Vinnan


Vinnan - 01.11.1985, Page 5

Vinnan - 01.11.1985, Page 5
STIG Samningamir frá 15. júní í sumar gilda til ársloka, en eru þá lausir án uppsagnar. Samkvæmt samningunum hækkuðu laun almennt um 5% við undirskrifi, 2,4% frá 1. ágúst og 4,5% fiá 1. október. Lægstu laun hækk- uðu séistaklega með tilfæislu um einn launaflokk hjá þeim sem voru undir 25. lfl. Þá var jafnframt tekið upp ákvæði um lágmarksstarfsaldur í lægstu flokkum og takmarkanir á aldurshækkunum að loknu 6 og 7 ára starfi voru felldar niður. Meðalhækkun launa til ára- móta er um 1416%. Lægstu laun hækka um 16,8%. JCjarasamningnum fylgdi bókun aðila á þá leið, að hann væri gerður í trausti þess að verðlagsþróun héldist innan tiltekinna marka. Miðað við, að vísitala fram- færslukostnaðar yrði þann 1. ágúst undir 144 stigum, 149 stigum í október og 154 stigum í desember. í kjölfar samninganna gáfu stjómvöld afdráttarlausar yfirlýs- ingar um að þessar viðmiðanir myndu standast. Reynd- in hefur orðið önnur. Strax í ágúst reyndist framfærslu- kostnaður 144,9 stig eða 0,6% yfir mörkunum. í októ- berbyrjun mældist vísitalan 151,96 stig eða 2% yfír fyrr- greindri viðmiðun. Vegna mikillar óvissu í gengismálum er erfitt að spá um stöðuna í desember, en augljóst er, að aílar likur em á að það frávik sem hér um ræðír fari fremur vaxandi. Ekki verðm hér fjölyrt um ástæður þessa, en Ijóst er að þung undiralda innlendrar verðbólgu veldur hér mestu. Óhagstæð þróun gengismála á alþjóðavettvangi skiptir Hka nokkru, en gengisþróunin hefm þó ekki ver- ið jafn óhagstæð og stjómvöld hafa viljað láta á sér skiljast. Gengisbreytingar gagnvart innflutningi mælast frá áramótum til 7. október 13,35%, en 10,33¥o gagn- vart útflutningi. Misgengið er því einungis 2,75%. Rétt er að hafa I huga, að fiskvinnslan hefm á sama tímabili notið hækkandi verðlags á mörkuðum vestan hafs. Sama gildir um ferskfísk- og sal t fiskmar k aði í Evrópu. Samningarnir í júní Gengisbreytingarnar að undanförnu styrkja líka stöðu innlends iðnaðar gagnvart innflutningi og létta greiðslubyrði af erlendum lánum. Gengisþróunin hefm vissulega tvær hliðar, aðra jákvæða en hina neikvæða. Kaupmáttur Af framansögðu er Ijóst, að kaupmáttur taxtakaups verðm nokkm lakari á síðari hluta ársins en að var stefnt í samningunum. Að óbreyttum forsendum um gengis og launabreytingar innan lands verðm kaupmátt- ur á síðasta fjórðungi ársins að líkindum VA—2% lakari en hann var á IV ársfjórðungi 1983. B.R Kaupmáttur kauptaxta ASÍ Ársmeðali. IVársfj. Ár/ársij. 1980=100 1983 = 100 1980 100.0 137.1 1981 99,7 136,7 1982 98,3 134,8 1983 79,1 108,4 1984 73,2 100,3 1985 72.5, 99,4f 1984 1. ársfj. 73,0 100,1 2. ársfj. 73,6 100,9 3. ársfj. 72,2 98,9 4. ársfj. 73,9 101,3 1985 1. ársfj. 73,4 100,6 2. ársfj. 72,2 99,0 3. ársfj. 72,8 99,8 4. ársfj. 71,5S 98,0$ VIMMAM 5

x

Vinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.