Heimilispósturinn - 16.02.1951, Blaðsíða 28

Heimilispósturinn - 16.02.1951, Blaðsíða 28
A. J. ALAN: Ævintýrið í sumarhúsinu EG veit ekki, hvernig því er háttað með þig, en þegar kemur fram í febrúar, segir konan mín venjulega við mig: „Ertu farinn að hugsa um, hvar við eigum að vera í sumarleyf- inu þínu?“ Og auðvitað kveð ég nei við því, og þá fer hún að athuga blöðin, þar sem sumar- hús eru auglýst til leigu. Þetta gerðist í fyrra, eins og raunar oftast áður, og loks rakst hún á auglýsingu, sem okkur leizt vel á. Það var sumarbústaður í Norfolk, búinn húsgögnum og með öllum þæg- indum, meira að segja bílskúr. Hún varð strax óð og uppvæg, og það stoðaði ekki hót, þó að ég benti henni á, að slíkur bú- staður hlyti að vera leigður með afarkjörum. Hún sagði mér að fara og hitta eigandann og fá hann til að sýna mér bústaðinn, hann myndi áreiðanlega gera það umyrðalaust. En það gera þeir reyndar ekki alltaf, en þetta er útúrdúr. Ég skrifaði eigandanum og spurði, hvort hægt væri að koma því svo fyrir, að ég gæti dvalizt næturlangt í sumarbú- staðnum, svo að ég gæti kom- izt að raun um, hvernig mér lík- aði hann. Hann svaraði mér á þá leið, að sjálfsagt væri að verða við beiðni minni, og kvaðst mundu gera ráðstafanir til að kona kæmi umræddan dag, til þess að taka til í húsinu og búa um rúmin. Ég kom á áfangastaðinn í blindbyl, og mér virtist um- hverfið ákaflega eyðilegt. En þegar ég kom inn í bústaðinn, brá mér í brún, því að þar var hlýtt og notalegt. Konan, sem eigandinn hafði sent, hafði kveikt eld í arninum og beið mín með heitan kvöldverð. Þeg- ar ég hafði lokið við að snæða hann, bauð hún mér góða nótt og fór. Ég athugaði húsakynnin og leit síðan út rétt sem snöggvast. Það var koldimmt, en snjókom- an var minni en áður. Bílskúr- inn var um fimmtán metra frá bústaðnum. Ég gekk í kringum hann, en fór ekki inn. Mér leizt þannig til, að fallegt myndi vera þarna á sumrin, en vetrarríki mikið. Síðan fór ég aftur inn og settist hjá arninum. Allt var kyrrt og hljótt. Klukkan tæplega ellefu heyrði ég í bifreið. Ef hún hefði hald,- ið áfram framhjá húsinu, hefði ég sennilega ekki veitt henni eftirtekt. En hún hélt ekki áfram. Hún virtist stöðvast nokkru áður en hún kom á móts við bústaðinn. En það var svo sem ekkert einkennilegt. Bif- reiðar eru alltaf að staðnæmast. Það hljóta að hafa liðið tíu mínútur áður en ég veitti því athygli, að bifreiðin hafði ekki farið af stað aftur. Ég stóð upp og leit út um gluggann. Það var hætt að snjóa, og spölkorn í burtu sá ég framljós á bifreið. 26 HEIMILISPÓSTURINN

x

Heimilispósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.