Heimilispósturinn - 16.02.1951, Side 12

Heimilispósturinn - 16.02.1951, Side 12
sem honum var dæmdur undanfærslu- eiður, eins og hann g-at vænzt, hefur hann ef til vill talið óþarft að verja sig. Þó verður að telja, að honum hefði veitzt auðveldara að afla sér manna til eiðvættis, ef vitað var, að hann hefði skörulega færzt und- an áburðinum. Ráunin varð líka sú, að hann féll á eiðnum. 1 Mælifells- annál*) segir svo ,,um það galdra- rykti, sem Árni prestur Jónsson hafði fyrir orðið. Var honum dæmdur tylft- areiður, og átti hann að hafa fjóra leikmenn til fangavotta, tvo úr Húna- vatnsþingi og aðra tvo úr Hegranes- þingi. Reið hann um sumarið til þeirra presta, sem honum voru nefnd- ir til eiðvættis, og .... fékk engan þeirra, að fráteknum einum . . . . “ Nú horfði þunglega fyrir Árna presti, er hann átti víst að verða dæmdur frá kjól og kalli, ef ekki yrði enn freklegar að honum búið. Tók hann þann, sem nálega mun eins- dæmi um íslenzkan prest, en var löngum fangaráð umkomulitilla manna, þeirra er kusu ekki að leggj- ast út, að hann strauk að heiman, kom sér í enskt skip í Austfjörðum og kom aldrei aftur til Islands. Þetta var árið 1680. Árið eftir skrifaði hann heim og kvað sér örðugt að vinna fyrir sér, því að ,,sér sé þar tíðkað erfiði ótamt." Ekki varð vist hans löng í Englandi, því að hann andaðist ári síðar, 1681. Þegar hvarf Árna prests fréttist, var lýst eftir honum á alþingi, en vafalaust hafa valdsmenn í Húna- þingi þegar í stað tilkynnt sýslu- *) Höfundur Mælifellsannáls (fyrra hlutans) var Ari prestur Guðmundsson á Mælifelli og prófastur í Skagafirði frá 1680. Hefur honum verið gerkunnugt um málarekstur þennan, liklegast verið á prestastefnuni sjálfur. Hann er í engum vafa um fjölkynngi prestskonunnar á Hofi, svo sem siðar verður greint. mönnum hvarf hans. 1 lögþingisbók- inni 1680 er skráð lýsing hans á þessa leið: Auðkenni Árna Jónssonar, sem var prestur að Hofi á Skagaströnd í Húnavatnsþingi og nú rómast fyrir galdraáburð burt vikinn, eftir skrifi valdsmannsins Guðbrands Arngríms- sonar: Lágur maður, herðamikill, dökkhærður, brúnsíður, dapureygður, svo sem teprandi augum, með ódjarft yfirbragð, hraustlega útlimi. Mundi vera um fimmtugs aldur. Óskar valdsmaðurinn svo sé við hann breytt af yfirvöldum þessa lands, þar fram kemur, sem löglegt og forsvaranlegt vera megi. Nú er séra Árni úr sögunni, en eftir sat kona hans, Galdra-Imba. Þó að hún hefði ekki sætt ákæru fyrir- galdra, var það almannaróm- ur, að hún hafi átt engu minni sök en maður hennar á því, sem hann varð nú að flýja heimili, embætti og ættjörð fyrir. Svo segir í Mæli- fellsannál: „Kona hans • Ingibjörg meintist helzt völd af því, sem manni hennar var kennt; hún var Jónsdótt- ir. Var þá mælt hún hefði verkmeist- ari verið til þessa, ásamt djöflinum, sem hún síðar sýndi merki til.“ Munn- mæli herma, að hún hafi ekki vitað, eða þótzt vita, er maður hennar strauk. Hún elti hann og rakti spor hans að sjó i Loðmundarfirði. Þar varð hún að láta staðar numið. En hvort sem Ingibjörg hefur komið í Loðmundarfjörð á hlaupum eftir manni sínum, og auðvitað neytt fjöl- kynngi sinnar til þess að rekja slóð hans, þá er það víst, að þangað kom hún og þar bar hún beinin. Þuríður, dóttir þeirra hjóna, giftist sem sé austur þangað og bjó í Nesi í Loð- mundarfirði; fór móðir hennar til hennar, þegar hún var ein orðin og var hjá henni til dauðadags. 10 HEIMILISPÓSTURINN

x

Heimilispósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.