Vinnan


Vinnan - 01.09.1945, Page 17

Vinnan - 01.09.1945, Page 17
ara verkefna upp í hendur stéttarinnar. Verka- lýðssamtökin þurfa á næstu árum að koma sér upp sínum sumardvalarhúsum á lientugum og fögrum stöðum víðsvegar um landið. Slík sameig- inleg heimkynni myndu verða til aukinnar kynn- ingar og treysta félagsböndin um leið og þau veittu verkafólkinu tækifæri til hvíldar og hress- ingar í fríum sínum. Óvíða á landinu á verkalýðshreyfingin það greiðan aðgang að hentugu húsnæði, að það standi ekki verulega í vegi fyrir öflugu félags- starfi. Á nokkrum stöðum er þegar vaknaður á- hugi fyrir því, að verkalýðsfélögin eignizt sín eig- in samkomuhús. Þessi hugmynd á að grípa um sig. Hvarvetna þar, sem verkalýðsfélag er einhvers um komið, þarf það að hefja undirbúning hús- byggingar. Umráð yfir hentugu fundarhúsi skap- ar verkalýðsfélögunum ótal möguleika til félags- legra athafna, sem þeim eru að öðrum kosti að mestu lokaðir. Má í þessu sambandi drepa á ýmis- konar fræðslustarfsemi og menningaraukandi skemmtanir, s. s. leikstarfsemi o. fl. Einstaka verkalýðsfélag hefur ltomið sér upp vísi að bókasafni. Hér er um mikið nauðsynjamál að ræða, sem auðvelt ætti að vera að leysa, þegar félögin hefðu fengið sinn samastað. Bókasafn og lestrarsalir er svo nátengt húsnæðismálum félag- anna, að engin von er til þess að það verði leyst fyrr en félögin ráða yfir eigin húsnæði. í bóka- safni verkalýðsfélags eiga fyrst og fremst að vera allar bækur og rit um félagsmál og verkalýðsbar- áttu. Þá eru það sjálf atvinnumálin. I þeim efnum eiga verkalýðsfélögin mikilvægu hlutverki að gegna. Og mörg þeirra hafa þegar tekið til ó- spilltra mála, rannsakað atvinnuskilyrði og at- vinnuþörf síns umhverfis, gert tillögur til um- bóta og komið þeim á framfæri við rétta aðilja. En þetta þarf að verða ennþá almennara. Yfirleitt eiga verkalýðsfélögin ekki að telja sér neitt óvið- komandi, sem horfir til framfara og bættra af- komu- og menningarskilyrða fyrir alþýðuna. Þau þekkja bezt hvar að þeim kreppir í þeim efnum. Ég liefi hér bent á örfá verkefni, sem kalla á bráða lausn af hendi verkaiýðssamtakanna. Og áfram mætti halda, því óteljandi eru þau félags- legu viðfangsefni, sem varða verkalýðsstéttina. En grundvailarskilyrði skjótra og markvissra framkvæmda á þessum sviðum, sem öðrum, er að verkalýðurinn standi trúan vörð um samtök sín í hvívetna, hrindi af höndum sér öllum hugsan- legum sundrungartilraunum og verndi fjöregg samtaka sinna, hina stéttarlegu samheldni. s h SKRÝTLUR v_____________________________________________J Æ sér gjöf lil gjalda Þórarinn: — Nú á konan þín afmœli á morgun, Pétur minn! Hvað ertu að hugsa um að gefa henni? Pétur: — Það er ekki fullráðið enn þá. Hún gaf mér kaffikönnu á afmœlisdaginn minn í fyrra, svo mér var hálfvegis að detta í hug að gefa henni tóbakspípu. í rakarastofunni Viðskiptavinurinn: — Hvers vegna eruð þér alltaf að segja þessar œsilegu draugasögur meðan þér klippið fólk? Hárskerinn: — Það er miklu auðveldara að klippa viðskiptavinina, þegar hárið rís á höfðinu á þeim. RÓ3, sem dugði Kvöld eitt var danska kímniskáldið Wessel í leikhúsi. Rétt fyrir jraman hann stóð maður, hár vexti og ábúð- armikill, og skyggði á þá, sem voru fyrir aftan hann. Menn báðu hann ítrekað að setjast, en hann daufheyrð- ist við slíku bœnakvabbi. Loks stóðst Wessel ekki mátið og sagði: — Lofið manninum að standa. Þetta er klœðskeri, og honum er nýnœmi á að fá að rétta úr sér. Beljakinn settist samstundis. Allt fyrir ástina Eitt sinn var kona Wessels að ávíta hann fyrir það, að hann kœmi ölvaður heim á hverju kvöldi. En Wessel varð ekki orðfall og sagði: — Ó, þú mín heittelskaða! Það er af eintómri ást til þín að ég drekk. Því að þegar ég er fullur, sé ég þig tvöfalda. Fljótur að átta sig Einhverju sinni var Wessel gestkomandi hjá óðals- bónda uppi í sveit. Vildi honum sú skyssa til, að hann velti um koll rauðvínsglasi. Húsbóndinn þykktist við og spurði, hvort þetta væri venja í sarnkvœmislífi Kaup- mannahafnar. ■— Og ekki vil ég nú segja það, svaraði Wessel. — En komi það fyrir, lœtur húsbóndinn sem hann sjái það ekki. Engin undantekning Sigga: — Heldurðu, að það sé til óheilla að gifta sig á föstudegi? — Arni: — Það er enginn efi á því. Eða því skyldi föstudagur vera undantekning frá reglunni? VINNAN 191

x

Vinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.