Bæjarins besta


Bæjarins besta - 24.01.2001, Blaðsíða 16

Bæjarins besta - 24.01.2001, Blaðsíða 16
ÓHÁÐ Á VESTFJÖRÐUMFRÉTTABLAÐ Stofnað 14. nóvember 1984• Sími 456 4560 •Fax 456 4564 • Netfang: bb@bb.is • Verð kr. 200 m/vsk Rakir vorvindar blása á golfara Þorramót haldið ef svo heldur sem horfir Meðan skíðamenn gráta snjóleysið kætast golfarar. Þeir hafa undanfarið getað leikið íþrótt sína á golfvelli Golfklúbbs Ísfirðinga í Tungudal en slíkt er sjaldgæft á þessum tíma árs. Reyndar hefur eitthvað verið spilað á vellinum í hverri viku í allan vetur, að sögn Finns Magnús- sonar golfara. Hann segir menn grínast með það hvort hægt verði að hafa orðið „ár- legur“ framan við „aðventu- mót“ eða „þorramót“ í fram- tíðinni. „Við höfum oft áður getað leikið á vellinum á Þingeyri á þessum tíma en sjaldan í Tungudal“, sagði Óli Reynir Ingimarsson. „Þetta hefur ver- ið alveg yndisleg tíð fyrir okk- ur og þá sérstaklega á laugar- daginn. Þá var vorblíða og yfir 20 manns léku á vellin- um.“ Haldi sumarvindar áfram að blása hér vestra er vissulega ætlunin að halda þorramót í golfi. „Slíkt hefur aldrei verið gert“, segir Óli. „Miðað við hvernig veðrið er núna eigum við að geta spilað í Tungudal eða á Þingeyri allar helgar. Dagurinn er reyndar heldur stuttur, en ef vel viðrar þegar dagur lengist verður líklega haldið mót.“ Þessir kappar voru ásamt mörgum öðrum á golfvellinum í Tungudal á laugardaginn. Frá vinstri: Finnur Magnússon, Sigurður Dagbjartsson, Jón H. Jóhannesson, Gunnar Pétur Ólason og Sigurjón Guðmundsson. helgistundarinnar á Ísafirði á sunnudag en að henni komu flest trúfélög hér vestra og einstaklingar úr ólíkum áttum. Sérstakur gestur var Toshiki Rætur, félag áhugafólks um menningarfjölbreytni Frá helgistundinni í Ísafjarðarkirkju. Sr. Magnús Erlingsson og Bryndís Friðgeirsdóttir flytja tónlist en til hægri er táknrænn veggur, sem merkti þann múr sem oft er milli ein- staklinga, þjóða og trúarbragða. Einn þáttur helgistundarinnar var að taka vegginn niður. Fjölþjóðleg helgistund Fjölþjóðleg helgistund var haldin í Ísafjarðarkirkju á sunnudaginn í tilefni af al- þjóðatrúarbragðadeginum. Það eru Rætur, hið nýstofnaða félag áhugafólks um menn- ingarfjölbreytni, sem höfðu frumkvæði að því að haldið yrði upp á daginn að þessu sinni. Samkoma af þessu tagi í Ísafjarðarkirkju árið 1992 er talin marka upphafið að fjöl- þjóðlegu menningarlegu starfi á Vestfjörðum. Séra Magnús Erlingsson sóknarprestur var gestgjafi Toma, prestur innflytjenda hjá Þjóðkirkjunni. Farið var með bænir, lesið upp, sungið og tónlist leikin og léttar veitingar voru á borðum. Þessar nunnur, önnur frá Filippseyjum og hin frá Póllandi, ganga frá kössum sem notaðir voru í vegginn milli fólks. Sveit skipuð þeim Bryn- jólfi Óla Árnasyni, Ástu Ás- valdsdóttur og Heimi Hans- syni sigraði á fyrsta skíða- göngumóti vetrarins á Ísa- firði, sem fram fór á Selja- landsdal á laugardag. Keppt var í boðgöngu í flokkum 9 ára og eldri en allir aldurs- hópar og bæði kyn kepptu saman. Í hverri sveit var eitt barn, einn unglingur og einn fullorðinn. Vegna ald- ursdreifingar í hópi þátttak- enda þurfti þó að gera tvær eða þrjár undantekningar frá þeirri reglu. Alls tóku níu sveitir þátt í mótinu. Í öðru sæti urðu Konráð Eggertsson, Sindri Gunnar Bjarnason og Sigurður Gunnarsson. Í þriðja sæti urðu Borgar Björgvinsson, Halldór Margeirsson og Guðmundur Rafn Krist- jánsson. Skíðafæri var ágætt á Seljalandsdalnum. Starfs- menn skíðasvæðisins hafa verið staðið sig einkar vel í „ótíðinni“ sem dunið hefur á skíðafólki í vetur og hafa þeir troðið göngubrautir nánast daglega. Ástæða er til að hvetja áhugafólk um hreyfingu og útivist til að nýta sér brautirnar og lýs- inguna sem komin er upp. Ágætt skíðafæri þrátt fyrir rigningu Fyrsta skíðagöngumótið 04.PM5 19.4.2017, 09:0916

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.