Bæjarins besta - 07.02.2001, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 2001 9
Hljómsveitin Impulse, sem skipuð er tveimur Vestfirðingum, þeim Rósa og Gutta frá Patreksfirði auk þriggja heimamanna.
2001. Þau Rósi og konan
hans, Elwyn Hunt, eiga fjögur
börn. Tvíburarnir John og
Matthew eru 19 ára, Katy er
16 ára og Jesse 12 ára. Dóttir
Rósa frá fyrra hjónabandi,
Elísabet Rakel, er 22ja ára og
býr í Reykjavík, en móðir
hennar er Hanna Lára Gunn-
arsdóttir sem á sínum tíma
var kennari á Ísafirði.
„Ég skrapp til Íslands árið
1992 og var í fjórar vikur.
„Elísabet var fermd á þessum
tíma. Það var sérstaklega
skemmtilegt að hitta allt þetta
fólk sem maður hafði haft
samskipti við áður fyrr. Elísa-
bet kom svo með mér til Nýja
Sjálands og var í nokkra mán-
uði hjá okkur. Afi hennar
amma í móðurættina gáfu
henni farmiðann í fermingar-
gjöf.
Stundum fæ ég fólk í heim-
sókn frá Íslandi. Ég verð að
geta þess að það var kærkomið
að fá í heimsókn hana frænku
mína, Elísabet Sigmarsdóttur,
sem er dóttir Katý systur. Hún
kom 1997 og var yfir áramótin
og dvaldist hérna í sex vikur.“
Ungir knatt-
spyrnumenn
Matthew, annar tvíburanna,
er búinn að vera í íþróttaskóla
í Auckland í eitt ár og æfir
reglulega með liðinu Auck-
land Kingz. Það er eina at-
vinnuknattspyrnuliðið á Nýja
Sjálandi og spilar á móti ástr-
ölskum liðum. „Hann er að
stefna að því að verða atvinnu-
maður og mun kannski reyna
fyrir sér í Þýskalandi í sept-
ember á þessu ári. Þannig er
mál með vexti að yngsti strák-
urinn minn, hann Jesse, sem
er góður í fótboltanum, hefur
verið valinn til að fara til
Þýskalands með liði sem
heitir Western Park Rangers
(heimasíða liðsins er http://
communities.msn.com/new-
zealandwesternparkranger-
slasers). Þjálfari liðsins er
þýskur og hefur góð sambönd
í Þýskalandi og hefur boðist
til að koma Matthew á fram-
færi svo hann geti reynt fyrir
sér í fyrstu deildinni þar.“
Golf, píanó, netbolti,
frumbyggjafræði...
John, hinn tvíburinn, er í
viðskiptafræðinámi í háskóla
í Palmerston North og gengur
vel. „Hann spilar fótbolta hjá
toppliðinu þar. John er góður
í golfi eins og Matthew og
báðir eru með sama handy-
cap eða forgjöf sem er 8.“
Katy er ennþá í gagnfræða-
skóla. „Hún hefur líka lært á
píanó og vill verða söngkona
í framtíðinni. Katy er ekki
mikið fyrir íþróttir en spilar
netbolta fyrir skólann. Hún
hefur áhuga á listum og að
læra siði og tungumál Maoría
[frumbyggjanna].“
Jesse á eitt ár eftir í barna-
skólanum en er jafnframt að
læra á trompet. „Hann er mik-
ið í íþróttum því að hann vill
ekki vera eftirbátur eldri bræð-
ra sinna. Hann spilar fótbolta
fyrir Knattspyrnufélag Ingle-
wood og fyrir Taranaki, en
það er héraðsliðið sem spilar
á móti öðrum héruðum. Jesse
spilar rugby fyrir skólann og
golf og krickett. Hann er ekki
alveg búinn að ná bræðrum
sínum vegna þess að þeir spil-
uðu líka körfubolta.“
Elwyn
Að vera með alla þessa
krakka sem taka þátt í öllum
þessum íþróttum ásamt öðru
þýðir miklar keyrslur. „Við
erum 12 kílómetra frá næsta
bæ sem er Inglewood og 30
kílómetra frá New Plymouth.
Aksturinn hefur að mestu leyti
Jesse, yngsti sonur þeirra Elwyn og Rósa, er sérlega efnilegur
knattspyrnumaður.
Rósi fékk fótboltabakteríuna um fertugt. Hann er með full þjálfararéttindi og spilar ennþá af fullum krafti þó að hann hafi
ætlað að hætta fimmtugur.
mætt á Elwyn. Hún hefur ver-
ið óþreytandi að fara með þau
út um allt og hefur alltaf hvatt
þau að taka þátt í sem mestu.“
Elwyn sér um rekstur heim-
ilisins og hluta af bókhaldinu
en sendir svo afganginn til
bókhaldskrifstofu í Ingle-
wood. Hún vinnur á barna-
dagheimili tvö daga í viku í
New Plymouth og hefur líka
setið á skólabekk einu sinni í
viku. „Hún er nú komin með
réttindi til að reka sitt eigið
barnadagvistunarheimili ef
hún vildi“, segir Rósi, „en
vegna heildunnar hefur hún
engan áhuga á því.“
Fyrir um níu árum kom í
ljós að Elwyn er með sjúk-
dóminn Multiple Sclerosis
(MS) og hefur þessi sjúkdóm-
ur háð henni talsvert í gegnum
árin. „Einkennin eru margvís-
leg og má þar nefna að stund-
um taka fótleggirnir ekkert
mark á hvað heilinn skipar
fyrir og svo er ógurleg þreyta.
Þetta gengur svona upp og
niður en sem betur fer hefur
hún ekki þurft á hjólastól að
halda.“
Von á gestum
Rósi segir að í byrjun næsta
mánaðar eigi þau von á gest-
um frá Íslandi. „Það eru stór-
vinir okkar frá Ísafirði, Örn
Ingólfsson í Póls og Guðný
Þórhallsdóttir og Dúddi Guð-
munds bifvélavirki og Þórdís
kona hans. Við ætlum að hitta
þau í Auckland og eyða smá-
tíma með þeim. Það verður
gaman að sjá þau aftur.“
Katy, dóttir Rósa hyggur á söngnám og nám í fræðum
frumbyggjanna.
Spænskunámskeið
Boðið verður nú á vorönn upp á byrjunar-
nám í spænsku (SPÆ 102) í kvöldskóla
(öldungadeild) Menntaskólans á Ísafirði, ef
áhugi er nægur.
Væntanlegir þátttakendur skrái sig nú
þegar á skrifstofu skólans.
Skólameistari.
Hnífsdals-
kapella
Kirkjuskóli sunnudaginn
11. febrúar k. 13:00.
Guðsþjónusta kl. 14:00.
Byggjum upp fjölskylduna.
Göfgum andann.
Sóknarpresturinn.
06.PM5 19.4.2017, 09:219