Vinnan - 01.09.1945, Side 8
Skóli
sœnska Alþýðusambandsins
í Brunnsvik.
SVÍÞJ ÓÐARFÖRIN
Framh. af bls. 180
Árið 1943 er velta Alþýðusambandsins (í peningum)
136933048.26 kr. og 1944 sennilega mun meiri, en um
það eru ekki enn til opinberar skýrslur.
I fyrra eru greiddir skattar til sambandsins 4425475,-
00 kr., þar af greiddi t. d. járnbrautarmannasamband-
ið 308876,50 kr.
Eignir Alþýðusambandsins voru 31. des 1944 29170-
919.26 kr., þar af voru fasteignir 6035363 kr., hitt eru
ýmsir sjóðir.
Heimsókn til skóla sænska Alþýðusambandsins
í Dölunum
Á fjórða degi eftir komu okkar til Stokkhólms, bauð
forseti sænska alþýðusambandsins okkur í heimsókn til
skóla þess, sem sambandið rekur í Brunnsvík, sem er
röska 200 km. frá Stokkhólmi.
Leiðsögumaður okkar til skólans var Svíi, er hét Per
Osterberg. Hefur hann þann sérstaka starfa á hendi
hjá sænska Alþýðusambandinu, að annast móttökur
erlendra gesta, er sambandið heimsækja.
Förin til Brunnsvík var ánægjuleg þótt hiti væri
mikill; fegurð sú, sem hvarvetna blasti við, var óvið-
jafnanleg. Eftir sex klukkustunda ferð með járnbrautar-
lest komum við á ákvörðunarstaðinn.
Á járnbrautarstöðinni tók á móti okkur skólastjóri
skólans, Thorvald Karlbom. Sýndi hann okkur Brunns-
vík, sem er smáþorp er byggir tilveru sína á námu, sem
er í nágrenninu. Er staður þessi viðurkenndur fyrir
fegurð sína og þá sérstaklega hið geisistóra vatn, sem
þarna er.
Skólahúsin í Brunnsvík eru 8 að tölu, þar af eru þrjú
með skólastofum og fundarsal, hin húsin eru íbúðarhús
kennara og nemenda. Skólastjórinn býr í sérstöku húsi
út af fyrir sig.
í kjallara eins hússins er hvelfing og í henni er bóka-
safn skólans, en í því eru 3532 bindi. Er þar saman-
komið afar fullkomið safn rita um sögu og þróun
verkalýðshreyfingarinnar í Svíþjóð og um allan heim.
Sænska verkalýðssambandið heldur árlega í skóla
þessum námskeið, sem meðlimir sambandsins eiga að-
ganga að. Námsgreinar í slíkum námsskeiðum eru
margar og miðast einkum við það, að nemendur fræð-
ist um allt það, er má verða þeim til gagns í væntan-
legu starfi þeirra fyrir verkalýðshreyfinguna.
Nemendur, sem sækja námskeið þessi, eru víðsveg-
ar að úr Svíþjóð, og oft frá öðrum löndum og þá sér-
staklega Norðurlöndum, jafnvel héðan frá íslandi (þó
nokkrir íslendingar sóttu skóla þennan fyrir stríð).
Oft gangast hin ýmsu sambönd innan sænska verka-
lýðssambandsins fyrir námskeiðum, sem þarna eru
haldin. T. d. stóð svo á, þegar við komum til skólans, að
bókbindarasambandið var að halda námskeið fyrir
meðlimi sína. Að sjálfsögðu notuðum við tækifærið
og settumst á skólabekk og hlustuðum á fyrirlestra og
aðra kennslu þann tíma, sem við dvöldum í Brunnsvík.
Sænska verkalýðssambandið kostar skólann að öllu
leyti og nýtur eigi styrks frá því opinbera til þeirrar
182
VINNAN