Bæjarins besta - 07.02.2001, Side 6
6 MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 2001
Við erum hérna nokkrir stútungskallar...
Stútungur, þorrablót Önfirðinga, það 67. í röð-
inni, var haldið í íþróttahúsinu á Flateyri á laugar-
dag. Um 200 manns sóttu þorrablótið, jafnt heima-
menn og aðrir. „Það er alltaf að aukast að fólk
komi frá fjörðunum í kring“, segir Hálfdán Krist-
jánsson, sem var veislustjóri. „Að venju var byrjað
á því að flytja Önfirðingaljóðið. Síðan var farið
með hefðbundin gamalmál, fluttur annáll fyrir
liðið ár og níðst á skemmtinefndinni.“
SKG-veitingar sáu um að fóðra mannskapinn.
„Boðið var uppá þorramat, en menn gátu fengið
pottrétt eða kjúkling ef þeir vildu ekki súrsaða
punga og slíkt. Að borðhaldi loknu var stiginn
dans við tónlist Baldurs og Margrétar. Hljómsveit-
in stóð sig með eindæmum vel og voru að jafnaði
um 60 manns á dansgólfinu í einu. Menn voru
sammála um að þetta hefði verið góður Stútungur“,
sagði Hálfdán.
Nafnið Stútungur hefur sögu á bakvið sig. „Eitt
sinn rituðu tveir menn í Önundarfirði bréf til
hjóna sem hófst á orðunum: Við erum hérna
nokkrir stútungskallar. Voru þeir að hvetja til þess
að haldinn yrði dansleikur og hefur máttur orða
þeirra verið svo mikill að leikar hafa verið haldnir
67 sinnum síðan þetta var ritað“, sagði Hálfdán.
Meðfylgjandi myndir voru teknar á þorrablótinu
og tala þær sínu máli.
06.PM5 19.4.2017, 09:216