Heimilispósturinn - 16.02.1951, Blaðsíða 7

Heimilispósturinn - 16.02.1951, Blaðsíða 7
Jason Robards, Steve Brodie og Audrey Long í myndinni „Einskis svifist". ir okkur? Hánn Aage Lorange spilaði það í gamla daga í Sjálfstæðishúinu.“ Myndir þú velja þér annaö lífs- starf, ef þú mœttir nú byrja á nýjan leik? Nei, ábyggilega ekki, — og þó? Mér hefur alltaf þótt hálft í hvoru leiðinlegt að þurfa að svíkja Geir Zoega gamla og helzt vildi ég mega hlaupa yfir þann kafla ævi minnar. Hvernig var þaö? Jú. Ég var þá í menntaskól- anum, ætlaði að ganga mennta- veginn, eins og það heitir, verða stúdent og síðar apótekari, eins og forfeður mínir. Vetur- inn, sem ég var í þriðja bekk, þótti ég alldrungalegur í fyrstu tímunum, og kvisaðist, að ég væri að spila á kvöldin. Rektor kallaði mig þá fyrir sig og harðbannaði mér að spila. Sam- komulag fékkst þó um, að ég i mætti spila á laugardagskvöld- um, en alls ekki önnur kvöld. Ég hélt þetta loforð dyggilega til að byrja með, en svo féll ég í freistni og sveik það. Prófinu lauk ég um vorið, en næsta vet- ur áræddi ég ekki í skólann. — Mér féll alltaf illa að þurfa að svíkja rektor, því hann var okkur svo góður, . . . en mér er sama. Ég held ég myndi þó herða mig upp og svíkja Geir gamla á ný. Jú. Ég myndi ábyggilega gera það. S. HEIMILISPÖSTURINN 5

x

Heimilispósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.