Heimilispósturinn - 16.02.1951, Síða 3
KARLMENN!
1 þessum liluta
ritsins er lestrarefni
fyrir karlmenn.
HEIMILIS
PósTuRINN
1. HEFTI
REYKJAVÍK JAN.-FEBR. 1951
„Hann Aage Lorange
spilaði það“
Viðtal við Aage Lorange hljómsveitarstjóra. ;
Aage Lorange, listamaðurinn
góðkunni, fœddist í Stykkis-
hólmi 20. september 1907. Hann
fluttist ungur liingað til
Reykjavíkur og hefur nú í tvo
áratugi verið einn vinscel-
asti hljómlistarmaður bœjarins.
Aage er kvœntur Stellu, dótt-
ur Tómasar heitins Jónssonar,
kaupmanns. Þau eiga tvœr
dœtur. Mynd af Aage er á
kápu.
Lorange? Hvernig stendur á
þessu annarlega nafni þínu ?
Ástæðan er sú, að Fransmað-
ur nokkur vildi fremur bjarga
lífi sínu með því að flýja norð-
ur til Danmerkur en láta það í
brimróti frönsku stjórnarbylt-
ingarinnar. Forfeður mínir áttu
svo heima í Danmörku, unz fað-
ir minn, þá ungur lyfjasveinn,
réð sig til Möllers, apótekara
í Stykkishólmi. Lorange kvænt-
ist svo Emilíu, dóttur Möllers,
og settist að hér á íslandi. Hann
varð skammlífur, andaðist árið,
sem ég fæddist, en þá voru
komnir í heiminn tveir eldri
bræður mínir, sem báðir eru á
lífi og stunda nú verzlunarstörf,
Harry í Kaupmannahöfn, en Kaj
hér. — Þarna hefur þú það.
Þetta er þó ekkert nema nafnið
eitt, því ég er íslendingur í húð
og hár, reykvískur Snæfelling-
ur, nánar tiltekið.
Móðir mín rak lyfjabúðina í
nokkur ár í Stykkishólmi eftir
lát föður míns, en svo fluttist
hún með okkur drengina til
Reykjavíkur, að því er mig
minnir árið 1916. Síðan hef ég
átt heima hér.
Hvadan hefur þú músikina í
lölóöinu?
Líklega úr báðum ættum.
Móðir mín er mjög músikölsk,
lærði ung að leika á hljóðfæri,
vann fyrir okkur með kennslu
HBIMILISPÓSTURINN
1