Vinnan - 01.09.1945, Síða 28
ári, sé um þaU að ræða. Uppsagnarfrestur vinnuveitanda og
vinnuþiggjanda er gagnkvæmur, 3 mánuðir. Ymis merkileg ný-
mæli eru í samningnum, sem ekki verða rakin hér nánar.
Alþýðusambandið annaðist samningana fyrir hönd Verzlun-
armannafél. Vestmannaeyinga en Vinnuveitendafélag Islands
fyrir hönd Félags kaupsýslumanna í Eyjum.
Félagsdómur um samúSarverkfall
Verkalýðsfélögin í Eyjum hófu öll samúðarverkföll til stuðn-
ings verzlunarfólkinu í kaupdeilu þess og kaupmanna. Náðu
verkföllin til allra þeirra atvinnurekenda, er verzlunarfólkið átti
í deilu við. Einn stærsti atvinnurekandinn, Einar Sigurðsson,
eigandi Vöruhúss Vestmannaeyja og Hraðfrystistöðvar Vest-
mannaeyja, höfðaði mál fyrir Félagsdómi gegn Vélstjórafélagi
Vestmannaeyja og krafðist þess að verkfall vélstjóranna við
Hraðfrystistöðina yrði dæmt ólöglegt. Félagsdómur felldi úr-
skurð sinn þann 18. júlí og dæmdi verkfallið lögmætt.
Félagsdómur í Erlingsmálinu
Þann 4. júlí s.l. felldi Félagsdómur úrskurð í svonefndu Er-
lingsmáli. En mál þetta er þannig til komið, að Erlingur Frið-
jónsson á Akureyri hefur lengi verið að reyna að fá forgangs-
réttarákvæði félagsbundinna manna dæmt ógilt í kjarasamningi
Verkamannafélags Akureyrarkaupstaðar. Var málinu vísað frá
í héraði og frávísunin síðan staðfest í hæstarétti. Fór málið síð-
an fyrir Félagsdóm en hann sýknaði Verkamannafélag Akur-
eyrarkaupstaðar algjörlega af kröfu Erlings.
Nýr kjarasamningur í Súgandafirði
Þann 1. júlí s.l. voru undirritaðir samningar á Suðureyri í
Súgandafirði milli verkalýðsfélagsins „Súgandi“ og atvinnurek-
enda þar. Samkvæmt samningunum hækkaði grunnkaup karla
í almennri dagvinnu úr kr. 1.90 í kr. 2.10 á klst. Grunnkaup
kvenna hækkaði úr kr. 1.40 í kr. 1.50 á klst. Grunnkaup drengja
14—16 ára hækkaði úr kr. 1.40 í kr. 1.50 á klst. Grunnkaup í
almennri skipavinnu hækkaði úr kr. 2.30 í kr. 2.50 á klst. og
í kola-, salt- og sementsvinnu úr kr. 2.60 í kr. 2.75 á klst. svo
og við útskipun hraðfrysts fiskjar. Á allt þetta kaup kemur svo
50% álag í eftirvinnu og 100% álag í nætur- og helgidagavinnu.
— Mánaðarkaup kvenna er kr. 310.00, en karla kr. 400.00. Al-
menn ákvæði samninganna eru í samræmi við Vestfjarðakjör.
Endurskoðun sambandslaganna
Á sambandsþinginu s.l. haust var samþykkt að kjósa 4 menn
í nefnd, til að endurskoða lög sambandsins milli þinga, en
miðstjórn falið að skipa fimmta manninn, er vera skyldi for-
maður nefndarinnar. Þingið kaus í nefndina þau Stefán Og-
mundsson, Sigurjón Á. Olafsson, Sigurð Guðnason og Jóhönnu
Egilsdóttur. Á fundi miðstjórnar 24. maí s.l. var Þorsteinn Pét-
ursson skipaður formaður nefndarinnar. Mun nefndin nú taka
bráðlega til starfa.
Samningur milli Alþýðusambands íslands
og Búnaðarfélags íslands
Mánudagskvöldið 13. ág. s.l. komst á samkomulag milli nefnda
Alþýðusambandsins og Búnaðarfélagsins um grundvöll að víð-
tæku samstarfi verkamanna og hænda. Er þessa nánar getið á
öðrum stað í blaðinu.
Taxti bifreiðastjóra á Hvammstanga
Verkamannafélagið „Hvöt“ á Hvammstanga hefur sett taxta
fyrir vörubifreiðir: Kr. 22,00 á klst. í dagv., kr. 25.00 í eftirv.
og kr. 27.00 í nætur- og helgidagav. Miðast þetta gjald við
bifreiðir með vélsturtum. Fyrir minni bifreiðir greiðist tveimur
krónum lægra á klst.
Nýtt sambandsfélag
Verzlunarmannafélag Siglufjarðar hefur gengið í Alþýðusam-
bandið. Félagar eru 42. Formaður félagsins er Garðar Guð-
mundsson.
Nýtt sambandsfélag
Verkamannafélagið „Ægir“ í Þverárhreppi í Vestur-Húna-
vatnssýslu var tekið í Alþýðusambandið á fundi miðstjórnar
þann 12. júlí s.l. Félagar eru 30. Stjórn félagsins skipa: Ágúst
Jónsson, form., Karl Björnsson og Pétur Aðalsteinsson, með-
stjórnendur.
Nýr samningur við A. B. F. á Skagaströnd
Almenna byggingafélagið h.f., sem hefur tekið að sér marg-
víslegar framkvæmdir á Skagaströnd, undirritaði kjarasamning
við Verkalýðsfélag Skagastrandar þann 25. júlí s.l. Samkvæmt
samningnum er dagvinnukaup kr. 2.20, eftirvinnukaup kr. 2.80
og nætur- og helgidagavinnukaup kr. 3.35. Er þetta sama kaup
og uni var samið áður við hafnarvinnu á staðnum, en kaupið
gildir í allri vinnu, sem A. B. F. lætur framkvæma. — Alþýðu-
sambandið annaðist samninga fyrir verkalýðsfélagið.
Samningur um vörzlu Olfusárbrúar
Þann 31. júlí s.l. var undirritaður samningur um kjör brúar-
varðanna við Ölfusárbrú. Samningurinn er milli verkamanna-
félagsins „Þór“ í Sandvíkurhreppi og vegamálastjóra. Brúar-
verðir skulu framvegis vera sex og hafa þrískiptar vaktir í
sólarhring. Grunnlaun eru kr. 550.00 á mán. Áður voru brúar-
verðirnir aðeins fjórir og unnu 12 tíma í sólarhring og höfðu
í laun kr. 420.00 á mán. — Alþýðusambandið annaðist samn-
ingana fyrir verkamannafélagið.
Báran á Hofsósi semur
Þann 1. júlí s.l. var undirritaður nýr kjarasamningur á
Hofsósi milli verkakvennafélagsins „Báran“ og atvinriurekenda.
Samkvæmt samningnum hækkar dagvinnukaup úr kr. 1.40 í kr.
160 á klst. Dagvinnukaup telpna á aldrinum 14—16 ára er
kr. 1.23 og hélzt það óbreytt. Að öðru leyti er samningurinn
óbreyttur frá því sem áður var og gildir hann til 1. júlí 1946.
Verkalýðsráðstefna í Stokkhólmi
Um miðjan júlí var háð ráðstefna verkalýðssambandanna á
Norðurlöndum í Stokkhólmi. Alþýðusamband íslands átti tvo
fulltrúa á þessari ráðstefnu, þá Hermann Guðmundsson, forseta
sambandsins og Eggert Þorbjarnarson, formann fulltrúaráðs
verkalýðsfélaganna í Reykjavík. Á ráðstefnunni voru rædd
ýmis sameiginleg áhugamál verkalýðshreyfingarinnar á Norður-
löndum og afstaða hennar til stofnunar alþjóðasambands verka-
lýðsfélaga, sem stofna á í París í sept. n.k.
Samningur við síldarverksmiðjur ríkisins í Húsavík
Þann 12. júlí s.l. var undirritaður samningur milli Verka-
mannafélags Húsavíkur og Síldarverksmiðja ríkisins. Grunn-
kaup verkamanna í almennri dagvinnu er kr. 2.25 á klst. I
skipavinnu er kaupið kr. 2.60 á klst. og í boxa- og katlavinnu
kr. 3.00 á klst. og sama í salti og kolum. Eftirvinna greiðist
með 50% álagi og helgidagavinna með 100% álagi á dagvinnu-
kaup. — Mánaðarkaup fastráðinna verkamanna er kr. 468.00
og þróarmanna, pressumanna, kyndara og kolalempara kr.
514.80. Eftirvinnukaup hinna síðasttöldu skal vera 10% hærra
en annarra verkamanna. — Samningurinn gildir til 1. júní 1946
og er uppsegjanlegur með mánaðar fyrirvara.
202
VINNAN