Vinnan


Vinnan - 01.09.1945, Qupperneq 22

Vinnan - 01.09.1945, Qupperneq 22
öðlast hann nrðu þeir að greiða 6 rd. í útsvar. Með öðrum orðum: eignin hafði kosningarrétt. Árið 1855 voru 140 tómthúsmenn í Reykja- vík. 6 þeirra greiða 6 rd. í útsvar, 134 eru rétt- lausir á vettvangi landsmálanna. Árið 1847 var kosningaréttur bundinn við 10 hundraða fasteign. Þá höfðu jafnvel sumir em- embættismennirnir ekki kosningarétt, ef þeir áttu ekki hina áskildu eign. Um þessar mundir höfðu Vestmannaeyingar engan fulltrúa á þingi, vegna þess, að aðeins 2—3 menn í héraðinu áttu 10 hndr. fasteign. — Það var ekki fyrr en 1915 að verkafólk hlaut kosningarétt samkvæmt lögum. — Þá skal vikið að kaupgjaldsmálum, vinnutíma o. fl., en fara verður fljótt yfir sögu. Á 19. öld er talið, að kaupgjald fari mjög vax- andi að peningaverði, en minna verði úr liækk- uninni þegar miðað sé við kaupmagn og umreikn- að sé í landaura. Fæði er og talið fara batnandi og viðurgjörningur allur. í byrjun aldarinnar var kaup mjög lágt, ef það var nokkuð. Þá voru harðindi mikil og siglinga- teppa. í sveitum þeim, er mest svarf að á Norður- landi, komust fáir í vist nema sem matvinnungar. Þar sem kaup var greitt í Eyjafjarðarsýslu árin 1807—1812, var talið að karlar fengju 100 álnir, en konur 60. Alinin var þá reiknuð á 4l/c> rd., svo karlar höfðu í árskaup 5 rd. 60 sk., en konur hálfu minna. En óvíða höfðu hjúin kaup og sumsstaðar hvorki kaup né föt, jafnvel hvorki sokka né vett- linga. Árferði fór batnandi um 1816 og fór þá lieldur að rakna úr, a. m. k. hjá karlmönnum, ,,en víða var farið mjög illa með vinnukonur og það langt fram eftir öld; þær fengu sumstaðar ekkert kaup og lítið sem ekkert til fata“. Magnús Stepliensen átelur þetta harðlega 1820: „Ótal dæmi sýna oss, að margar korna þær nú naktar og berar úr margra ára vinnuvistum, hvar fleiri ára kaup ei hrekkur þeim til slitfata svo vinnufærar séu og þoli út að fara, svo hefi ég margar í vist fengið löngum.“ Verða þær svo á efri árum lúnar, örvasa og heilsulausar að felast hreppanna volaða og misk- unnarlitla framfæri.“ Almennt vinnumannskaup á Suðurlandi var 10 — 12 specíur árið 1830, eða 40 álnir á landsvísu. Árið 1842 var talið sanngjarnt kaup handa meðal- manni 5 vættir eða 100 álnir (án fata). En um 1850 höfðu duglegir vinnumenn á Vesturlandi 6 vættir, en vinnukonur helmingi minna. Sex árum síðar segir séra Arnljótur Ólafsson, að varla fáist vinnumenn fyrir manna en 15 specí- ur, en þeir vilji hafa 20—25. Þá jafngiltu 15 specí- ur 160 álnum á landsvísu, en kaupmátturinn gagnvart erlendri vöru mun minni, svo ekki er um mikla kauphækkun að ræða. Þá mun kaup þetta ekki hafa verið greitt nema þar sem vinnu- fólksskortur var og geta aðrir ekki um svo hátt kaup á þessum tínra. Árið 1864 telur Tryggvi Gunnarsson árskaup vinnumanns norðanlands 26 rd. og árskaup vinnukonu 14 rd„ en það var- eftir meðalverði landaura það ár ekki nema 100 álnir fyrir karl- menn og nærri 54 álnir fyrir kvenfólk. Helzt þetta kaupgjald næstum óbreytt um land allt víðasthvar, langt fram eftir öldinni. Eins og fyrr er að vikið, réðu bændur kaup- gjaldinu að mestu. Höfðu stórbændur um sig hirð vinnufólks og söfnuðu miklu fé á þeirra tíma mælistiku, en kotungar stunduðu einyrkju- búskap í sárri fátækt. Um 1870 var hæsta vinnumannskaup á Suður- landi 48 krónur og auk þess fjögur föt og kindar- fóður (Sig. Sigurðsson). Sumir vinnumenn sunn- anlands höfðu hálfan hlut sinn um vetrarvertíð- ina í árskaup. Þóttu það hin mestu kostakjör, ef skiprúm voru góð, og miklu betra en 48 kr. I hlut vinnuveitandans féll svo hálfur vertíðarhlut- urinn og vinna verkamannsins allt árið utan ver- tíðar. Vinnukonukaup var 16 krónur á ári að meðaltali, eða frá 12—20 kr. auk 3—4 föt og kind- arfóður eitt. Var bændum að sjálfsögðu nauðugur einn kost- ur að láta vinnufólki í té þessi föt, annars hefði það mátt ganga nakið til vinnu, því ekki hefði árs- kaupið hrokkið fyrir nauðsynlegasta fatnaði. Svo kvörtuðu sveitarstjórnir sáran yfir því, að fénað- ur vinnufólks væri ekki tíundaður til skatts! I daglaunavinnu að vorinu var kaupið 1 kr. og fæði. Kvenfólk réðst sem matvinnungar á vorin fram að slætti. Kaup norðanlands mun hafa verið svipað víð- asthvar. Hermann Jónasson telur vinnumanns- kaup alm. kr. 100 á ári, en vinnukonukaup 30 kr. Þó telja sumir þetta fullhátt áætlað. En þess ber að gæta, að af þessu kaupi fengu vinnumenn eng- in föt, en allt til handa og fóta. Um þetta leyti var kaup lægra sunnanlands. í Árnessýslu var 1882 vinnumannskaup 80 kr. og frí föt. 10—12 ár- um síðar var sama kaup greitt í Skaftafellssýslum (föt að auki) og vinnukonukaup 20 kr. Fram yfir miðja öldina var konum óvíða greitt kaup, nema þá helzt slett í þær klútum eða öðru fánýtu dóti úr kaupstað. Vinnumannskaup var þá 196 VINNAN

x

Vinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.