyrjöldinni 1936. Hér
er annars vegar sögð sagan af dauða
skáldsins og hins vegar af för blaða-
mannsins Ricardos Fernandez til Spánar
átján árum síðar til að grafast fyrir um
hvernig það atvikaðist að Lorca var veg-
inn. Aðalhlutverk: Andy Garcia, Edward
James Olmos, Esai Morales.
03.55 Tónlistarmyndbönd
Sunnudagur 24. febrúar
08.00 Barnatími Stöðvar 2
12.00 Myndbönd
12.15 Nágrannar
14.10 60 Minutes II
15.00 Tindátarnir
16.50 Andrea (e)
17.15 Sjálfstætt fólk (e)
17.40 Oprah Winfrey
18.30 Fréttir
19.00 Ísland í dag
19.30 Viltu vinna milljón?
20.25 Bræðrabönd (9:10)
21.35 60 mínútur
22.25 Stella kemst á sjéns. (How Stella
Got Her Groove Back) Rómantísk kvik-
mynd. Stella er fertugur verðbréfasali í
San Francisco. Henni gengur vel í starfi,
á fallegt hús, góða vini og yndislegan
son. Samt vantar gleðina í líf hennar og
vinkona hennar, Delilah, veit hvað er til
ráða. Hún sannfærir Stellu um að gott frí
á Jamaíka sé lausnin. Stella slær til en
það renna á hana tvær grímur þegar hún
kynnist þar heillandi manni sem er helm-
ingi yngri en hún sjálf. Aðalhlutverk:
Angela Bassett, Taye Diggs, Whoopi
Goldberg, Regina King.
00.30 Fyrir rangri sök. (Mistrial) Lög-
regluþjónar eru myrtir við skyldustörf
sín. Lögreglufulltrúinn Steve Donahue
rannsakar málið. Strax berast böndin að
eiginmanni annars lögregluþjónsins en
hann er þekktur baráttumaður. Samfélag-
ið á erfitt með að samþykkja sekt hans.
Málið snýst allt í höndunum á Donahue
lögreglufulltrúa og önnur mál bætast við.
Þetta er frábær spennumynd sem hefur
hlotið afbragðsdóma gagnrýnenda. Að-
alhlutverk: Bill Pullman, Blair Under-
wood, Robert Loggia.
02.00 Tónlistarmyndbönd
Föstudagur 22.febrúar
18.00 Heklusport
18.30 Íþróttir um allan heim
19.30 Alltaf í boltanum
20.00 Gillette-sportpakkinn
20.30 Trufluð tilvera (6:14)
21.00 Peningahæð. (Sugar Hill) Hörku-
spennandi mynd um Roemello Skuggs
sem hefur notað gáfur sínar og töfra til
að ná undirtökunum í eiturlyfjasölunni í
Harlem. Hann beitir öllum ráðum til að
tryggja stöðu sína enn frekar og sér líka
til þess að hans nánustu vanhagar ekki
um neitt. En nú er Roemello að nálgast
þrítugt og ekki laust við að hann hafi
fengið nóg af blóðugum og miskunnar-
lausum fíkniefnaheiminum. Aðalhlut-
verk: Wesley Snipes, Michael Wright,
Theresa Randle, Clarence Williams.
23.00 Illmennið. (Resurrection Man)
Ógnvekjandi kvikmynd um skálmöldina
á Norður-Írlandi fyrr á árum. Aðalsögu-
hetjan er stuðningsmaður breskra yfir-
ráða í landinu sem er tilbúinn að leggja
allt í sölurnar fyrir málstaðinn. Myndin
er byggð á sögu eftir Eoin MacNamee.
Aðalhlutverk: David Williamson, Stuart
Townsend, Brenda Fricker, George
Shane, James Nesbitt.
00.40 Í grjótinu. (Lock Up) Spennu-
mynd sem gerist innan veggja fangelsis.
Frank Leone braut lögin og verður nú að
súpa seyðið af því. Ástandið er þó ekki
alslæmt því eftir fáeina mánuði fær hann
aftur frelsið og getur hafið nýtt líf. Það
eina sem stendur í veginum er fangavörð-
urinn Drumgoole en hann þykist eiga
óuppgerðar sakir við Frank. Aðalhlut-
verk: Sylvester Stallone, Donald Suther-
land, John Amos, Darlanne Fluegel.
02.25 Dagskrárlok og skjáleikur
Laugardagur 23. febrúar
11.30 Enski boltinn. Bein útsending frá
netið
Hún heitir Björk Sigurðar-
dóttir og er sjö ára. Hún er
fædd á Ísafirði og hefur
búið þar alla sína stuttu
ævi nema hvað nú býr
hún í St. John´s í Kanada
með bræðrum sínum og
foreldrum, þeim Sigurði
Jónssyni og Sólveigu
Sigurðardóttur. Pabbi
hennar Bjarkar er skipa-
tæknifræðingur og vinnur
hjá 3X-Stál í Kanada en
fjölskyldan flutti út í maí á
síðasta ári. Björk heldur
úti heimasíðu, iso.is/
bjork, þar sem hún segir
frá sínum högum og fjöl-
skyldunnar. Og það sem
meira er, - hún gerir grein
fyrir allri ættinni á mjög
skemmtilegan og skil-
merkan hátt. Þarna er líka
dagbók þar sem hægt er
að fylgjast með því helsta
sem á daga Bjarkar og
fjölskyldu drífur, einnig
myndasíða og margt fleira
skemmtilegt. Eins og á
öllum alvöru vefum er
Björk auðvitað með kosn-
ingu en spurningarnar eru
kannski í þyngra laginu
fyrir þá sem ekki þekkja
til. Hún er að sjálfsögðu
líka með gestabók og eru
þeir sem skoða heima-
síðuna hvattir til að skrifa
þar kveðju til Bjarkar og
fjölskyldu.
Ertu orðin(n)
áskrifandi?
Síminn er
456 4560
Hurricane
Hurricane er mögnuð, sannsöguleg kvikmynd frá árinu 1999 sem Stöð 2 sýnir
kl. 22:15 á laugardagskvöld. Rubin Carter var efnilegur hnefaleikari sem fékk
viðurnefnið Fellibylur (Hurricane). Hann þótti einn besti millivigtarboxari sem
fram hafði komið og við honum blasti glæstur ferill í hringnum. En þá dundi
ógæfan yfir. Carter var ranglega sakfelldur fyrir hroðalegan glæp og dæmdur
í lífstíðarfangelsi. Árin liðu en velunnarar hans neituðu að gefast upp, stað-
ráðnir í að færa Carter frelsið á nýjan leik. Aðalhlutverk leikur Denzel Wash-
ington.