Vinnan


Vinnan - 01.09.1945, Side 11

Vinnan - 01.09.1945, Side 11
varðar mig um, hvaða álit Farrell hefur á mér? Hvað getur hann gert fyrir mig? — Margt. Ef honum finnst þú efnilegur, getur hann útvegað þér starf, sem eitthvað er upp úr að hafa. — Hann getur ekki útvegað mér neitt, sem er nokkurs virði, væni minn. — Ég mundi nú samt ekki slá hendinni á móti því, sem Jiann gæti útvegað mér, ef hann vildi, sagði ég móðgaður. — Jæja, sagði Ríkliarður. — Ekki liugsarðu nú Irátt. Og fyrst þú gerir þig ánægðan með svona lítið, skal ég sjá um, að Farrell láti þig hafa vinnu, þegar liann er orðinn undirmaður minn. Meira að segja ágæta atvinnu. — Farðu til fjandans! sagði ég. Ég var að reikna flatarmálsfræðina fyrir hann. — Heyrðu mig, fífl- ið þitt, sagði ég. — Hefurðu aldrei Iieyrt getið um flatarmálsfræði? Ég er nærri viss um, að þú kannt ekki einu sinni að margfalda. Hvað er sjö sinnum þrettán? —Æ, reiknaðu það fyrir mig, sagði Ríkharður. — Og segðu mér titkomuna í fyrramálið. Þegar ég hafði tómstundir til, framkvæmdi ég útreikningana fyrir hann, og Farrell fann ekki nema tvær slæmar villur hjá honum. En Farrell var líka snjallasti maðurinn í þjónustu Ameríska stálbyggingafélagsins. Hann hafði stjórnað bygg- ingum og járnbrautalagningum bæði á Kúbu og í Mexíkó um tuttugu ára skeið. Þegar mánuður var liðinn, liætti hann að skipta sér af Ríkharði, en lét allt sitt önuglyndi I)itna á mér. Hann var alltaf að finna að við mig, og ég gat aldrei gert honum til geðs. Hann ráðlagði mér að læra spænsku hjá skrifara einum, sem liann nefndi og vann í skrif- stofu sykurframleiðendafélagsins. — Spænsku? sagði Ríkharður, þegar ég stakk upp á því við Jiann, að liann tæki tíma með mér. — Ég lield nú síður. Ég var tuttugu og tvö ár að læra ensku. Og þeir, sem eiga erindi við mig, verða að kunna ensku eða hafa túlk með sér. — Þá það, sagði ég. —• Reyndar var það nú Farr- ell, sem stakk npp á þessu. — Ekkert minntist hann á það við mig, ságði Ríkharður. — Sennilega finnst honum ég full- kominn eins og ég er. Og nú verðurðu að liafa mig afsakaðan, því ég er nefnilega að fara og fá mér neðaníðí. Það var svo sem auðséð, að maðurinn var að fara í liundana. I janúarmánuði komu nokkrir af framkvæmda- stjórum Sameinaða sykurframleiðendafélagsins. Það átti svo að heita, að þeir væru í viðskiptaer- indum, en þeir komn bara til að skemmta sér. Hitt höfðu þeir að yfirvarpi. Þeir komu á skemmtisnekkju. Jósep Prossert átti snekkjuna, og ég man ekki betur en að liann tiafi þá verið forseti Sameinaða sykurframleiðendafélagsins. Þetta var í fyrsta skipti, sem ég sá einn af þessum voldugu heims- frægu auðjörlum. Hann var ekki að neinu leyti sérkennilegur maður, frernur gildvaxinn, með gisið hárstrý á höfðinu og yfirlætislegur í tali. Hann vissi ekkert um Kúbu nema það, sem að viðskiptum laut. Ég kynntist lronum talsvert, því liann var eftir í snekkju sinni, þegar hinir fram- kvæmdastjórarnir brugðu sér til Santa Inez, og Farrell bað okkur Ríkharð að vera lionum til skemmtunar. Herra Prossert var mjög alúðlegur. Hann spurði mig margra spurninga. Ég var vel að mér í minni grein og liefði getað leyst úr liérumbil öll- um skynsamlegum spurningum — ég á við þær spurningar, sem búast má við að þaulreyndur verkfræðingur beri fram. En spurningum þessa manns gat ég ekki svarað öðru vísi en: — Því mið- ur veit ég það ekki, Jierra minn. Við höfum ekki aflað okkur neinna upplýsinga um það mál. Og lierra Prossert horfði undrandi á mig. Þá skeði það, að Ríkltarður leysti skyndilega frá skjóðunni. — Eftir því sem ég kemst næst, munu það vera um níu milljónir teningsfeta, sagði hann. — Það vildi svo til, að ég var að reikna það út í gær- lcveldi. Ég gerði það bara svona að gamni mínu, en ekki í neinum sérstökum tilgangi. Hann roðn- aði af lítillæti. — Jæja, sagði herra Prossert undrandi, sneri sér að honum og horfði hvasst á hann. — Það er ekki komið að tómum kofunum hjá yður, herra Rík- harður! Þér gætuð þá ef ti! vill frætt mig um fleira? Og Ríkharði vafðist ekki tunga um tönn. Fjarri því. Hann vissi allt. Hann vissi upp á hár burðar- þol sérhverrar brúar í landinu, þekkti hvert ein- asta ræsi, vissi um meðalregnmagnið síðustu tutt- ugu árin, mundi íbúatölu sérhvers þorps og kunni nafn á hverjum hól og hæð. Hann hafði kynnt sér framleiðslukostnað og launamál í landinu. Herra Prossert var ekki fyrr húinn að bera fram spurn- ingu en Ríkharður hafði svarað henni. Þegar við fórum, kinnkaði Prossert kolli til mín, fremur kuldalega, en tók hjartanlega í hönd- ina á Ríkharði. — Gaman að kynnast yður, sagði hann. — Mjög gaman að kynnast yður, herra Rík- liarður. Verið þér sælir og þakka yður fyrir. — Ekkert að þakka, herra minn, sagði Rík- VINNAN 185

x

Vinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.