Heimilispósturinn - 16.02.1951, Qupperneq 24

Heimilispósturinn - 16.02.1951, Qupperneq 24
ur alveg á brúninni, með hendur fyr- ir andlitinu, og ég átti í miklu basli með að fá hana til að snúa sér við vegna hugaræsings hennar. Þetta var örðug aðstaða, en barnaleikur á móts við það, sem síðar kom. Með þolinmæði og lagni tókst mér loks að laða hana frá brúninni. Við fór- um svo upp á efri brúnina og hvíld- um okkur og reyndum að koma ró á taugarnar. Það tók nokkurn tíma að róa hana og búa hana undir nið- urgönguna, sem ég hugsaði nú til með vaxandi kvíða. Allir, sem gengið hafa á fjöll, vita, að það er miklu auðveldara að fara upp heldur en niður, þar sem bratt er. Mér varð fljótt ljóst, að þetta hlaut að hafa mikla örðugleika í för með sér, og eftir hina miklu geðshræringu, sem vesalings konan mín hafði orðið fyrir, hraus henni hugur við að hætta sér niður bratta klettana. Degi var tekið að halla. Þessir tveir klukkutímar, sem fylgd- armaðurinn hafði tiltekið, voru næst- um á enda. „Við verðum að fara til baka,“ sagði ég. „Komdu, vertu hughraust, elskan mín. Ég ætla að fara á undan, fet fyrir fet. Þú skalt styðja höndum á axlirnar á mér og ég skal hjálpa þér.“ Niðurgangan var hræðileg, og því neðar sem við komum, kom leiðin mér ókunnuglegar fyrir. Ég hafði búizt við að sjá grasbrekkuna og litla lækinn, en í stað þess komum við niður í grýtta urð, sem ég minnt- ist ekki að hafa séð áður. Skyndi- lega varð mér Ijóst, að við vorum villt. Mér varð á víxl heitt og kalt af geðshræringu, og bölvaði heimsku minni, að hafa flanað út í þetta flakk án fylgdarmanns. Eftir afstöðu sól- arinnar gat ég mér þess til, að við hefðum fjarlægzt selið og farið snið- hallt áleiðis að vatninu. Ég setti konuna mína á öruggan stað og fór að rannsaka aðstæður. Mér varð brátt ljóst, að til þess að komast að selinu, yrðum við að fara yfir dá- lítið gil, því hinum megin við það kannaðist ég við einkennilega kletta, sem ég hafði tekið eftir á leiðinni upp. Þegar ég fór að leita að leið niður, fann ég engan auðveldan stað, en við ítarlegri leit, fann ég stað, sem mér virtist vel fær. Ég gerði ráð fyrir, að þegar við værum kom- in niður, gætum við auðveldlega komizt fram hjá klettum, er skög- uðu fram á leiðinni, og upp hinum megin. Það kom samt í ljós, að þarna var miklu örðugra að komast niður en ég hafði gert mér í hugarlund. Eftir að hafa runnið og skrikað nokkrum sinnum — sem í hvert sinn jók á hræðslu konunnar minnar —, urðum við að stanza, því að ógemingur var að halda áfram. Við vorum nú á mjórri syllu, sem skagaði eins og hilla út yfir hengiflugið niður að vatninu. — Ég skil enn ekkert í, hvað varð af leiðinni niður, sem ég þóttist hafa fundið! Ég stóð með annan fótinn á kletta- syllunni, en hinn fótinn dálítið hærra uppi. Konan mín stóð, titrandi og óttaslegin, dálítið fyrir ofan mig, studdi sig á axlir mér og hélt dauða- haldi um hægri handlegg minn. Það var gersamlega óhugsandi, að snúa aftur sömu leið upp hliðina, þvi að konan mín varð máttlaus af skelfingu við að sjá hyldýpið fyrir neðan okk- ur. Báðar leiðir virtust algerlega ó- færar. Við vorum í vonlausri að- stöðu, og aðeins örþrifaráð gátu bjargað okkur. Stórir svitadropar stóðu á enni mér og ég fann, að ég var að smit- ast af titringi og taugaæsingu konu minnar, og vissi því, að ég mátti ekki vera lengi í þessari stöðu. Já, og nú þyrmdi hún yfir mig, hin 22 HEIMILISPÓSTURINN'

x

Heimilispósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.