Bæjarins besta


Bæjarins besta - 20.02.2002, Síða 16

Bæjarins besta - 20.02.2002, Síða 16
bb.is ÓHÁÐ Á VESTFJÖRÐUMFRÉTTABLAÐ Stofnað 14. nóvember 1984• Sími 456 4560 •Fax 456 4564 • Netfang: bb@bb.is • Verð kr. 200 m/vsk – öflugur frétta- og upplýsingamiðill! Ný verslunarmiðstöð Ágústar og Flosa ehf. í miðbæ Ísafjarðar Fyrstu rekstraraðilarnir hefja starfsemi fyrir páska Framkvæmdum miðar vel við hina nýju verslunarmið- stöð í miðbæ Ísafjarðar sem Ágúst og Flosi ehf., eru að reisa. Að sögn Ágústs Gísla- sonar, framkvæmdastjóra fyr- irtækisins, gengur verkið von- um framar og virðist allt benda til þess að fyrstu verslanirnar hefji starfsemi í húsinu fyrir páska. Hann segir að Sam- kaup hf., sem er með stærsta hluta hússins, muni taka við sínum hluta á baráttudegi verkalýðsins, 1. maí og að Héraðsdómur Vestfjarða fái aðstöðu sína fullkláraða 1. júlí. „Framkvæmdirnar ganga ljómandi vel. Nú eru 20-26 menn að störfum við að klára sérverslanahlutann í húsinu og í þessari viku mæta málarar á staðinn. Við reiknum síðan með að geta hafið flísalagnir í næstu viku. Við munum af- henta þeim aðilum sem koma til með að hafa aðstöðu þar, þ.e. versluninni Konur & Menn og eigendum austur- lensks veitingastaðar sem enn hefur ekki hlotið nafn, lykla að húsnæðinu 15. mars. Einn- ig fær Landsbanki Íslands af- hent sitt pláss á sama tíma en ákvörðun um nýtingu þess liggur ekki fyrir,“ segir Ágúst. Efstu hæð hússins, sem fyr- irhugað var að nota undir skrifstofur, hefur ekki verið ráðstafað, og reiknaði Ágúst með að sótt yrði um skipu- lagsbreytingu til bæjaryfir- valda svo hægt verði að útbúa þar íbúðir. „Annars hef ég ekki nokkrar áhyggjur af efstu hæðinni, enda selur svona vel staðsett og fallegt húsnæði sig sjálft. Ég var staddur á efstu hæðinni um daginn þegar sól skein yfir bæinn og komst að því að útsýnið þaðan er alveg magnað. Það liggur við að það sé synd að hafa þar skrif- stofur,“ sagði Ágúst. Verslunarmiðstöðinni hefur ekki verið gefið nafn og hyggjast þeir félagar Ágúst og Flosi, efna til hugmynda- samkeppni um nafn á stór- hýsið. Framkvæmdir við nýtt verslunarhús í miðbæ Ísafjarðar ganga vel. Rækjuvinnsla Miðfells hf. á Ísafirði Elías kaupir eignar- hluta Guðna Geirs Elías Oddsson, fram- kvæmdastjóri rækjuvinnslu Miðfells hf. á Ísafirði til tveggja ára, hefur keypt 55% eignarhluta Guðna Geirs Jóhannesson, forseta bæjarstjórnar Ísafjarðarbæj- ar í fyrirtækinu. Frá kaup- unum var gengið fyrir stuttu. Fyrir kaupin átti Elías 5% hlut í Miðfelli hf. og á því í dag 60% á móti 40% eignarhluta Hraðfrystihúss- ins – Gunnvarar hf. í Hnífs- dal. Kaupverð fékkst ekki uppgefið. Elías sagðist í samtali við blaðið ekki ætla að gera neinar gagngerar breytingar á starfsemi Miðfells, þó allt- af væri verið að hagræða hlutunum. Elías hefur gegnt starfi framkvæmdastjóri Miðfells frá stofnun þess fyrir rúmum tveimur árum er rækjuvinnsla Básafells hf. var keypt í nóvember ár- ið 1999. Elías segir vel hafi gengið að afla hráefnis til vinnslunnar og ekki fallið niður vinnsludagur síðan í apríl 2000, en fyrirtækið á nú hráefni fram á vorið. „Afurðaverð á rækju er lágt um þessar mundir í er- lendri mynt en ég hef hins- vegar fulla trú á Miðfell hf. og að fyrirtækið muni eflast á komandi árum” sagði El- ías. Á föstudag afhenti Elvar Logi Hannesson leikstjóri á Ísafirði fjölskyldunni að Þóru- stöðum í Önundarfirði rúmar 826 þúsund krónur, sem er afrakstur söfnunar sem hann hefur staðið fyrir til handa yngsta meðlimi fjölskyldunn- ar, Rakel Maríu Björnsdóttur sem á við alvarleg veikindi að stríða. Rakel María, sem fæddist í mars á síðasta ári, greindist með hjartagalla og hefur síðan þurft að gangast undir tvær mjög sérhæfðar og kostnaðar- samar læknisaðgerðir í Bost- on í Bandaríkjunum. Báðar aðgerðirnar hafa gengið að óskum en óhjákvæmilega hafa veikindi Rakel Maríu raskað högum fjölskyldunnar. Elvar Logi hóf söfnunina á Þorláksmessu á síðasta ári með því að lesa upp úr jóla- sögu Charles Dickens í Edin- borgarhúsinu á Ísafirði. Þar var aðgangur ókeypis en fólki var þess í stað bent á reikning sem Elvar Logi hafði stofnað til styrktar Rakel Maríu. Einnig rann fé það sem safnaðist með styrktarlínum í leikskrá til söfnunarinnar. Í kjölfar umfjöllunar um söfn- unina í fjölmiðlum bárust síð- an framlög frá fólki af öllu landinu. Er Elvar Loga bar að garði að Þórustöðum á föstudag var Rakel María nýkomin heim úr hjartaþræðingu á Lands- spítalanum í Reykjavík. Hún þykir mjög hress og þarf að- eins að nota súrefniskút á meðan hún sefur. Foreldrar Rakel Maríu, Jónína og Björn, vildu koma á framfæri þakk- læti til Elvars Loga og allra þeirra sem lagt hafa þeim lið á erfiðum tímum. Söfnun til handa Rakel Maríu Björnsdóttur 826 þúsund söfnuðust Hjónin Björn og Jónína ásamt Rakel Maríu og Elvar Loga er sá síðastnefndi afhenti þeim ávísun upp á rúmar 826 þúsund krónur.

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.