Heimilispósturinn - 16.02.1951, Page 8

Heimilispósturinn - 16.02.1951, Page 8
* Þáttur af Arna presti og Galdra-Imbu Á Völlum í SvarfaSardal var um miðja 17. öld prestur einn, er Jón hét Egilsson (dáinn 1660). Faðir séra Jóns var Egill prestur á Bægisá Ólafsson, en móðir Oddný Sigfús- dóttir prests á Þóroddsstað í Köldu- kinn Guðmundssonar. Séra Sigfús var bróðir Ólafs prests Guðmunds- sonar á Sauðanesi, og voru þeir bræð- ur merkisprestar og kynsælir og höf- uðskáld á sinni tið. Kona séra Jóns var Þuríður, dóttir Ólafs bónda i Núpufelli Jónssonar prests í Laufási; var Ólafur merkur maður og fór stundum með sýsluvöld í umboði ann- arra. Hann var vel ættaður, fjórði maður í karllegg frá Finnboga lög- manni Jónssyni. Kona Ólafs og móðir Þuríðar var Halldóra eldri, dóttir Árna á Grýtubakka Magnússonar, og er það karlleggur til Lofts ríka Guttormssonar. Son áttu prestshjón- in á Völlum, er Árni hét. Hann varð prestur, fyrst á Ríp, þá í Viðvík, á Fagranesi og loks á Hofi á Skaga- strönd. Séra Árni mun fæddur um 1630. Handan við Svarfaðardalsá, á Tjörn, var um sömu mundir prest- ur sá, er Jón hét, sonur Gunnars bónda í Tungu í Fljótum og Ingi- bjargar, dóttur Ólafs Ormssonar frá Hraunum í Fljótum. Kona séra Jóns á Tjörn var Helga Erlendsdóttir prests Guðmundssonar á Felli í Sléttahlíð. Dóttir þeirra hét Ingi- björg. Hún varð kona séra Árna frá Völlum. Frá þvi er sagt, að þá er Ingibjörg var á barnsaldri, hafi faðir hennar 6 eitt sinn tekið hana á kné sér og kveðið þetta við hana: Augun eru eins og stampar, í þeim sorgarvatnið skvampar; ofan með nefinu kippast kampar, kjafturinn eins og á dreka. Mér kemur til hugar, kindin mín, að koma þér niður hjá Léka. Léki þessi var nafnkunnur galdra- maður; var Ingibjörgu síðar, þegar hún hafði aldur til, komið fyrir hjá honum til náms, og varð hún vel fær í fjölkynngi. Hún var síðar köll- uð Galdra-Imba. Séra Árni var einnig kenndur við fjölkynngi, en kona hans þó miklu meir. Voru mikil brögð að þessu, þá er þau voru komin að Hofi á Skaga- strönd. Stóð mönnum um þær mimd- ir mikill ótti af galdramönnum, voru galdramál á hverju ári bæði mörg og flókin, og galdrabrennur aldrei tíðari, því að á ánmum 1667—77 voru 11 menn líflátnir fyrir galdra, en alls 25 á galdrabrennuöldinni (1625 —1685). Svo kom, að sóknarmenn þóttust ekki lengur mega við una, en þá var það séra Ámi, en ekki kona hans, sem hafður var fyrir sökum. Þetta var árið 1679. Þrír lögréttu- menn höfðu borið prest galdri, Jón Egilsson, Halldór Jónsson og Sigurð- ur Jónsson, og enn fjórði maður, Ivar Ormsson. Gísli biskup Þorláksson hélt 5. maí 1679 prestastefnu að Spákonufelli um galdraáburð þennan og nefndi tólf HEIMILISPÖSTURINN

x

Heimilispósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.