Bæjarins besta - 31.10.2001, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 2001
LEIÐARI
Þarna liggja rætur, menning og þekking
Umboðs-
aðilar BB
Eftirtaldir einstaklingar sjá um
sölu og dreifingu á BB á þétt-
býlisstöðum utan Ísafjarðar:
Bolungarvík: Nikólína Þor-
valdsdóttir, Hjallastræti 38,
sími 456 7441. Súðavík: Sindri
V. Gunnarsson, Holtagötu 11,
sími 456 4982. Suðureyri:
Deborah Anne Ólafsson, Aðal-
götu 20, sími 891 7738. Flat-
eyri: Gunnhildur Brynjólfsdótt-
ir, Brimnesvegi 12a, sími 456
7752. Þingeyri: Selma Rut
Sófusdóttir, Hlíðargötu 40, sími
456 8269.
Frá útgefendum:
Útgefandi: H-prent ehf. Sólgötu 9, 400 Ísafjörður, sími 456 4560, fax 456 4564 • Netfang prentsmiðju: hprent@bb.is • Ritstjóri: Sigurjón J. Sigurðsson, sími 892 5362, netfang:
bb@bb.is• Ritstjóri netútgáfu: Hlynur Þór Magnússon, símar 456 7322 og 862 1874, netfang: blm@bb.is • Blaðamaður: Sigurður Pétursson, sími 456 3139, netfang: siggip@bb.is
• Ljósmyndari: Halldór Sveinbjörnsson, sími 894 6125, netfang: halldor@bb.is • Fréttavefur: www.bb.is • Lausasöluverð er kr. 200 eintakið m. vsk. • Áskriftarverð er kr. 170 eintakið
• Veittur er afsláttur til elli- og örorkulífeyrisþega. Einnig sé greitt með greiðslukorti • Eftirprentun, hljóðritun, notkun ljósmynda og annars efnis er óheimil nema heimildar sé getið.
Þær systur Bryndís og
Helga Birna Jónsdætur á Ísa-
firði hyggjast opna verslun í
Aðalstræti á Ísafirði í byrjun
næsta mánaðar.
„Í búðinni verða seldar
ýmsar vörur fyrir konur og
karla. Upphaflega ætluðum
að selja nærfatnað en þess
konar búðir hafa sprottið upp
eins og gorkúlur í bænum að
undanförnu og þess vegna var
fallið frá þeirri hugmynd“,
sagði Bryndís.
Verslunin verður þar sem
raftækjasala Pólsins var áður.
„Við tökum yfir allan trévöru-
lager Pólsins og komum til
með að selja þær vörur ásamt
öðru“, segir Bryndís.
Ný verslun í
Aðalstræti
Ísafjörður
Sögur herma hvernig mörgum samfélögum frumbyggja var útrýmt. Hvernig
„siðmenntaði“ maðurinn sölsaði undir sig lendur þeirra, upprætti siðmenningu
þeirra og, þegar best lét, skammtaði þeim skít úr hnefa og kom þeim fyrir sem sýn-
ingargripum á afmörkuðum landsvæðum. Heimildir geyma einnig frásagnir
um veiðimannasamfélög við sjávarsíðuna. Hvernig stoðum var kippt und-
an lífsafkomu fólksins, hvernig því var bannað að nýta sér gjafir náttúrunnar,
sem það hafði lifað á öldum saman. Gjafir, sem það hafði aldrei gengið nær
en dygði til framfærslu vegna þess að græðgi var óþekkt hugtak; hvernig troðið var
upp á fólkið lífsvenjum, sem það kærði sig ekkert um; hvernig líf þess var lagt í rúst
jafnvel til þess eins að þóknast fólki sem ekkert þarfara hafði með tíma sinn og pen-
inga að gera en að leggja stein í götu þessara náttúrubarna undir yfirskyni dýraverndar.
Nýverið féllu þau orð á Alþingi að eðlilegt væri að hinar dreifðu byggðir hefðu
forgang til nýtingar nálægra auðlinda. Þetta má orða svo að skynsamlegt sé að
náttúrugæðin séu nýtt af því fólki sem næst þeim býr. Þessu viðhorfi hefur skotið
upp áður. Hins vegar er málið svo hápólitískt að þingmenn hefur skort áræði til að
taka það til vitrænnar umræðu. Byggðastefna hefur um árabil verið ein af skraut-
fjöðrum stjórnvalda. Hver ríkisstjórnin af annarri hefur sett sér það markmið að efla
landsbyggðina, fjölga þar fólki og störfum á vegum hins opinbera. Afraksturinn er
kunnur. Opinberum störfum fækkar stöðugt á landsbyggðinni en fjölgar margfalt í
Reykjavík. Orð eru tíðum eitt og efndir annað. Í leiðara BB hefur því verið haldið
fram að árangursríkasta byggðastefnan fælist í því að leyfa landsbyggðarfólkinu að
vera í friði fyrir ofstjórn stjórnvalda og fá að búa í sátt og samlyndi við um-
hverfi sitt, hafandi rétt til nýta á skynsamlegan hátt þau gæði sem landið og
hafið úti fyrir gefa þeim.
Að íslenskir stjórnmálamenn skuli við upphaf 21. aldarinnar telja
sér trú um að besta leiðin til að styrkja landsbyggðina sé að byrja á því að leggja þær
byggðir í auðn sem ennþá lifa að nafninu til, er með ólíkindum. Og síðan komi þeir
í hlutverki hins opinbera leikstjórnanda og skipi íbúunum í alls kyns hlutverk sem
eru á skjön við allan raunveruleika. Íbúa sjávarþorpa dreymir um framfarir ekki síð-
ur en aðra landsmenn. Enginn þeirra mælir gegn fjölbreytni í atvinnulífi. Það er hægt
að bæta og breyta sviðsmyndinni. En að láta sér detta í hug að rústa sjálfa undirstöðuna
og ætla sér að gera þessi pláss að einhverju allt öðru en þau eru í dag, er hrein og klár
heimska. Þarna liggja rætur, menning og þekking, sem íslenska þjóðin hefur ekki
efni á að kasta frá sér.
Mál er að íslenskir stjórnmálamenn vakni af dvalanum.
s.h.
Lögreglan á Ísafirði tók ölv-
aðan ökumann á leiðinni milli
Ísafjarðar og Hnífsdals um
hálffjögurleytið aðfaranótt
laugardags. Hann var stöðv-
aður við reglubundið eftirlit
þar sem lögreglan var að stöð-
va bíla og athuga með réttindi
og ástand ökumanna.
Að öðru leyti var liðin helgi
afar róleg og tíðindalítil hjá
Ísafjarðarlögreglu.
Ölvaður öku-
maður tekinn
Ísafjörður
Byggðarlög í sókn og vörn – landsbyggðarkjarnar
Samfélagið hæfilega stórt en hefur
þjónustu á við stærra bæjarfélag
– segir m.a. í nýrri greiningu Byggðastofnunar á kostum og göllum Ísafjarðar
Í nýrri úttekt Byggðastofn-
unar, Byggðarlög í sókn og
vörn, 2. Landsbyggðarkjarnar,
er á kerfisbundinn hátt metin
staða nokkurra byggðakjarna
utan Reykjavíkursvæðisins,
eins í hverjum landshluta.
Markmið þessarar greiningar
er að finna staðbundin sókn-
arfæri varðandi atvinnu og bú-
setu á landsbyggðinni. Áður
hefur Byggðastofnun gert
hliðstæða úttekt á stöðu ís-
lenskra sjávarbyggða. Þættir-
nir sem metnir eru sérstaklega
í þessari nýju greiningu eru
styrkur og veikleikar, ógnanir
og tækifæri.
Fjallað er um byggðarlög
sem eiga það sameiginlegt að
byggja atvinnu sína öðru
fremur á verslun og þjónustu
og eru verslunar- og þjónustu-
kjarnar og miðstöðvar stjórn-
sýslu, hvert á sínu landsvæði.
Á Vestfjörðum er þannig gerð
úttekt á stöðu mála á Ísafirði.
Í inngangi segir, að Ísafjörður
sé þar „sjálfvalið byggðarlag,
meðan Vesturbyggð gegnir
mun takmarkaðra hlutverki á
suðurfjörðunum og er auk
þess áður talin með sjávar-
byggðum.“
Auk Ísafjarðar er í grein-
ingunni fjallað um Sauðár-
krók, Akureyri, Húsavík, Eg-
ilsstaði, Selfoss, Reykjanes-
bæ (þéttbýliskjarna), Akranes
og Borgarnes. Um hvert þess-
ara byggðarlaga er fjallað í
almennri greiningu en síðan
eru gerðar rækilegri úttektir á
þáttum eins og stöðu verslun-
ar, iðnaðar, upplýsingatækni
og nýsköpunar, ferðaþjón-
ustu, sjávarútvegi, samgöng-
um og fjarskiptum, húsnæðis-
málum, félagslegu umhverfi,
menntamálum og umhverfis-
þáttum.
Í hinum almenna inngangs-
kafla um Ísafjörð segir m.a.:
„Ísafjörður er sjálfvalinn
staður fyrir starfsemi sem
snertir Vestfirði í heild sinni.
Sameining sveitarfélaga og
jarðgöngin hafa aukið vægi
Ísafjarðar og styrkt Ísafjörð
sem stjórnsýslumiðstöð. Ísa-
fjörður er vel staðsettur gagn-
vart sjávarauðlindum. Á Ísa-
firði er tiltölulega fjölbreytt
atvinnulíf. Orkubú Vestfjarða
er öflugur vinnuveitandi með
höfuðstöðvar á Ísafirði. Svæð-
ið er í vaxandi mæli einn
vinnumarkaður.
Búsetuskilyrði eru að
mörgu leyti góð. Samfélagið
er hæfilega stórt en hefur þjón-
ustu á við stærra bæjarfélag.
Fjarlægðir eru litlar og fljót-
legt að afgreiða mál.
Fjárhagsleg staða Ísafjarðar
var góð fram á miðjan áratug-
inn. Síðan hefur hallað undan
fæti hjá sveitarfélaginu af
ýmsum ástæðum, en þó fyrst
og fremst vegna breytinga í
atvinnulífi og fækkunar íbúa.
Skuldir vegna félagslega
íbúðakerfisins eru miklar en
að mestu í skilum. Ísafjörður
var árið 1999 meðal mest
skuldsettu sveitarfélaga á
landinu. Sameining sveitarfé-
laganna er stundum talin hafa
veikt stöðu Ísafjarðar fjár-
hagslega.“
Greining Byggðastofnunar
er nær 200 síður. Nánar er
greint frá úttekt stofnunarinn-
ar á Ísafirði og einstökum þátt-
um hennar á www.bb.is.
Kirkjukórinn
með tónleika
Holtsskóli
Kirkjukór Önundarfjarðar
heldur tónleika í Holtsskóla í
Önundarfirði, mánudaginn 5.
nóvember kl. 20:30.
Tónleikarnir eru haldnir til
heiðurs Brynjólfi Árnasyni
fyrrum organista, en hann
starfaði um árabil sem organ-
isti við Holtskirkju og víðar í
kirkjum í Önundarfirði og
Dýrafirði.
Stjórnandi kórsins er Maria
Yolanda Kowalczyk.
Málefnalegt þing Fjórðungssambandsins um samgöngumál
„Menn vilja ná samstöðu og gefa þannig
þingmönnum okkar sterkt vopn í hendur“
– segir Ólafur Kristjánsson, stjórnarformaður sambandsins
Samstaða einkenndi auka-
þing Fjórðungssambands
Vestfirðinga sem haldið var á
Ísafirði á föstudag en þar var
einungis fjallað um sam-
göngumál. Gísli Eiríksson
verkfræðingur flutti ítarlegt
yfirlitserindi og lagðar voru
fram áherslur einstakra sveit-
arfélaga í samgöngumálum.
Samþykkt var að taka sam-
an helstu áherslubreytingar og
kynna þær Vegagerðinni á Ísa-
firði að undangenginni kynn-
ingu í sveitarstjórnum. Síðan
skal stjórn FV vinna drög að
endurskoðaðri samgöngu-
áætlun, sem lögð verði fram
til frekari umræðu á Fjórð-
ungsþingi á næsta ári.
Formaður stjórnar Fjórð-
ungssambands Vestfirðinga,
Ólafur Kristjánsson bæjar-
stjóri í Bolungarvík, var mjög
ánægður með þingið. „Ég man
ekki eftir eins málefnalegu
Fjórðungsþingi. Sumar áher-
slur einstakra sveitarfélaga í
fjórðungnum falla kannski
ekki alveg saman en allar
sveitarstjórnirnar eru stað-
ráðnar í því að vinna áfram í
samræmi við stefnumótun
sambandsins í vegamálum frá
1997. Ég fann að menn vilja
ná samstöðu um þessi mál og
gefa þannig þingmönnum
okkar Vestfirðinga sterkt vopn
í hendur til að bæta samgöng-
ur á Vestfjörðum.“ Frá aukaþingi Fjórðungssambands Vestfirðinga um samgöngumál sem haldið var á föstudag.
44.PM5 19.4.2017, 09:462