Bæjarins besta - 07.02.2001, Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 2001 3
STYRKVEITINGAR Á ÁRINU 2001
Menningarmálanefnd Ísafjarðarbæjar
auglýsir til umsóknar styrki nefndar-
innar á árinu 2001. Allir þeir er starfa
að lista- og/eða menningarmálum í
Ísafjarðarbæ (einstaklingar, félaga-
samtök eða stofnanir) eiga möguleika
á styrkveitingu samkvæmt nánari
ákvörðun nefndarinnar.
Umsóknarfrestur er til 28. febrúar
nk. Umsóknum ber að skila skriflega
á skrifstofu Ísafjarðarbæjar að Hafnar-
stræti 1 á Ísafirði, merkt: Menningar-
málanefnd, styrkveitingar 2001.
Formaður menningarmálanefndar.
LEIKSKÓLINN SÓLBORG
Leikskólakennara eða annað uppeldis-
menntað starfsfólk vantar á leikskól-
ann Sólborg. Vinnutími frá kl. 13:00
til 16:30 á yngri deild.
Nánari upplýsingar gefur leikskóla-
stjóri í síma 456 3185.
Frábært tækifæri!
Nýtt fyrirtæki í Reykjavík með þekkt vöru-
merki í skyndibita, leitar eftir samstarfsaðil-
um úti á landi. Um er að ræða uppsetningu
fyrir pizzasölu inni á útsölustöðum með lít-
inn færibanda pizzaofn og samlokugerð.
Þetta er frábært tækifæri fyrir þá sem eru
með söluturna, matsölustaði, söluskála eða
vídeóleigur og vilja auka veltuna til muna.
Einnig gæti þetta hentað samhentum aðilum
eða fjölskyldu sem vilja skapa sér nýtt at-
vinnutækifæri.
Verð aðeins kr. 1.150.000 + vsk. með
tækjum, hráefnum, umbúðum, uppskriftum,
auglýsingaefni og öðrum fylgihlutum. Þetta
er góð fjárfesting sem er fljót að borga sig,
tekur lítið pláss og mjög auðveld í fram-
kvæmd. Uppsetning er innifalin í verðinu og
hægt er að hefja sölu og framleiðslu sam-
stundis.
Upplýsingar eru gefnar í síma 864 0188.
Rannsóknamaður
– Líffræðingur–
Hafrannsóknastofnun auglýsir lausa til um-
sóknar stöðu rannsóknamanns við útibú
stofnunarinnar á Ísafirði. Starfið felst m.a. í
fjölbreyttri vinnu við öflun og úrvinnslu rann-
sóknagagna í landi og þátttöku í rannsókna-
leiðöngrum á sjó. Æskilegt er að umsækjend-
ur hafi BS-próf í líffræði eða sambærilega
menntun eða reynslu.
Umsóknir sendist stofnuninni fyrir 23.
febrúar. Nánari upplýsingar veita Hjalti Karls-
son útibúinu á Ísafirði í síma 456 3030
(hjalti@hafro.is) og Vignir Thoroddsen í síma
552 0240.
Hafrannsóknastofnunin,
Skúlagötu 4, 101 Reykjavík.
Aðalfundur
Aðalfundur HF. Djúpbátsins fyrir árið 2000
verður haldinn á Hótel Ísafirði laugardaginn
24. febrúar kl. 14:00.
Dagskrá:
Aðalfundarstörf. Tillaga um slit á félaginu.
f.h. stjórnar, Kristinn Jón Jónsson.
Slökkviliðsstjórarnir á Ísa-
firði, í Bolungarvík og í Súða-
vík leggja til, að öll slökkvilið
á norðanverðum Vestfjörðum
verði sameinuð í eitt og stofn-
að verði byggðasamlag um
rekstur þess. Þeir nefna mörg
fordæmi um slíkt á undan-
förnum árum í flestum lands-
hlutum. Í bréfi slökkvilisstjór-
anna til forráðamanna sveit-
arfélaganna rekja þeir margar
ástæður fyrir þessari tillögu,
svo sem kosti samnýtingar á
búnaði og tækjum, samhæfð-
ara og öflugra slökkvilið, fag-
legra eldvarnaeftirlit og betri
forvarnir. Einnig verði auð-
veldara að standa undir aukn-
um kröfum um formenntun,
símenntun og þjálfun slökkvi-
liðsmanna.
Jafnframt því sem þetta
muni auka öryggi íbúanna á
svæðinu telja þeir að slík
skipulagsbreyting muni
minnka kostnað við rekstur
þegar til lengdar lætur.
Slökkviliðsstjórarnir hafa
einnig samið drög að ítarleg-
um stofnsamningi fyrir
byggðasamlag um rekstur
sameiginlegs slökkviliðs.
Auk þess leggja þeir til, að
leitað verði eftir samningi við
Flugmálastjórn um þjónustu
á Ísafjarðarflugvelli, þannig
að þar verði vakt í tengslum
við komur og brottfarir flug-
véla. Þeir benda á, að slíkt
hafi þegar verið gert á öðrum
stöðum á landinu og nefna
m.a. Egilsstaði og Akureyri.
Slökkviliðsstjórarnir þrír
sem hér um ræðir eru Ólafur
Þ. Benediktsson í Bolungar-
vík, Þorbjörn Sveinsson á Ísa-
firði og Elvar Ragnarsson í
Súðavík. Viðkomandi sveitar-
stjórnir munu enn ekki hafa
tekið afstöðu til tillagna
þeirra. Umhverfisnefnd Ísa-
fjarðarbæjar telur að hér sé
hreyft máli sem hagkvæmt
kynni að vera. Hins vegar
bendir hún á, að málið sé póli-
tískt og þarfnist mikillar skoð-
unar og athugunar á fjárhags-
legri hagkvæmni.
Slökkviliðsstjórar á norðanverðum Vestfjörðum
Vilja að slökkviliðin verði sameinuð og
byggðasamlag stofnað um reksturinn
Tónlistarskólinn á Ísafirði opnaði dyr sínar fyrir bæjarbúum
Á þriðja hundrað manns
kynntu sér starfsemina
Opið hús var hjá Tónlistar-
skólanum á Ísafirði á laugar-
dag. Tilgangurinn með opnu
húsi var að styrkja tengsl bæj-
arbúa við skólann og vekja
athygli á því starfi sem þar á
sér stað. Haldnir voru þrennir
stuttir tónleikar með fjöl-
breyttu efni í hinum nýja tón-
leikasal skólans og hljóðfæra-
sýning skólans vakti mikla
lukku, sérstaklega meðal yng-
ri kynslóðarinnar. Opnuð var
ný heimasíða skólans á Netinu
og styrktarsjóður Tónlistar-
skólans seldi vöfflur og drykki
í tilefni dagsins.
„Þetta gekk í heildina mjög
vel“, sagði Kristinn Níelsson,
starfandi skólastjóri Tónlist-
arskólans. „Nærri 200 manns
skráðu nafn sitt í gestabók en
eflaust hafa einhverjir gleymt
að skrá sig. Gestagangurinn
fór hægt af stað, en það breytt-
ist verulega eftir hádegið. Ég
er ánægður með hvernig til
tókst og vil þakka öllum sem
komu. Einnig vil ég þakka
Trommusett skólans vakti athygli þessa unga pilts.
þeim sem lögðu hönd á plóg
og þá sérstaklega styrktar-
sjóðskonum sem stóðu sig eins
og hetjur“, sagði Kristinn.
Konurnar í eldhúsinu höfðu í nógu að snúast enda komu
rúmlega 200 gestir í heimsókn í skólann.
Haldnir voru þrennir stuttir tónleikar með fjölbreyttu efni í
hinum nýja tónleikasal skólans á laugardag
06.PM5 19.4.2017, 09:213