Heimilispósturinn - 16.02.1951, Síða 16
JOSEPH METCALF:
Voveiflegt ferðalag
Fært í letur af George E. Stuart-Reid.
Það var verið að ljúka við
vatnsveituna. Hið mikla vatns-
veitumannvirki, þekkt undir
nafninu Sand-, Bulk- og Palmet-
áastíflan, um 70 km. norðvestur
af borginni Port Elizabeth í
Höfða-nýlendu, var fullgerð í
júlí 1906, eftir meira en fjögurra
ára stranga vinnu heils herskara
manna, hvítra og svartra.
Þegar vígsludagurinn rann
loks upp, vildu allir, sem ein-
hverja hlutdeild höfðu átt að
verkinu, fá tækifæri til að sjá
ávöxt erfiðis síns. Ef allt væri
í lagi, átti þetta að gerast á
þann hátt, að stóra, tilbúna
tjarnarstæðið í miðjum St. Ge-
orgs-garðinum í Port Elizabeth
fylitist tæru, glitrandi vatni úr
vatnsveitunni frá stíflunni.
I Sandárdalnum biðu meira
en hálf miljón rúmmetrar af
vatni bak við hinn mikla, tuttugu
metra háa stíflugarð, eftir því
að fá útrás gegnum risavaxn-
ar flóðgáttirnar. Við byggingu
stíflunnar, er hófst 1902, höfðu
tvö þorp, tólf bújarðir með hús-
um og stórt landsvæði smátt og
smátt færzt í kaf, eftir því sem
stíflan hækkaði og vatnið dýpk-
aði.
Án þess að fara frekar út í
tæknileg atriði, skal ég geta
þess, að leiðslan var úr venju-
legum vatnsleiðslupípum, er voru
sex feta víðar við stífluna og
þrengdust svo smátt og smátt
að útrásinni í St. Georgs lysti-
garðinum; þar voru þær aðeins
fjögur fet í þvermál. Borgin Port
Elizabeth hafði átt í miklum örð-
ugleikum með neyzluvatn fram
að þessu, og þúsundir íbúanna
höfðu fylgzt með byggingu stífl-
unnar af mikum áhuga, því von-
ir stóðu til, að veitan myndi ráða
bót á vandræðunum.
Vatnsleiðlan til borgarinnar
var útbúin rennslisjöfnunar-
,,hönum“ með vissu millibili, til
þess að hafa hemil á rennslinu.
Þennan dag, 4. júlí 1906, er vatn-
inu var hleypt í leiðsluna í fyrsta
sinn, var vörður við hvern þess-
ara „hana“, er fengið hafði
skýrar og ákveðnar fyrirskipan-
ir um starf sitt.
Á þeim tíma, er áætlað var
að f yrsta gusan kæmi inn í lysti-
garðstjörnina, fór fólk að flykkj-
ast saman á tjarnarbakkanum,
með borgarstjórann, James
Mclllwraith, í fararbroddi.
Þarna var líka hljómsveit Prinz
Alfreds herdeildarinnar, slökkvi-
liðið, hafnarstjórnin og hluti af
sjálfboðaliðshersveit héraðsins,
undir stjórn Gee höfuðsmanns.
Þegar fór að votta fyrir fyrsta
vatnslekanum út úr vatnsleiðsl-
unni, hóf hljóðfærasveitin leik
sinn með laginu „Líf á öldum
14
HEIMILISPÓSTURINN