Bæjarins besta


Bæjarins besta - 07.02.2001, Page 2

Bæjarins besta - 07.02.2001, Page 2
2 MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 2001 LEIÐARI Ríkissjónvarpið ,,heiðrar“ minningu Ragnars H. Ragnar Umboðs- aðilar BB Eftirtaldir einstaklingar sjá um sölu og dreifingu á BB á þétt- býlisstöðum utan Ísafjarðar: Bolungarvík: Nikólína Þor- valdsdóttir, Hjallastræti 38, sími 456 7441. Súðavík: Sindri V. Gunnarsson, Holtagötu 11, sími 456 4982. Suðureyri: Deborah Anne Ólafsson, Aðal- götu 20, sími 891 7738. Flat- eyri: Gunnhildur Brynjólfsdótt- ir, Brimnesvegi 12a, sími 456 7752. Þingeyri: Valdís Bára Kristjánsdóttir, Hlíðargötu 43, sími 456 8263. Frá útgefendum: Útgefandi: H-prent ehf. Sólgötu 9, 400 Ísafjörður, sími 456 4560, fax 456 4564 • Netfang prentsmiðju: hprent@bb.is • Ritstjóri: Sigurjón J. Sigurðsson, sími 892 5362, netfang: bb@bb.is • Ritstjóri netútgáfu: Hlynur Þór Magnússon, símar 456 7322 og 862 1874, netfang: blm@bb.is • Blaðamaður: Hálfdán Bjarki Hálfdánsson, sími 863 7655, netfang: halfdan@bb.is • Ljósmyndari: Halldór Sveinbjörnsson, sími 894 6125, netfang: halldor@bb.is • Stafræn útgáfa: www.bb.is • Lausasöluverð er kr. 200 eintakið m. vsk. • Áskriftarverð er kr. 170 eintakið m. vsk. • Veittur er afsláttur til elli- og örorkulífeyrisþega. Einnig sé greitt með greiðslukorti • Eftirprentun, hljóðritun, notkun ljósmynda og annars efnis er óheimil nema heimildar sé getið. Fátt er nú ritað og rætt um menningarhúsin fimm sem stjórnvöld hugðust skáka víða um landið. Vera má að kapphlaupið sem þá hófst milli nokkurra þingmanna um að fá menningarhús í sitt kjördæmi eigi þátt í þögninni sem nú ríkir um þetta annars vel meinta mál. Á síðum þessa blaðs hefur verið haft eftir mætum mönnum að skóli sé ekki hús og að menning sé ekki hús, heldur fólk. Breytir engu þótt í skírnarvottorðum steinkassa standi að þeir séu skólar eða menningarhallir ef ekkert er fólkið. Það státa ekki margir staðir hérlendis af jafn langri tónlistarhefð og Ísafjörður. Má það að margra mati rekja til brautryðjendastarfs Jónasar heitins Tómassonar, tónskálds, með stofnun fyrsta tónlistarskóla á Íslandi árið 1912. Það varð síðan gæfa ísfirskra tónlistarunnenda, og annara er notið hafa, þegar Ragnar H. Ragnar og Sigríður eiginkona hans komu til bæjarins og tóku til við að byggja upp þann Tónlistarskóla Ísafjarðar sem við þekkjum í dag. Frá fyrstu tíð nutu Ragnar og Sigríður stuðnings og velvilja fólks sem innt hefur ómetanlegt starf af höndum til að efla og styrkja stöðu skólans í liðlega fimm áratugi. Kannski verður þessari samheldni best líkt við stóra fjölskyldu. Það sem vel er gert er ljúft að þakka. Í því skyni hafði Tónlistarskólinn opið hús í hinum glæsilega tónleikasal skólans á laugardaginn. Þar var m.a. ætlunin að gleðja þá er litu inn með sýningu á myndbandi þar sem rætt var við hjónin Ragnar H. og Sigríði J. Ragnar auk þess sem þar var sýnt frá skólastarfinu. Tón- listarskólinn á eintak af myndbandinu, sem gert var fyrir Ríkissjónvarpið fyrir rúmum 20 árum. Skemmst er frá því að segja að Sjónvarp allra landsmanna kom í veg fyrir að velunnarar Tónlistarskóla Ísafjarðar fengju á þessari síðdegisstund að njóta ,,návistar Ragnars og Siggu“ í húsakynnum þess skóla, sem þau helguðu líf sitt og starf öllum stundum frá komu þeirra til Ísafjarðar, með því að krefjast 336.000 króna greiðslu fyrir hverja sýningu á myndbandinu, en ætlunin hafði verið að renna því í gegn tvisvar til þrisvar þessa dagstund, fólki til ánægju. Þess- ari forkastanlegu ákvörðun ráðamannna Ríkissjónvarpsins fékk ekkert breytt. Yfir þá afstöðu Ríkissjónvarpsins að meina virtri menningarstofnun á landsbyggðinni að sýna velgjörðarfólki sínu gamalt myndband, og heiðra á þann veg minningu Ragnars H. Ragnar og konu hans Sigríðar, nema fyrir kæmi greið- sla allt að einni milljón, ná engin orð. s.h. Júlíus Geirmundsson fer í slipp í Reykjavík Spilið bilaði með látum Júlíus Geirmundsson ÍS 270 kom til hafnar á Ísafirði á sunnudag með 328 tonn að verðmæti um 81 milljón króna. Daginn eftir kom Páll Pállsson ÍS 102 til með rúm 90 tonn. Uppistaðan í aflanum var þoskur. Stuttu á eftir Páli kom norski togarinn Remöyfjord til að fá við- gerð auk þess sem kostur var tekinn. Eftir löndun fer Júlíus til Reykjavíkur í slipp, en spil togarans bilaði með látum í túrnum. Á meðfylgjandi mynd eru starfsmenn Löndunarþjónustu Magnúsar Haukssonar að landa úr togaranum. Heilbrigðisstofnunin Ísafjarðarbæ Sex sóttu um stöðu framkvæmdastjóra Sex umsóknir bárust um stöðu framkvæmdastjóra Heilbrigðisstofnunarinnar Ísafjarðarbæ, en umsóknar- frestur rann út í síðustu viku. Umsækjendur eru: Gísli Halldór Halldórsson, við- skiptafræðingur, Ísafirði, Ól- afur Als, rekstrarfræðingur, Reykjavík, Sigurður J. Haf- berg, útgerðartæknir, Flateyri, Tómas Ibsen, forstöðumaður, Ísafirði, Vignir Þór Jónsson, B.Sc., verkstjóri, Súðavík, og Þröstur Óskarsson, fjármála- stjóri, Akureyri. Umsóknirnar fara nú til sér- stakrar hæfnisnefndar sem skilar heilbrigðisráðherra og stjórn stofnunarinnar áliti sínu. Ráðherra skipar síðan í stöðuna til fimm ára að fengnu áliti og tillögu stjórnar stofn- unarinnar. Heilbrigðisstofnunin Ísafjarðarbæ. Dökkt útlit hjá meistaraflokki karla hjá KFÍ eftir tap í síðustu viku gegn Valsmönnum Fátt getur bjargað falli í 1. deild Enn syrtir í álinn hjá karla- liði KFÍ. Á fimmtudag í síð- ustu viku tapaði liðið gegn Val með 78 stigum gegn 82 og er þar með orðið langneðst á stigatöflunni með aðeins 4 stig. Fátt getur því bjargað lið- inu frá falli í 1. deild. ,,Síðasti leikur var ekki góð- ur. Hrafn Kristjánsson var meiddur og Gestur Már Sæv- arsson var frá en þetta eru leikmenn sem við máttum ekki missa. Við náðum tvisvar þægilegu forskoti í leiknum, en tókst ekki að halda því út leiktímann og því fór sem fór,“ sagði Karl Jónsson, þjálfari KFÍ í samtali við blaðið. ,,Vissulega er staðan ekki góð en meðan sjö leikir eru enn eftir er alltaf möguleiki fyrir hendi. Við erum ekkert að fara að gefast upp og ætlum að mæta grimmir í hvern ein- asta leik. Það er mín tilfinning að við þurfum að vinna fimm af þessum sjö leikjum til að tryggja okkur í deildinni, en á það ber að líta að þarna eru erfiðir útileikir gegn Njarð- vík, Keflavík, Haukum og Tindastóli,“ sagði Karl. Þótt allt bendi til að félagið leiki ekki í úrvalsdeild á næsta vetri segir Karl félagið ekki þurfa að kvíða framtíðinni. ,,Ef við föllum, er það mín tilfinning að liðið verði aftur komið upp fyrir árið 2005,“ sagði Karl. Bræðurnir Pétur og Eggert Jónssynir og Pálmi Stefáns- son taka á móti Staðarvík við komuna til Ísafjarðar. Ísafjörður Ísfirðingur ehf. leigir bát Fiskvinnslan Ísfirðingur ehf. á Ísafirði hefur tekið á leigu 5,9 tonna plastbát frá Keflavík, Staðarvík GK 107. Báturinn kom til Ísafjarðar um helgina með einu af skipum Eimskipafélags Íslands. „Báturinn er af gerðinni Gáski 900 og er einn sex báta sem eru í viðskiptum hjá fyr- irtækinu“, segir Pálmi Stef- ánsson, stjórnarformaður Ís- firðings. „Báturinn kemur frá Keflavík og fylgja honum veiðiheimildir upp á 90 tonn af þorski.“ Staðarvík mun halda til línuveiða um leið og gefur. Ekki fæst gefið upp hver skip- stjóri bátsins verður. Vestfirðir Lífið á Vest- fjörðum sýnt Mynd sem ber heitið ,,Lífið á Vestfjörðum“ var sýnt í Rík- issjónvarpinu á sunnudaginn var. Myndin sem er tólf mín- útur að lengd er kostuð af Fjórðungssambandi Vestfirð- inga. Tilgangurinn með mynd- inni er að gefa landsmönnum rétta sýn af því mannlífi sem er á Vestfjörðum og að Vest- firðir séu áhugaverður val- kostur fyrir búsetu, en nokkuð hefur borið á því að Vestfirð- ingar telji að aðrir landsmenn hafi ekki rétta sýn af svæðinu. 06.PM5 19.4.2017, 09:212

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.