Vinnan - 01.02.1948, Blaðsíða 45
H.F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS
Aðalíundur
Aðalfundur Hlutafélagsins Eimskipafélags íslands verður haldinn í Kaup-
þingssalnum í húsi félagsins í Reykjavík. laugardaginn 5. júní 1948 og
hefst kl. lþA eftir hádegi.
/
I) a g shr á :
1. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og framkvæmdum á liðnu starfsári,
og frá starfstilhöguninni á yfirstandandi ári, og ástæðum fyrir henni,
og leggur fram til úrskurðar endurskoðaða rekstursreikninga til 31.
desember 1947 og efnahagsreikning með athugasemdum endurskoð-
enda, svörum stjórnarinnar og tillögum til úrskurðar frá endurskoð-
endum.
2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skiptingu ársarðsins.
3. Kosning fjögra manna í stjórn félagsins, í stað þeirra sem úr ganga sam-
kvæmt félagslögum.
4. Kosning eins endurskoðanda í stað þess er frá fer, og eins varaendur- ■
skoðanda.
5. Tillögur til breytinga á reglugjörð Eftirlaunasjóðs H.F. Eimskipafélags
íslands.
6. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem upp kunna að verða
borin.
Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða.
Aðgöngumiðar áð fundinum verða afhentir hluthöfum og umboðsmönn-
um hluthafa á skrifstofu félagsins í Reykjavík dagana 2. og 3. júní næstk.
Menn geta fengið eyðublöð fyrir umboð til þess að sækja fundinn á aðal-
skrifstofu félagsins í Reykjavík.
Reykjavílc, 6. janúar 1948.
STJÓRNIN
V I N N A N