Vinnan - 01.11.1985, Síða 7
greidda premíu eftir sem áður. í stærri
frystihúsunum er þó víða búið að fella
þessi störf undir bónuskerfið, sem hef-
ur í mörgum tilvikum þýtt hærri kaup-
auka en premía, eða svipað og hjá öðr-
um sem eru í bónus. Stefnan er sú að
mæla premíustörfin og fella þau undir
bónuskerfið eftir því sem tök eru á, en
það er ekki alltaf hægt — einkum er
þetta erfitt í minni frystihúsunum.
í sumum tilvikum er premíugreiðsla
hærri en bónus, en með nýja samningn-
um hækkaði jú premían verulega.
Vinnan: í síðasta hefti Vinnunnar er
sagt á einum stað: „Jón Kjartansson í
Vestmannaeyjum segir að unnið sé að
því að koma öllu aðstoðarfólki á ein-
hvers konar bónus, því að það skapar
óneitanlega togstreitu ef Iaunamunur er
of mikill innan sama starfsramma!1
Tókst þetta að einhverju leyti í samning-
unum?
Bolli: Ég tel að það hafi tekist að rétta
hlut þessa fólks, og að launabilið hafi
þrátt fyrir allt minnkað verulega.
Vinnan: Hvaða hópar hafa þá
ástæðu til að vera óánægðir?
Bolli: Það eru sérstaklega þeir sem
vinna í saltfiski og skreið. Þar er fyrst og
fremst að kenna tregðu SÍF að leggja í
kostnað sem þurft hefur til að kalla á
bónus í þessum greinum fiskvinnslunn-
ar. Afleiðingin er sú að heildarstefnu
vantar, og það eru alls konar útgáfur í
gangi, þar sem verkstjórar hafa breytt
einu og kannski okkar fólk öðru. Þarna
verður að fá hreinni línur, enda segir í
nýja samningnum að staðlar skulu end-
urskoðaðir á samningstímabilinu. Þeir
sem vinna í saltfiski og skreið fá sömu
hækkun á bónusgrunni og aðrir.
Ákvæði um premíulaun er ekki að
finna í samningi um saltfisk og skreið.
í samningnum um bónus við fryst-
ingu eru ýmis framkvæmdaatriði betri
en í gamla samningnum, t. d. við endur-
vinnslu og framkvæmd skoðunar
(gæðaeftirlit), þar sem stjórnendur
verða að hafa samvinnu við fólkið um
þessa hluti. En eftir sem áður setja þeir
gæðakröfurnar miðað við markaðinn á
hverjum tíma.
Þá er breyting á svonefndu sér-
vinnslukerfi í borðavinnu, en í því fer
„Nú á að vera að
mestu jafnræði milli
starfanna varðandi
bónusgreiðslur“
snyrting fram á einum stað en vigtun og
pökkun á öðrum. I fullvinnslukerfinu
er þetta allt unnið af sama fólkinu á
sama borði. Áður var vandamál að
flytja fólk frá t. d. snyrtingu yfir í pökk-
un og vigtun vegna þess að bónustekj-
urnar gátu Iækkað allmikið. Nú á að
mestu að vera jafnræði milli starfanna
með því að taka upp bónusgreiðslur fyr-
ir nákvæmni í vigtun og vandvirkni í
pökkun í sérvinnslunni.
Atvinnurekendur töluðu oft um það
á samningafundunum að kjör fisk-
vinnslufólksins væru mjög bág, að það
þyrfti að hækka launin, en sögðu samt
að yrðu launin hækkuð verulega myndi
það flæða yfir allt þjóðfélagið.
Vinnan: Þetta sást m. a. i einhverju
viðtali við frystihúseiganda. Erum við
ekki sammála um að læknar eða prestar
eða einhverjir aðrir slíkir hópar fengju
sínar launahækkanir burtséð frá því
hvort fiskvinnslufólk lækkaði eða
hækkaði í launum?
Bolli: Vissulega, og það var athyglis-
vert að þegar slitnaði upp úr viðræðun-
um með nokkrum þjósti hafði komið
fram ný leið, sem fara mætti til að
hækka launin án þess að það færi í
launahækkunarskriðuna, en það var
einfaldlega að koma á svonefndum
framleiðnibónus. Við fengum ekki einu
sinni tækifæri til að skýra þetta mál, því
að viðsemjendur okkar ruku á dyr áður
en við höfðum lokið máli okkar. Þann-
ig er nú hugarfarið hjá þessu fólki.
Framleiðnibónus er velþekkt fyrir-
bæri í Járnblendiverksmiðjunni, í Ál-
verinu, Áburðarverksmiðjunni, Kísil-
gúrverksmiðjunni og víðar. Grundvall-
arsjónarmiðið er að fólk fái eitthvað
aukalega í sinn hlut, ef vel gengur, og
þvi kjörið fyrirkomulag til að bæta kjör
fólksins í fiskvinnslunni.
Ég vona að menn skoði betur hug-
myndina um framleiðnibónusinn sem
vænlega leið til að hækka launin.
Þetta kerfi er notað í Danmörku og
víðar og mér kom því á óvart hver við-
brögðin voru þegar bent var á þessa leið.
Ég vil að lokum benda á að á ráð-
stefnu á vegum Verkamannasambands
íslands í apríl 1984 var rætt um að taka
hluta af bónuslaununum og setja inn í
fastakaupið og gera með því hlut bónus-
ins í launum minni. En þetta mætti mik-
VINNAN 7