Bæjarins besta


Bæjarins besta - 24.01.2001, Qupperneq 1

Bæjarins besta - 24.01.2001, Qupperneq 1
Vélsmiður og boltamaður Miðvikudagur 24. janúar 2001 • 4. tbl. • 18. árg. ÓHÁÐ Á VESTFJÖRÐUMFRÉTTABLAÐ Stofnað 14. nóvember 1984 • Sími 456 4560 • Fax 456 4564 • Netfang: bb@bb.is • Verð kr. 200 m/vsk – sjá spjall við Óla Reyni Ingimarsson í Vélsmiðjunni Þristi á Ísafirði á bls. 10 Átján ára unglingur handtekinn um helgina Talinn hafa átt þátt í fjórum líkamsárásum sama kvöldið Þrjár kærur hafa verið lagðar fram á hendur tveim- ur mönnum vegna meintra líkamsárása á Ísafirði á föstudagskvöldið. Átján ára unglingur sat inni hjá lög- reglunni á Ísafirði aðfaranótt laugardagsins, sakaður um að hafa ráðist á eða tekið þátt í að ráðast á fjóra ein- staklinga. Ekki mun þó hafa verið ráðist á þá alla í hóp heldur hvern í sínu lagi með stuttu millibili og eru þetta aðskilin mál. Ekki munu meiðsli þeirra sem fyrir árásunum urðu vera alvarleg. Helst er að þeir séu bláir og marðir en einn varð þó að láta lækni sauma sár í andliti. Sá áverki varð af hendi annars manns sem átti þátt í einni árásinni og telst upp- hafsmaður hennar og hefur einnig verið kærður. Að öðru leyti var síðasta helgi róleg hjá lögreglunni á Ísafirði. Ekki var vitað um nein slys eða alvarleg óhöpp. Íslensk miðlun Vestfjörðum Þrjár stöðvar þegar seldar Búið er að selja þrjár af fjórum starfsstöðvum þrota- bús Íslenskrar miðlunar Vest- fjörðum ehf. Í síðustu viku keypti fyrirtækið Vestmark á Ísafirði stöðina á Ísafirði og Netver ehf. á Raufarhöfn stöð- ina í Bolungarvík. Fyrr í vetur var gengið frá sölu stöðvar- innar á Suðureyri til nýstofn- aðs fyrirtækis, Fjarvinnslunn- ar Suðureyri ehf. Að sögn Björns Jóhannes- sonar, skiptastjóra þrotabús- ins, fékkst viðunandi verð fyr- ir stöðvarnar. Nú á einungis eftir að selja fjórðu starfstöð- ina sem er á Þingeyri. Að sögn Björns hefur ekkert viðunandi tilboð borist í hana. 04.PM5 19.4.2017, 09:091

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.