Bæjarins besta


Bæjarins besta - 07.02.2001, Page 12

Bæjarins besta - 07.02.2001, Page 12
12 MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 2001 Stakkur skrifar Flutningur starfa út á land Netspurningin Stakkur hefur ritað vikulega pistla í Bæjarins besta í mörg ár. Skoðanir hans á mönnum og málefnum hafa oft verið umdeildar og vakið umræður. Þær þurfa alls ekki að fara saman við skoðanir útgefenda blaðsins. Þrátt fyrir það bera ábyrgðarmenn blaðsins ábyrgð á skrifum Stakks á meðan hann notar dulnefni sitt. Netspurningin er birt viku- lega á bb.is og þar geta lesendur látið skoðun sína í ljós. Aðeins er tekið við einu svari frá hverri tölvu. Niðurstöðurnar eru síðan birtar hér. Spurt var: Viltu að létt- vín og bjór verði selt í matvöru- verslunum? Alls svöruðu 741. Já sögðu 437 eða 58,97% Nei sögðu 304 eða 41,03% SÖGUFÉLAG ÍSFIRÐINGA Aðalfundur Aðalfundur Sögufélags Ísfirðinga verður haldinn á Hótel Ísafirði, fimmtudaginn 8. febrúar kl. 20:30 Dagskrá: 1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins. 2. Reikningar félagsins lagðir fram til afgreiðslu. 3. Talning atkvæða og lýst stjórnarkjöri. 4. Tillögur um starfsemi félagsins. 5. Önnur mál. Félagar eru minntir á að póstleggja kjörseðil til stjórnarkjörs. Stjórn Sögufélags Ísfirðinga. Heilsa og heilbrigði árið 2001 á Ísafirði Guðbjörg Rós Sigurðardóttir, skóla- hjúkrunarfræðingur á Ísafirði skrifar ,,... að börnin þeirra sofi vel og komi södd og sæl í skólann“ „Heilsa og heilbrigði 2001“ er átaksverkefni sem Grunn- skólinn á Ísafirði stendur fyrir ásamt íþróttafélögum á Ísa- firði og fleiri samstarfsaðilum. Markmiðið er að efla vitund allra um mikilvægi heilbrigðs lífsstíls barna og unglinga og fá þau til að hugsa um heilsu sína. Átaksverkefnið mun standa til febrúarloka en einn- ig munu kennarar tengja verk- efnið inn í kennsluna á vor- önninni. Þáttur foreldra er ekki síður mikilvægur en kennara og nemenda, því að þegar slíkt átak er í gangi í skólanum er mikilvægt að það haldi áfram þegar barnið eða unglingurinn kemur heim. Börn og ungl- ingar þurfa að borða hollan mat, fá nægan svefn og hreyfa sig, þannig að þeim líði vel, og það er hlutverk foreldra að sjá til þess hjá sínu barni, hvort sem það er í skólanum eða heima. Morgunverðurinn er mikil- vægasta máltíð dagsins og því er nauðsynlegt að börn sem eru allan daginn í skólanum byrji daginn vel með staðgóð- um morgunverði sem nýtist þeim allan daginn. Ef ekki gefst tími til að neyta morgun- verðar, svo sem morgunkorns, brauðsneiðar eða hafragrauts, þá er gott að eiga ávexti eða djús í ísskápnum sem börnin geta gripið með sér á leiðinni í skólann. Það þarf ekki að vera mikið sem börnin borða en best er ef foreldrar og börn geta sest niður og borðað morgunverð í rólegheitunum áður en farið er af stað á morg- nana. Svefninn er ekki síður mik- ilvægur en börn á skólaaldri þurfa yfirleitt að sofa 10 klst. á sólarhring. Svefninn endur- nýjar orku líkamans og ef börnin eru ekki vel hvíld, þá eiga þau erfiðara með að halda einbeitingu í skólanum, sem kemur m.a. niður á námsár- angri barnsins. Það er von mín að foreldrar taki þátt í átaksverkefninu með skólanum og stuðli að því að börnin þeirra sofi vel og komi södd og sæl í skólann, því það er lykillinn að vellíðan þeirra. Guðbjörg Rós Sigurðar- dóttir,skólahjúkrunar- fræðingur á Ísafirði. Tveir nýir 20 manna Mercedes-Benz bílar með drifi á öllum Hópferðabílstjórar yngja upp hjá sér Tveir 20 manna bílar bættust við hópferða- bílakostinn á norðan- verðum Vestfjörðum fyrir skömmu. Þá komu þeir Kári Guðmundsson í Bolungarvík og Sophus Magnússon á Ísafirði akandi vestur í samfloti á nýjum Benzum beint frá umboðinu. Hér er um athyglisverða uppyngingu í bílaflotan- um hér vestra að ræða. Nýjasti bíllinn af þessari stærð sem er fyrir á svæðinu er tíu ára bíll í eigu Kára. Bílarnir sem Sophus á fyrir eru tólf ára og nítján ára. Friðfinnur Sigurðsson á Þingeyri á hins vegar tvo nýlega fimmtán manna bíla og fleiri minni bílar eru nýlegir á svæðinu. Nýju bílarnir eru vel útbúnir til fjallaferða og góðir í ófærð, því að þeir eru með drifi að aftan og framan og með háu og lágu drifi. Þeir eru eins að öðru leyti en því, að bíll Sophusar er grár en bíll Kára er grænn. Þeir munu kosta um sjö og hálfa milljón hvor. Kári og Sophus við nýju bílana. Oft hefur verið á það bent að lítið hafi verið mark takandi á yfirlýsingum alþingismanna og ríkisstjórnar um flutning starfa frá Reykjavík og út á land. Því er vert að geta þess sem vel er gert. Samgönguráðherra, Sturla Böðvarsson, sýnir í verki hug sinn til landsbyggðarinnar. Ein af helstu stofnunum er undir hann heyra, Vegagerðin, er nú að flytja þjónustudeild sína til Ísafjarðar og þar verður svarað í síma. Þjónustudeildinni fylgja fjögur störf og verða þau væntanlega vel þegin. Með framtaki samgönguráðherra er augljóst að vilji er allt sem þarf. Eitt helsta vandamál Reykvíkinga og nágranna varðandi atvinnulífið er skortur á vinnuafli og dýrt atvinnuhúsnæði. Hvorugt er uppi á teningnum á Vestfjörðum. Hér eru það fremur samgöngurnar, sem eru mörgum þyrnir í augum. Á hinn bóginn hefur oft verið bent á þá staðreynd að vegakerfið hefur batnað á Vestfjörðum. Breytingunum verður einna helst líkt við byltingu. Fyrir áratug óku menn ekki á milli Ísafjarðar og annarra landshluta ótilneyddir að vetrarlagi. Nú er það raunhæft val, flug eða bíll. Vegir hafa batnað svo mikið að samgöngur á sjó eru að leggjast af. Vara er flutt með bílum og póstur sömuleiðis. Póstferðir og ferðir flutningabíla falla mun sjaldnar niður en flug. En auðvitað vilja íbúar hér betri vegi. Hér sannast hið fornkveðna, framfarir kalla á enn meiri framfarir. Kjarni þess sem hér er vikið að er einfaldlega sá, að vinnuafl og ódýrt húsnæði er til á Vestfjörðum. Sú staðreynd kallar á hugmyndir um annars konar nýtingu en fyrr. Gott dæmi er framtak þeirra er stýra 3X Stál á Ísafirði. Frammi fyrir nauðsyn á stærra húsnæði völdu þeir ónotaða rækjuverksmiðju. Sá kostur reynist mun ódýrari en hefði verið farin sú leið að afla húsnæðis syðra og flytja rekstur- inn. Þetta val er einnig opið fyrirtækjum, sem nú starfa annars staðar á landinu. Þrautin er aðeins ein, að koma hugmyndinni rækilega á framfæri. Ríkisvaldið hefur sjáanlega staðið mun betur að verki í dæminu að framan en sveitarstjórn. Reyndar kann að vera að bæjarstjórn sinni að einhverju leyti þessu starfi, að fá störf á vegum ríkisins flutt hingað. Ekki ber þó á því ef frá eru talin kosningaloforð, sem virðast svo liggja í skúffum milli kosninga. Nú er ekki nema rúmt ár í næstu kosn-ingar til sveitarstjórna. Sveitarfélagið þarf að sinna því að aug-lýsa kostina sem í því búa, bæði fólk, húsnæði, skóla og annan mannúðlegan aðbúnað. Grunnskólinn á Ísafirði er í sókn. Menntaskólinn býður ýmsa möguleika. Enn skortir þó á möguleika til fjarnáms. Á þeim vettvangi er þörf mikils átaks. Samgönguráðherra og Vegagerðin eru hvött til dáða og hin ráðuneytin einnig. En heimavinna heimamanna er eftir. Í heimi auglýsinga og stöðugrar baráttu um athygli fólks er Vestfirðingum lífsnauðsynlegt að halda fram sínum hlut í þessum efnum sem öðrum. Starfsmenn fyrirtækja, sem með þeim flyttu, ættu kost á íbúðarhúsnæði á viðráðanlegu verði, góðum skólum og gefandi mannlífi, auk margs annars. Það er nokkurs virði. 06.PM5 19.4.2017, 09:2112

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.