Bæjarins besta


Bæjarins besta - 13.03.2002, Page 8

Bæjarins besta - 13.03.2002, Page 8
8 MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 2002 Stakkur skrifar Framboðslisti sjálfstæðismanna Netspurningin Stakkur hefur ritað vikulega pistla í Bæjarins besta í mörg ár. Skoðanir hans á mönnum og málefnum hafa oft verið umdeildar og vakið umræður. Þær þurfa alls ekki að fara saman við skoðanir útgefenda blaðsins. Þrátt fyrir það bera ábyrgðarmenn blaðsins ábyrgð á skrifum Stakks á meðan hann notar dulnefni sitt. Netspurningin er birt viku- lega á bb.is og þar geta lesendur látið skoðun sína í ljós. Aðeins er tekið við einu svari frá hverri tölvu. Niðurstöðurnar eru síðan birtar hér. Spurt var: Notar þú netið til að sækja þér tónlist? Alls svöruðu 473. Já sögðu 173 eða 36,58% Nei sögðu 300 eða 63,42% Hlutlausir voru 0 eða 0,0% D-listinn er kominn fram í Ísafjarðarbæ. Sjálfstæðismönnum er óskað til hamingju með áfangann. Prófkjörsleiðin gekk ekki upp. Hverja sögu verður að segja eins og hún gerist. Auglýst var eftir frambjóðendum í fyrirhugað prófkjör í ársbyrjun. Aðeins tveir áhugasamir gáfu sig fram. Um tvær konur mun hafa verið að ræða, sem báðar munu hafa fengið sæti á listanum þó sennilega ekki óskasætin því bæjarstjórinn Halldór Halldórsson skipar efsta sætið. Hann var ekki í hópi áhugasamra um að bjóða sig fram í prófkjöri. Sá leikur hans reyndist réttur því þar með skákaði hann forystumanni bæjarmálaflokks D-listans, Birnu Lárusdóttur, sem ýmist hefur verið forseti bæjarstjórnar eða formaður bæjarráðs, niður í annað sætið. Í þriðja sæti listans er annar bæjarfulltrúi Ragnheiður Hákon- ardóttir, sem einnig hefur látið til sín taka á undanförnum árum á vettvangi Sjálfstæðisflokksins í Ísafjarðarbæ og reyndar í Vestfjarðakjördæmi. Í fjórða sætinu er nýr og áhugaverður frambjóðandi, Ingi Þór Ágústsson hjúkrunarfræð- ingur og sundþjálfari á Ísafirði. Um er að ræða ungan og efnilegan mann, sem kemur nú nýr inn á listann og er ástæða til að binda við hann miklar væntingar. Hann hefur náð góðum árangri með sundfólkið í Vestra og býður af sér góðan þokka. Það er fyrst í fimmta sæti að frambjóðandi úthverfanna nær inn á list- ann. Elías Guðmundsson á Suðureyri er ungur og áhugasamur um framgang Suðureyrar, sem er heimabyggð hans. Í sjötta sætinu er svo Jón Svanberg Hjart- arson varðstjóri í lögreglunni á Ísafirði, en búsettur á Flateyri. Sjálfstæðisflokkurinn hefur átt fjóra af níu fulltrúum í bæjarstjórn Ísafjarðar- bæjar. Svo hefur lengst af verið með D-listann, ef frá er skilið kjörtímabilið 1990 til 1994. Þá voru fulltúarnir aðeins þrír en svokallað sjálfstætt framboð, Í listi, átti tvo fulltrúa, sem töldu sig þó sjálfstæðismenn. En ekki báru þeir tveir listar gæfu til samvinnu. Sjálfstæðisflokkurinn hefur áratugum saman átt fjöl- mennasta framboðsflokkinn í bæjarstjórn á Ísafirði. Nú er von nýrra framboða, bæði frjálslyndra, sem margir hafa stutt Sjálfstæðisflokkinn og framboðs á vegum Halldórs Jónssonar, sem hefur lengi verið skráður félagi í Sjálfstæðisflokknum að því er nokkuð áreiðanlegar heimildir herma. D-listinn á því sennilega erfiðara starf framundan en oft áður og þarf nú eftir þrjú kjörtímabil að keppa á nýjan leik um atkvæði og stuðning við framboð fyrrum samherja og stuðningsmanna. Við slíkar aðstæður er kosningabarátta erfiðust. Samfylking, Framsóknarflokkurinn og Vinstri grænir mega eiga von á auðveldari slag fyrir vikið. Kröftunum verður beint í átök milli manna sem áður stóðu saman. Þeim má gjarnan líkja við það er hjón sem eru að skilja eða hafa nýlega slitið hjúskap sínum takast á. Hitt vekur ekki síður athygli, að Þorsteinn Jóhannesson yfirlæknir og bæjarfulltrúi síðustu tveggja kjörtímabila er hvergi á listanum. Fræðslufundur á Ísafirði. Fundinum verður varpað með fjarfundar- búnaði til Patreksfjarðar Umsjónarfélag einhverfra heldur fræðslu- fund á Ísafirði miðvikudaginn 13. mars kl. 20:30. Fundarefni: Kynning á Umsjónarfélagi einhverfra og einhverfu. Stutt umfjöllun um félagshæfnisögur og skynörfun. Fyrirspurnir og umræður í lokin. Fundarstaður: Á Ísafirði verður fundurinn í Þróunarsetri Vestfjarða, Árnagötu 2-4, og á Patreksfirði í Félagsheimili Patreksfjarðar. Fundurinn er öllum opinn og aðgangur er ókeypis. Félagsmenn og áhugafólk um fræð- slu og kennslu einhverfra eru hvattir til að mæta. Stjórnin. Pétur Bjarnason frá Ísafirði skrifar ,,Ég vona að Ísafjarðarbær beri gæfu til að sleppa aldrei eingarhaldi sínu á Reykjanesi“ Um orkumál og fleira Orkumál á Vestfjörðum eru nú töluvert til umræðu á Al- þingi. Má þar nefna tillögu Karls V. Matthíassonar um virkjun Hvalsár á Ströndum og ennfremur virkjun afrenn- slis af Glámu sem leitt yrði um jarðgöng í Hestfjörð. Nú er til athugunar sjávarfalla virkjun í sambandi við nýja brúargerð um Kolgrafarfjörð á Snæfellsnesi. Þá kemur mér til hugar hvort ekki ætti að kanna möguleika á slíkri virkjun í Mjóafirði í Ísafjarð- ardjúpi í sambandi við vænt- anlega vega- og brúargerð um Hrútey. Vestasta sundið er breitt og grunnt þannig að þar kæmi sennilega garður undir veg sem myndi auka rennsli í aust- ara sundinu verulega. Austara sundið er 10-12 faðma djúpt og sléttir hamraveggir að því beggja megin. Þegar ég var hafnsögumaður á Ísafirði, leiðbeindi ég oft skipum Haf- rannsóknarstofnunar og öðr- um stærri skipum um Djúpið. Eitt sinn vorum við, við rann- sóknir á Mjóafirði, á gamla Hafþóri sem var 300 tonn og gekk 9 mílur á klst., og höfð- um ekki tíma til að bíða eftir fallaskiptum því fiskifræð- ingarnir þurftu að ná kvöld- flugi frá Ísafirði. Komið var hörku aðfall og stórstreymt að auki. Við létum vaða í sundið á fullri ferð og gerðum ekkert meira en að hafa okkur í gegn á móti straumnum og sást greinilega hvað sjávarborðið hækkaði á meðan skipið var eins og tappi í flösku í sundinu. Það hlýtur að vera gífurleg orka í þessu sundi og full ástæða til þess að hún verði athuguð sem virkjunarkostur. Ég hefi áður bent á, að með nýrri vegagerð, ætti að brúa Reykjarfjörð. Það er ekki nema einn kílómetri úr nesinu og yfir á Laufskála- eyri á Sveinhúsanesi og mesta dýpið er þrír metrar. Þá væri Reykjanes komið í þjóðbraut. Mér finnst að brúin ætti að vera sem vestast á garðinum, því þá myndi garðurinn skýla sem best fyrir norðaustan þræsingnum, sem oft leggur inn fjörðinn. Hagkvæmast væri að vegurinn kæmi að landi innanvert við bryggjuna og tengdist þar gamla vegin- um yfir Hveravíkina og áfram enn með nesinu að austan- verðu. Þá er minnstu raskað. Með tilkomu þessa garðs myndi skapast hin besta að- staða fyrir allskonar sjósport, fyrir kajaka og smærri segl- báta. Á firðinum og á vestur- strönd Reykjaness er fullt af víkum og vogum þar sem góð aðstaða er fyrir sjó- og sólböð, og á Seleyrum er góð aðstaða til þess að byggja geymslur og annað sem til þarf. Ég kom fyrst í Reykjanes til að læra sund þegar ég var tólf ára. Sumarið á eftir fór ég til sjós með Agnari Guð- mundssyni á Mumma og af sex manna áhöfn var ég sá eini sem var syndur. Svo var um fleiri skip, örfári eða jafn- vel engir gátu synt. Þegar Ísa- fjarðarbátarnir komu heim af síldinni, var oft lítið að gera því róðrarnir hófust ekki fyrr en eftir áramót. Þá gekkst bæj- arstjórn ásamt sjómannafélag- inu og verkalýðsfélaginu fyrir að að haldin voru svokölluð sjómannanámskeið í Reykja- nesi. Þá fylltust gömlu skálar- nir af körlum og konum sem sóttu þessi námskeið og við í yngri kantinum fengum að fljóta með eftir því sem pláss leyfði. Þessi námskeið stóðu yfir- leitt í hálfan mánuð og þar lærði margt fullorðið fólk að synda í fyrsta sinn. Ég man sérstaklega eftir Samvinnufé- lags skipstjórunum, Rögn- valdi Jónssyni, Haraldi Guð- mundssyni og Halldóri Sig- urðssyni og konum þeirra, sem öll voru að læra sund. Sumir komust þversum yfir laugina en aðrir langsum eftir tímann. Kennarar voru Viggó Nathanelsson frá Þingeyri og Jakob frá Hallsstöðum. Þessi námskeið voru endurtekin í nokkur ár. Ég vona að Ísafjarðarbær beri gæfu til að sleppa aldrei eignarhaldi sínu á Reykjanesi og helst ætti bærinn að eignast byggingarnar líka svo byggja megi þar upp góða heilsurækt- arstöð og afþreyingaraðstðu fyrir unga sem aldna. Pétur Bjarnason. Æðruleysismessa í Ísafjarðarkirkju Æðruleysismessa verður í Ísafjarðarkirkju laugardaginn 16. mars kl. 20:30 til 21:30. Dagskrá: 1. Stjórnandi býður alla velkomna. 2. AA- maður fer með signingu og æðruleysisbæn. 3. Tónlistaratriði. 4. Vitnisburður AA-manns. 5. Tónlistaratriði. 6. AA-maður fer með ritn- ingarlestur. 7. Tónlistaratriði. 8. Hugleiðing AA-manns. 9. Tónlistaratriði. 10. Faðir vor og blessun. Prestur og AA-maður fara með fyrirbæn fyrir þá sem vilja. Á meðan er leikin tónlist. Þeir sem vilja fyrirbæn, koma upp að grátun- um þar og prestur leggur hendur á axlir þeirra. Molakaffi og spjall á eftir. Sinfóníuhljómsveit Íslands Frumflytur píanókonsert eftir Jónas Tómasson Aðspurður um hvort vænta mætti þess að fleiri verk eftir hann yrðu frumflutt á næst- unni, þá sagði Jónas slíkt vera í bígerð án þess að hann vildi tiltaka nokkuð sérstaklega. Hann væri á starfslaunum en það gerði honum kleift að helga sig tónsmíðunum og segja mætti að hann væri alltaf að. Að sögn Jónasar er ekki fyr- irhugað að flytja verkið aftur í bili en hins vegar verður það tekið upp í hljóðveri Ríkis- útvarpsins í maí nk. með sömu flytjendum. Hann segist ekki vita hvort hljómsveitin muni þá nota tækifærið og koma vestur á firði með verkið en óneitanlega væri gaman ef Vestfirðingar fengju tækifæri til að hlýða á konsertinn.

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.