Bæjarins besta - 31.10.2001, Page 11
MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 2001 11
Frá Menntaskólanum á Ísafirði
Innritun í grunn-
deild tréiðna
Innritun er að hefjast í grunndeild tréiðna
fyrir vorönn 2002.
Grunndeild tréiðna er 2ja anna nám í
undirstöðuþáttum tréiðnaðar, meðferð efna
og meðhöndlun áhalda samhliða áföngum
í almennu bóknámi og sérgreinum. Brautin
veitir styttingu á námssamningi í tréiðnum
og aðgang að framhaldsdeildum.
Þeim sem hafa hug á innritun er bent á að
gefa sig fram við skrifstofu skólans fyrir 1.
desember nk. Nánari upplýsingar veitir Snorri
Hermannsson, deildarstjóri tréiðna í síma
450 4400. Lágmarksþátttaka er skilyrði
þess að grunndeild tréiðna verði starfrækt
næstu ár.
Skólameistari.
„Ég taldi mig vera að leggja
gott til þegar ég ákvað að gefa
steinbítsveiðarnar frjálsar en
það kom í ljós að ég hafði
verið of bláeygur og þeir sem
ég taldi mig vera að hjálpa
töldu þetta ranga ákvörðun.
Þegar mikill meirihluti var
kominn á þá skoðun ákvað ég
að bregðast við og breyta
rangri ákvörðun í rétta.“
Þetta sagði Árni M. Mathi-
esen sjávarútvegsráðherra
þegar hann svaraði fyrirspurn
frá Hálfdáni Kristjánssyni frá
Flateyri á aðalfundi Lands-
sambands smábátaeigenda í
síðustu viku.
Hálfdán spurði meðal ann-
ars hvers vegna ráðherrann
hefði verið að hringla með
steinbítinn. Lagði Hálfdán til
að ráðherra frestaði öllum
hugmyndum um breytingar á
smábátakerfinu í eitt ár og að
tíminn yrði notaður til samn-
inga við LS.
Árni sagði steinbítsmálið
vera lífsreynslu sem hann eftir
á að hyggja hefði ekki viljað
hafa sloppið við að reyna.
„Mér var talin trú um að þessi
ákvörðun að gefa steinbíts-
veiðarnar frjálsar gæti riðið
baggamuninn fyrir þau
byggðarlög sem byggðu mest
á smábátaútgerðinni. Það kom
í ljós að þetta var rangt og ég
tók þau mistök á mig. Sem
betur fer hafði ég tíma til þess
að breyta þessari ákvörðun þar
sem að fiskveiðiárið var ekki
byrjað.“
„Kom í ljós að ég hafði verið of bláeygur“
Sjávarútvegsráðherra um „hringlið“ með steinbítinn
Á sumum bensínstöðv-
um er mönnum boðið að
dæla sjálfir á bíla sína og
fá þá afslátt af verði elds-
neytisins. Á Ísafirði hefur
þetta aldrei tíðkast og hafa
menn spurt sig hvers
vegna. Að sögn Heimis
Sigurðssonar, fram-
kvæmdastjóra markaðs-
sviðs þjónustustöðva hjá
Olíufélaginu hf., er ekki
ósennilegt að þetta verði
tekið upp hér vestra á
næstu mánuðum. „Það
hefur reyndar engin
ákvörðun verið tekin
ennþá en þetta er þróunin.
Við erum að velta því fyrir
okkur að innleiða þetta
kerfi á stöðum vítt og
breitt um landið“, segir
Heimir.
„Við byrjum á að skoða
minnstu staðinu þar sem
kerfið myndi hjálpa
umboðsmönnunum hvað
mest. Stöðin á Ísafirði er
það stór að hún myndi
koma seinna. En þetta er í
skoðun. Við áttum okkur á
því að þetta er eitthvað
sem þarf að vinna í og það
verður gert fljótlega“,
segir Heimir Sigurðsson
hjá Olíufélaginu hf.
Í athugun en ekki alveg á næstunni
Sjálfsafgreiðsla á bensíni á Ísafirði ásamt afslætti
Listaháskóli Íslands með kynningu á Ísafirði
Sýning á Túskildings-
óperunni hápunkturinn
– fjöldi nemenda úr öllum deildum skólans kemur vestur
Sendinefnd á vegum
Listaháskóla Íslands sótti
Ísafjörð heim fyrir skömmu
og voru í henni þær Mist
Þorkelsdóttir, deildarforseti
tónlistardeildar skólans,
Ragnheiður Skúladóttir,
deildarforseti leiklistar-
deildar og Jóna Finnsdóttir,
framkvæmdastjóri. Erindi
þeirra var fyrst og fremst að
undirbúa kynningu hér vest-
ra á því námi sem Listahá-
skólinn býður en stefnt er
að því að hún verði á Ísafirði
seinustu helgina í nóvem-
ber.
Segir Jóna Finnsdóttir að
ætlunin sé að senda 25-30
manna hóp til Ísafjarðar í
þessu skyni en þar af verða
12 tónlistarnemar og 8 nem-
endur á seinasta ári í leiklist.
Standa þeir saman að upp-
færslu Túskildingsóperunn-
ar eftir Brecht og Kurt Weill
sem frumsýnd verður í
Nemendaleikhúsinu 26.
október. Einnig verða með
í för nemendur úr hinum
tveimur deildum skólans,
þ.e. hönnunar- og arkitekt-
úrdeild og myndlistardeild.
Að sögn Jónu er verið er
að undirbúa dagskrá kynn-
ingarinnar en stefnt er að
því að hápunktur hennar
verði sýning á Ísafirði á Tú-
skildingsóperunni, í heild
eða í styttri útgáfu, sem yrði
væntanlega laugardags-
kvöldið 1. desember. Enn-
fremur munu nemendur
Listaháskólans fá að fara
með kynningar inn í kenn-
slustundir í Menntaskólan-
um á Ísafirði á föstudagsmorg-
uninn. Síðan verða þeir vænt-
anlega til viðtals eftir hádegi
sama dag í Gamla apótekinu
fyrir þá sem áhuga hafa á að
kynna sér hið fjölbreytta starf
sem Listaháskólinn stendur
fyrir.
Jóna segir að kynning af
þessari stærðargráðu gæti
ekki farið fram nema með
víðtækri aðstoð heima-
manna. Þess vegna vilja
þær stöllur nota tækifærið
og þakka öllu því góða fólki
sem tók vel á móti þeim og
er reiðubúið að leggja þeim
lið svo vel megi til takast á
kynningu Listaháskóla Ís-
lands á Ísafirði í nóvember.
Fulltrúar Listaháskóla Íslands kanna jarðveginn á Ísa-
firði.
Gengið verður til samninga
við verktakafyrirtækið Kubb
ehf. á Ísafirði um lokafrágang
snjóflóðavarna við Sorpend-
urvinnsluna Funa í Engidal
við Skutulsfjörð. Bæjaryfir-
völd í Ísafjarðarbæ telja rétt
að semja á grundvelli fráviks-
tilboðs sem Kubbur gerði.
Auk frávikstilboðsins átti
Kubbur lægsta tilboðið í verk-
ið þótt mjög litlu munaði á
því og tilboði Jónasar Jón-
björnssonar í Súðavík.
Fjögur tilboð bárust í verk-
ið. Kubbur ehf. bauð kr.
14.181.980, Jónas Jónbjörns-
son kr. 14.263.565, Norðurtak
ehf. kr. 16.907.500 og síðan
var frávikstilboð frá Kubbi
ehf. kr. 12.352.415. Kostnað-
aráætlun var kr. 17.030.400. Í
útboðsgögnum var gert ráð
fyrir að greiðslur til verktaka
verði ekki inntar af hendi fyrr
en á næsta ári. Þess vegna
þarf, ef til kemur, að gera ráð
fyrir framkvæmdakostnaði í
fjárhagsáætlun ársins 2002.
Lokafrágangur snjóflóðavarna við Funa
Samið við Kubb ehf.
Síðasti áfanginn flutn-
ingi byggðarinnar
Vinnu við nýja þjónustu-
miðstöð í Súðavík hefur mið-
að vel og er nú unnið að loka-
frágangi innanhúss. Að sögn
Friðgerðar S. Baldvinsdóttur,
sveitarstjóra Súðavíkur-
hrepps, er verið að setja upp
innréttingar en búið er að
leggja allar raflagnir, mála og
flísaleggja. Þá er einnig unnið
að því að ganga frá utanhúss
og hefur verið samið við Atla
Pálmason um að leggja stéttir
að húsinu. Segir Friðgerður
að stefnt sé að því taka húsið
í notkun í lok nóvember og
eigi þá öllum frágangi að vera
lokið nema hvað lóðin verður
kláruð næsta sumar.
Í hinni nýju þjónustumið-
stöð, sem er 790m², verður
banki, pósthús, skrifstofa
hreppsins, heilsugæslustöð,
verslun, aðstaða fyrir veiting-
ar og líklega verður þar ben-
sínsala. Með nýju þjónustu-
miðstöðinni verður lokið síð-
asta áfanga í flutningi byggðar
í Súðavík.
– ætlunin að byggingin verði tekin í notkun í lok nóvember
Framkvæmdir við þjónustumiðstöðina í Súðavík
Þjónustumiðstöðin í Súðavík.
44.PM5 19.4.2017, 09:4611