Bæjarins besta


Bæjarins besta - 13.03.2002, Blaðsíða 7

Bæjarins besta - 13.03.2002, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 2002 7 ngur, ra-jógi leiðinlegur. Þá varð allt af vera fullkomið og í röð og reglu. Eitt sinn fór hann að hund- skamma mig fyrir að vera að tala við fólk þegar hann var að reyna að sofa og lét ófrið- lega því ég hafði vogað mér að skilja eftir einn óhreinan disk í vaskinum í eldhúsinu. Ég gerði þau mistök að spurja hann á móti hvenær hann ætl- aði eiginlega að gera við glugga í herberginu mínu, glugga sem hann hafði kýlt í gegnum nokkru áður. Þá gekk hann upp að mér, horfði stíft á mig og sagði djúpri röddu: „Ég þekki menn”. Þá stopp- aði ég svolítið í sporunum, því ég vissi af eigin reynslu að hann þekkti mestu skít- seyði eyjanna, menn sem að ég kærði mig ekkert um að kynnast. Eftir þetta töluðumst við ekkert við í nokkurn tíma og ég reyndi að forðast hann. Svo kom hann að lokum upp að mér voðalega aumur og bað mig innilega afsökunar og sagði að ég ætti ekki að taka mark á þessu rugli í sér.” Þoldi stutt við í íslenskunámi Eftir að hafa umgengist fær- eyska ógæfumenn í nokkurn tíma kom Eiríkur aftur heim til Íslands. „Þá fannst mér tími til kominn að fara að mennta mig. Ég hóf nám í Íslensku í Háskólanum haustið 2000, en fór fljótlega að finnast það leiðinlegt og hætti í nóvember. Fram að jólum bjó ég í ein- hverri holu í Reykjavík og lifði á því að selja smásögur- nar sem ég hafði skrifað stuttu áður. Eftir áramót dundaði ég mér við að skrifa ljóðabókina „Heilagt stríð –runnið undan rifjum drykkjumanna” sem ég gaf út í mjög takmörkuðu upp- lagi í maí. Að öðru leyti gerði ég fátt merkilegt þá um vorið.” Spilaði á gítar fyrir smáaura Síðasta sumar var Eirík farið að langa aftur til útlanda. „Tveir vinir mínir, þeir Grímur og Varði, höfðu fengið þá hug- mynd að gera heimildamynd um ferðalag þess síðarnefnda um Norðurlönd. Ég ákvað að slást í för með þeim og í júní var haldið af stað með ferjunni Norrænu. Við stoppuðum fyrst í Fær- eyjum. Þar vorum í nokkra daga, spiluðum á gítar á göt- unum fyrir smáaura og sváf- um úti. Síðan var haldið til Bergen í Noregi og að lokum til Þrándheims. Þetta ferðalag var kvikmyndað og kemur bráðlega út mynd og geisla- diskur þar sem ég á tvö lög. Meðan ég var í Þrándheimi dundaði ég mér við að þýða ljóð ameríska skáldsins Allen Ginsberg. Þær þýðingar eru nú í skoðun hjá Forlaginu og verða jafnvel gefnar út á næst- unni.” 150 krónur á tímann „Ég þoldi ekki lengi við í Noregi, því fyrir utan nokkrar undantekningar eru Norð- menn leiðinlegasta fólk í heimi. Ég flúði þess vegna til Helsinki í Finnlandi og fór að búa með tantra-jóganum Hall- dóri. Þar komst ég að því að Guðjón Bergmann, sá sem sér um tantra kynlífsþættina á Skjá einum, veit ekkert um tantra-jóga. Þess má geta að tantra-jógar eru skírlífir og líta alls ekki á kynlíf sem eitthvað tómstundargaman sem menn eigi að stunda sér til ánægju. Fljótlega eftir komuna til Helsinki fór ég að vinna við að þrífa ferju sem siglir reglu- lega milli Helsinki og Stokk- hólms. Finnar nota ferjuna ekki til að ferðast, heldur til að drekka tollfrjálst brennivín. Þessi vinna var alger hörmung og engin tilviljun að ég gat strax fengið vinnu þarna. Ég fékk sama og ekki neitt fyrir þessa manndrápsvinnu og þess má geta að ég var eini hvíti maðurinn í þessu starfi. Maður mætti í vinnuna klukk- an tíu að morgni og hitti þá fyrir haugadrukkna farþega sem höfðu tínt hinu og þessu um borð og þurfti ég yfirleitt að byrja á því að leita fyrir þá áður en hægt var að þrífa. Einn morguninn hitti ég farþega sem hafði tínt öðrum skónum sínum. Eftir mikla leit fann ég skóinn undir dýnu í einhverri káetu þar sem búið var að hella tíu lítrum af bjór í rusla- tunnu og æla svo duglega of- aní allt saman. Þetta þurfti ég svo að þrífa. Það tók mig alltaf klukku- tíma að labba í vinnuna og annan klukkutíma að labba úr henni. Svo þurftum við um það bil annan hvern dag að fara í tímafreka yfirheyrslu í tollinum. Fyrir þann tíma fengum við ekkert borgað. Einn daginn þegar ég var á leið til vinnu fór ég að reikna þessar tafir allar inn í launin og komst að því að ég var með um það bil 150 krónur á tímann. Þá snéri ég við í spor- inu og sá þessa ferju aldrei aftur. Halldór vinur minn reddaði mér þá vinnu í eldhúsinu á tantra-leikskóla, sem var í engu frábrugðinn venjulegum leikskóla nema fyrir það að ekkert kjöt var á boðstólnum fyrir börnin. Ég fór svo heim til Íslands í jólafríinu og ætlaði alltaf að fara aftur út til Finn- lands, en komst svo að því að skuldastaðan var orðin það slæm að ég varð eiginlega að flytja aftur á Hótel mömmu.” Bandarískar bókmenntir í Berlín? Í augnablikinu er Eiríkur að vinna sem þúsundþjalasmiður í Grunnskólanum á Ísafirði. „Þar vinn ég við heimanáms- aðstoð, frímínútnagæslu og eldhússtörf svo fátt eitt sé nefnt. Ég er ekkert að kenna í bekkjum, en hef reyndar áður unnið við afleysingakennslu. Ég kem til með að vinna þarna fram á sumar og þarf svo að ákveða hvað mig lang- ar að gera. Ég hef verið að spá í að læra um bandarískar bók- menntir í John F. Kennedy institute í Berlín, en hvað úr því verður á eftir að koma í ljós.” Snjóflóðavarnir í Bol- ungarvík - Traðarhyrna Mat á umhverfisáhrifum – athugun Skipulagsstofnunar Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 13. mars til 24. apríl 2002 á eftirtöldum stöðum: Á skrifstofu Bolungarvíkurkaupstaðar og á bókasafni Bolungarvíkur. Einnig liggur skýrsl- an frammi í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipu- lagsstofnun í Reykjavík. Matsskýrslan er að- gengileg á heimasíðu Náttúrustofu Vest- fjarða: http://www.snerpa.is/nv/. Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmd- ina og leggja fram athugasemdir. Athuga- semdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 24. apríl 2002 til Skipulagsstofn- unar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Þar fást ennfremur nánari upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum. Birt samkvæmt lögum um mat á umhverfis- áhrifum nr. 106/2000. Skipulagsstofnun. Loftstokkahreinsun Hreinsum öll loftræstikerfi. Verðum á Ísa- firði og nágrenni næstu daga, frá 13. mars. Uppl. í símum 893 3397 og 567 0882 Almennir stjórnmálafundir Sjálfstæðisflokksins á Vestfjörðum Fyrirhugað er að halda almenna stjórn- málafundi þingmanna og kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi á næstu dögum og vikum. Á Vestfjörðum verða fundir haldnir á Patreksfirði, Ísafirði, Bolungarvík og á Hólmavík. Fundurinn á Ísafirði verður haldinn miðvikudaginn 20. mars kl. 20 á Hótel Ísafirði. Framsögumenn verða Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra og Guðjón Guðmundsson, alþingismaður. Í Bolungarvík verður haldinn fundur fimmtudaginn 21. mars. Framsögumenn þar verða alþingismennirnir Vilhjálmur Egilsson og Guðjón Guðmundsson. Fimmtu- daginn 4. apríl verður síðan fundað á Patreksfirði. Þar verða framsögumenn þeir Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra og Vilhjálmur Egilsson, alþingismaður. Þessi fundur var fyrirhugaður 7. mars, en var frestað. Á Hólmavík verður síðan fundað miðvikudaginn 13. mars kl. 20 í Café Riis. Framsögu þar hafa alþingismennirnir Guðjón Guðmundsson og Vilhjálmur Egilsson.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.