Vinnan - 01.11.1985, Page 3
vinnan
Tlmarit Alþýðusambands íslands
6. tbl. 35. árg. 1985
Rltnefnd:
Ásmundur Stefánsson (ábm.), Guðmundur
Hallvarðsson, Guömundur Þ. Jónsson og
Guðrlður Elfasdóttir.
Rltstjórn:
Sigurjón Jóhannsson.
Afgrelðsia og auglýsingar:
Grensásvegi 16,108 Reykjavlk.
Slmi 83044.
Setning: Alprent.
Prentun: Blaðaprent.
Starfsfóljí stofnana ASÍ
Starfsfólk ASÍ:
Ásmundur Stefánsso^i. forseti ASÍ
Kristín Mántylá, skrifstofustjóri
Björn Björnsson. hagfrædingurog
umsjónarmaötir Reiknistofu ASÍ
Bolli B. Thoroddsen, hagrædingui
Sigurþór Sigurðsson. hagræðingur
Lára V. Júlíusdóttir, lögfræóingur ASÍ
Ingibjörg Haraldsdóttir. gjaldkeri
Baldur Magnússon. umsjónarmaður
Reiknistofu
Guðlaug Halldórsdóttir, fulltrúi
Ragnhildur IngóMsdóttir, fulltrúi
Áslaug Ásmundsdóttir. ræstingar
Fólk i hlutastiirfum, eða ráðið til
skemmri tima:
Sigurjón Jóhannsson. Vinnan
Helgi Guðmundssön. MFA
Kristjana Kristinsdóttir, Sögusafn
Starfsfólk MFA:
Tryggvi Þór Aðalsteinsson, fcamkvæmdastj.
Snorri S. KonráðSson, fræðslufulltrúi
Þráinn Hallgrímsson, fræðslufulltrúi
Listasafn alþvðu:
Þorsteinn Jónsson. forstöðumaður
^Guðmtmdur Konráðsson, starfsmaður
Þessar þrjár stofnanir eru til húsa að
Grepsásvegi 16, 108 Revkjavtk
Sími ASI': 83044, pósthólf'8720
Sími MFA: 84233. pósthólf 8476
Sími Listasafns alþvðu: 81770.
pósthólf 8720
Forystugreinin:
Kröfur um kauptryggingu
að hafa ekki skipst á skin og skúrir í kjaramálum
síðustu misseri. Fremur má segja að við höfum búið við
samfellda súld, rigningu og hret.
Forsendur febrúarsamninganna á síðasta ári stóðust
ekki. Verðhækkanir urðu meiri en búist var við. Ríkis-
stjórnin hafðist ekki að og kaupmáttur féll. í samning-'
unum voru engin kauptryggingarákvæði.
Nóvembersamningarnir, sem gerðir voru í far samn-
ings ríkisstjórnarinnar við opinbera starfsmenn, skil-
uðu litlu. Kauphækkun var að sönnu stór en þegar á
öðrum ársfjórðungi var kaupmátturinn Iakari en fyrir
samninga. Með samræmdum stjórnvaldsaðgerðum var
árangrinum eytt. í samningunum voru engin kaup-
tryggingarákvæði.
M eð samningunum í sumar var reynt að treysta
forsendur með því að leggja fram áætlun um verðlags-
þróun. Forsætisráðherra gaf þjóðinni yfirlýsingu í 17.
júní-ávarpi um að ríkisstjórnin axlaði ábyrgðina og
verðlagi skyldi haldið innan marka. Við afgreiðslu
samninga tók fólk mark á þessari yfirlýsingu og trúði
orðum forsætisráðherra. En ríkisstjórnin lagðist fyrir
og beið þess sem verða vildi og hún bíður enn þótt allt
sé yfir dunið. íslensk stjórnvöld ráða ekki gengisbreyt-
ingum úti í hinum stóra heimi. íslensk stjórnvöld
ákveða ekki gengi dollara á móti pundum og þýskum
mörkum, en þeim ber skylda til þess að bregðast við
með raunhæfum aðgerðum svo sviptingar í útlöndum
færi ekki allt úr lagi hér heima. Slík vinnubrögð hafa
engin verið af hálfu stjórnvalda að undanförnu. Þrátt
fyrir loforð ríkisstjórnarinnar hafa verðlagsforsendur
samninganna brugðist. Kaupmáttur hefur því fallið. í
samningunum voru engin kauptryggingarákvæði.
T
A il þess að tryggja kaupmáttinn eru tvær aðferðir.
Sú fyrri felur í sér að með samningum sé tryggt að kaup
fylgi verðlagi. Sú síðari felur í sér að gerðar séu ráðstaf-
anir til þess að halda verðlagi í skefjum. Reynslan sýnir
okkur að stjórnvöld hafa hafnað síðari leiðinni. Ríkis-
stjórnin hefur reynst tilbúin til yfirlýsinga en ekki til
þess að axla ábyrgðina í reynd.
í dag eru lán tryggð þannig að þau elti verðhækkanir
og fyrirtækjum er tryggður réttur til að hækka verðlag
til jafns við kostnaðarhækkanir og þau búa raunar við
frelsi til þess að gera betur. í reynd er nær allt í þjóðfé-
laginu verðtryggt nema kaupið. Sá sem lifir á kaupi á sitt
undir því að treysta megi stjórnvöldum til þess að halda
verðlagi í skefjum. Því trausti hafa stjórnvöld brugðist.
▼ erkalýðshreyfingin hefur Iýst sig reiðubúna til þess
að skoða allar leiðir til þess að tryggja kaupið. Aðferðin
er ekki heilög. Það er árangurinn sem skiptir máli, ekki
kauphækkun í krónutölu heldur kaupmátturinn.
Reynslan sýnir að kauphækkun sem ekki er tryggð er
lítils virði. Henni má eyða á augabragði.
Trygging aukins kaupmáttar verður meginmál næstu
samninga. Um þá kröfu verðum við öll að sameinast.
Ásmundur Stefánsson.
VINNAN 3