Bæjarins besta - 07.02.2001, Qupperneq 5
MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 2001 5
Nemendurnir
kenna mér
íslensku og
ég kenni
þeim þýsku
smáar
– spjallað við Stefan Gunther, kennara við Menntaskólann og hefur á skömmum tíma náð furðu góðum tökum á íslensku máli
Í haust kom til Ísafjarðar
Stefan Gunther frá bænum
Bergholz í austurhluta Þýska-
lands. Hann hafði ráðið sig til
starfa hjá Menntaskólanum á
Ísafirði og hefur kennt þýsku
þar í vetur. Við hittum Stefan
í kennslustofu hans í Mennta-
skólanum og það kemur á
óvart, að þrátt fyrir stutta dvöl
Þjóðverjans á Íslandi er hann
farinn að tala íslenska tungu
furðulega vel.
„Nemendur mínir hjálpa
mér mikið. Þeir kenna mér
íslensku og ég kenni þeim
þýsku. Ég hef alltaf verið
þeirrar skoðunar að menn eigi
að leggja mikið á sig til að
aðlagast og þá er tungumálið
lykillinn að því.“
Finnur sér alltaf
eitthvað að gera
Bergholz, heimabær Stef-
ans, er engu stærri en Ísafjörð-
ur. „Þar búa um 3.000 manns.
Ég er þess vegna mjög vanur
því að búa í bæ af þessari
stærðargráðu. Ég kann ekkert
sérstaklega vel við umferð og
asa stórborga. Þess vegna líkar
mér vistin á Ísafirði ágætlega.
Ég hef lítinn frítíma og lendi
aldrei í neinum erfiðleikum
með að finna mér eitthvað að
gera. Til dæmis les ég mikið
og fer í gönguferðir.
Ég get ekki sagt að mér hafi
leiðst nokkuð í kennaraverk-
fallinu. Að sjálfsögðu var leið-
inlegt að lenda í verkfalli og
þá sérstaklega nemendanna
vegna, en mér tókst alltaf að
finna mér eitthvað að gera.
Ég gat ekki farið til Þýska-
lands. Staðan var þannig frá
fyrsta degi verkfallsins að
kennsla gat alltaf hafist næsta
dag.“
Leiðist ekki
á Ísafirði
Stefan finnst þægilegt að
allir þekki alla á Ísafirði. „Ég
hef eignast marga kunningja
sem mér finnst gaman að
heimsækja. Sjálfur kem ég úr
litlum bæ og er vanur því að
allir kannist við alla.
Ég horfi lítið sem ekkert á
sjónvarp og kom það nemend-
um mínum mikið á óvart.
Frekar vil ég vinna, lesa og
skoða mitt nánasta umhverfi.
Þannig hef ég skoðað ná-
grannabæina og fór meðal
annars í fiskvinnsluna Kamb
á Flateyri og á dúkkusafnið.
Þó að bíósýningar séu ekki
eins tíðar og í Reykjavík og
framboð á afþreyingarefni
minna, þá er langt frá því að
mér leiðist á Ísafirði.“
Róstusamt á Kýpur
Eins og áður segir er Stefan
frá Bergholz. „Bærinn er stutt
frá Berlin og tilheyrði Austur-
Þýskalandi fyrir sameiningu.
Ég gekk því í austur-þýska
herinn þegar ég var nítján ára
gamall og var í honum í 18
mánuði eins og lög sögðu til
um.
Að herskyldu lokinni fór
ég í háskólann í Potsdam og
lagði stund á stjórnmálafræði
og viðskiptafræði. Ég tók
kennsluréttindi og fór að námi
loknu að kenna við grunn-
skóla í Berlin.
Mig langaði að fara til út-
landa og fór árið 1996 til Kýp-
ur. Þar vann ég sem almenn-
ingstengslafulltrúi hjá hótel-
keðju einni í nokkurn tíma.
Eins og menn vita, þá réðust
Tyrkir á Kýpur árið 1974 og
hefur verið róstusamt á eynni
síðan þá. Ástandið var frekar
slæmt þegar ég var þarna og
nokkrir hermenn voru skotnir.
Ég ákvað því að fara aftur
heim til Þýskalands.“
Verður lengur
en einn vetur
Ekki leið langur tími þar til
Stefan fór aftur að langa til
útlanda. „Mig langaði mikið
til að prófa eitthvað nýtt og
vildi kenna í öðru landi. Ég
leit helst til Norðurlandanna
og Kanada í því sambandi.
Mig langaði að kenna í litlum
bæ og fann engan heppilegan
smábæ í Skandinavíu og vissi
að það yrði erfitt að fá at-
vinnuleyfi í Kanada. Ég átti
greiðan aðgang að atvinnu-
leyfi á Íslandi vegna EES-
samningsins og ákvað því að
koma til landsins.
Ég sótti um í Menntaskól-
anum á Ísafirði og fékk starfið.
Þegar ég var nýkominn til bæj-
arins spurði Björn Teitsson
skólameistari mig hversu
lengi ég hygðist vera við skól-
ann. Ég sagði honum að það
væri ekki ákveðið, en ég ætl-
aði að vera lengur en í einn
vetur. Ég held að hann hafi í
upphafi haft litla trú á því að
ég stæði við þetta en ég var að
meina það sem ég sagði. Ég
ætla að vera lengur en bara í
eitt ár. Hversu miklu lengur
verður bara að koma í ljós.“
Sló um sig með
flóknum orðum
Í þýskutímum hjá Stefan
eru töluð þrjú tungumál. „Ég
reyni að tala sem mesta þýsku
við krakkana svo að þeir læri.
Þegar útskýra þarf hlutina,
málfræðihugtök og annað, þá
tala ég íslensku. Örsjaldan
þarf ég að grípa til ensku en
forðast það eins og heitan eld-
inn og bið oft nemendurna
afsökunar ef ég tala ensku.
Fljótlega var ég farinn að
slá um mig á íslensku. Krakk-
arnir voru mjög hissa á því að
ég kynni orð eins og „viðteng-
ingarháttur“ og „núþálegar
sagnir“. Ástæðan var ekki sú
að ég talaði tungumálið svona
vel, heldur undirbjó ég mig
alltaf fyrir tíma og lærði
ákveðin orð fyrir hverja
kennslustund. Ef kenna átti
til dæmis núþálegar sagnir,
þá lærði ég að segja „núþá-
legar sagnir“ á íslensku.“
Sinn er siður
í hverju landi
Þó að Stefan sé ótrúlega
langt á veg kominn í íslensku-
náminu, þá á hann margt
ólært. „Þegar ég hlusta á út-
varpið skil ég alls ekki allt
sem sagt er. Menn eiga það til
að tala svo hratt. Nemendur
mínir eiga það líka til að tala
hratt og nota orð sem ég ein-
faldlega finn ekki í orðabók.“
Þjóðverjar eru frægir fyrir
stundvísi. Fer óstundvísi ís-
lenskra nemenda ekkert í
taugarnar á honum? „Sinn er
siður í hverju landi. Eins og
ég sagði, þá legg ég mikla
áherslu á að aðlagast. Auð-
vitað vita allir nemendur að
það er ekki í lagi að koma of
seint. Hingað til hef ég sjálfur
mætt á réttum tíma í skólann
og yfirleitt gera nemendurnir
það líka.“
Ferðast líklega
eitthvað í sumar
Stefan býst við því að fara
til Þýskalands í sumarleyfinu.
„Ég ætla að skreppa í þrjár til
fjórar vikur og heimsækja vini
og ættingja. Ég vil samt eyða
sem mestum tíma á Íslandi og
ætla kannski að reyna að fá
mér einhverja vinnu í sumar,
ferðast um landið með bak-
poka eða bara hafa það náð-
ugt.
Engin verslun eftir á Flateyri
Verslunin Félagskaup á
Flateyri hætti rekstri um
áramótin. Eina „venjulega“
búðin sem þar var eftir er
þar með úr sögunni. Hins
vegar fæst „allt mögulegt“
hjá Esso á Flateyri og þar er
hægt að fá helstu nauðsynj-
ar. Eftir að Bónus opnaði
verslun á Ísafirði fyrir bráð-
um tveimur árum virðast
stöðugt fleiri leggja leið
sína úr næstu byggðarlög-
um í verslunarerindum til
Ísafjarðar. „Þetta versnaði
enn eftir að Bónus fór að
taka við kreditkortum“, seg-
ir Kristín Ágústsdóttir, sem
rak Félagkaup á Flateyri.
Samkaup eru einnig með
verslun á Ísafirði og má ætla
að hún njóti einnig góðs af
viðskiptum við grann-
byggðirnar. Sama má segja
um ýmsar sérverslanir og
önnur þjónustufyrirtæki á
Ísafirði.
Og ekki aðeins hefur fólk
úr næstu byggðarlögum
aukið verslun sína á Ísafirði.
Blaðinu er kunnugt um fólk
allt suður á Patreksfirði sem
hefur farið í verslunarferðir
til Ísafjarðar í vetur. Venju-
lega hefur leiðin milli norð-
ursvæðis og suðursvæðis
Vestfjarða verið lokuð lang-
an tíma á hverjum vetri
vegna snjóa. Einkum hefur
vegurinn yfir Hrafnseyrar-
heiði verið farartálmi og oft
ófær í marga mánuði. Í vetur
hefur þessi leið aftur á móti
lengst af verið greiðfær.
Samkeppnin
við Bónus erfið
Til sölu er Craco barna-
kerra, ný með tveimur
svuntum. Uppl. í síma 456
8444 eftir kl. 20.
Óska eftir tveimur pörum
af gönguskíðum fyrir full-
orðna og átta ára barn.
Uppl. í síma 456 5151.
Til sölu er Chrysler Le
Baron GTS árg. 1989. Verð
kr. 100 þús. Upplýsingar í
síma 866 3326.
Til leigu er íbúð á Eyrinni
á Ísafirði. Upplýsingar í
síma 864 1341.
Aðalfundur Sundfélags-
ins Vestra verður haldinn
mánudaginn 12. febrúar
kl. 20:00 í kjallara Sund-
hallarinnar. Stjórnin.
Til sölu er 3ja-4ra herb.
íbúð á Eyrinni. Uppl. í síma
456 5264 eða 690 2100.
Til sölu er 3ja herb. íbúð
að Stórholti 13. Skipti á
húsi á Suðureyri koma til
greina. Uppl. í símum 456
6249 eða 899 0709.
Ég er unglingsstúlka sem
er að fara að búa. Mig vantar
nokkra hluti í íbúðina s.s.
sófasett, ísskáp, örbylgju-
ofn og þvottavél, helst gef-
ins eða fyrir lítinn pening.
Uppl. gefur Elísabet í síma
869 5381.
Til sölu er Emmaljunga
barnavagn, þrír í einum
með kerrupoka og tösku.
Einnig barnarúm úr eik
með öryggisdýnu og hækk-
anlegum botni. Allt í góðu
standi. Uppl. gefur Karen í
síma 692 5793.
Óskum eftir að kaupa 20
feta stálgám. Uppl. í símum
456 4531 eða 862 9868.
Sá sem tók nýju Skarpa-
gönguskóna mína úr and-
dyri Grunnskólans á Ísa-
firði er vinsamlegast beð-
inn að skila þeim þangað
aftur. Þeirra er sárt saknað,
sérstaklega innleggjanna.
Berglind.
Til sölu eða leigu er 3ja
herb. íbúð að Engjavegi 17,
kjallara. Uppl. í símum 456
5177 eða 867 0397.
Til sölu er húsið að Engja-
vegi 24 á Ísafirði. Húsið er
4-5 herb. og 121 m² að
stærð. Góður sólpallur og
gróinn garður. Besti staður
í bænum. Áhvílandi er 4,5
millj. króna húsbréfalán.
Gestur losnað strax. Uppl.
í símum 456 4737 eða 868
6626 (Silla) eða 861 8996
(Guðjón).
Óska eftir að kaupa vel
með farið sófasett, sófaborð
og kommóðu. Uppl. gefur
Branka í síma 456 6715.
Óska eftir að kaupa Soda
Stream tæki og svigskíði
fyrir sjö ára barn. Uppl. í
síma 456 4640 eftir kl. 19.
Vantar ekki einhvern hús
á pallbílinn sinn? Hef hús
af MMC L 200 sem passar
líka á Toyota og aðra sam-
bærilega bíla. Verð kr. 50
þús. stgr. Upplýsingar í
síma 697 7519.
Til sölu er 3ja herb. íbúð á
neðri hæð að Skólastíg 19 í
Bolungarvík. Uppl. hjá
Tryggva Guðmundssyni
hdl. eða í síma 462 7499.
Vestfirðingar! Ef þið þurf-
ið að fara til Reykjavíkur,
þá höfum við góða íbúð
handa ykkur í hjarta borg-
arinnar. Uppl. í símum 567
0092 eða 568 3296.
Búslóð til sölu vegna flutn-
ings. Boxdýna með króm-
fótum, 140x200, verð kr.
15 þús., glerborð með
krómfótum, kr. 15 þús. og
skápasamstæða með gler-
skáp, kr. 15 þús. Uppl. í
síma 697 7519.
Til sölu er Hino árg. 1988
og Mercedes Benz árg.
1982. Upplýsingar gefur
Sophus í símum 893 8355
eða 853 8355.
06.PM5 19.4.2017, 09:215