Vinnan


Vinnan - 01.11.1985, Page 17

Vinnan - 01.11.1985, Page 17
hugsaði ég fyrst og fremst um að standa mig. — Datt þér aldrei í hug svona ungri að víkjast undan svo miklum skyldum? — Nei, ég held að mér hafi aldrei gefist ráðrúm til að hugsa um það. Það rak hvert verkefnið annað, það var verið að segja upp fólki og maður gerði allt sem hægt var til að verja réttindi þess. Ég man að einu sinni var starfsstúlka á Kleppi rekin fyrir að koma of seint heim, en það var í hennar eigin frítíma. Ég rauk upp og fór inn á Klepp til að tala við fólkið þar. Hún átti samkvæmt samningum þá rétt á launum í ákveðinn tíma, fæðispeningum, þvottapeningum o. fl. Þegar ég gerði forstöðukonunni þetta ljóst var brottvikningin dregin til baka. Einu sinni vorum við ákveðnar í að gera verkfall. Við fórum þá bæði fram á kauphækkun og verkfallsrétt viður- kenndan. Okkur var sagt að við mætt- um ekki sem starfsmenn á sjúkrahúsum gera verkfall. En við sögðum að slíkt stæði hvergi í islenskum lögum. Þá var okkur öllum hótað brottrekstri, en við hótuðum á móti aö láta málið fara fyrir dómstóla. Við sátum og ræddum málin niður í Alþýðuhúsi, á skrifstofu Fram- sóknar, því við höfðum þá enga skrif- stofu. Verkfall átti að hefjast kl. tólf en kortér yfir ellefu var okkur boðið til samninga. Við vorum býsna glúrnar og kynntum okkur vel vinnulöggjöfina, „Aðalatriöiö aö skipta störfum og treysta öörum ...“ enda vissum við að með þekkingu að vopni ynnist allt betur. Einu sinni lentum við í harðri deilu um hvernig ætti að túlka lengd sumar- fría, þ. e. hvort frídagar ættu að teljast með í hálfs mánaðar sumarfríi sem við höfðum samið um. Eggert Claessen var nokkurs konar kviðdómandi og hann sagði, eftir að hafa kynnt sér skilgrein- ingu okkar á málinu, við nefndina frá ríkisspítölunum að sér fyndist þetta af- ar ljóst mál. Vikulegir frídagar gætu ekki talist með orlofi og þegar svo mæt- ur maður hafði talað þá þorði enginn að hreyfa mótbárum. Á þessum árum stóð slagurinn meira um það sem við köllum í dag mannrétt- indamál en kaupgjaldsmál. Við lögðum alla áherslu á að konur væru persónur og fullgildir samningsaðilar. Á öllum mínum formannsferli, sem stóð í 12 ár, þáði ég aldrei laun né nokkrir aðrir í stjórn, en nú eru allir á launum hjá félögunum og það er alveg rétt stefna. Við hjálpuðum líka stúlkum er unnu á kaffihúsum að stofna félag. Það var farið ákaflega illa með þessar stúlkur á stríðsárunum. Þær unnu margar á vöktum og ég man að ég kom einu sinni í herbergi vestur í bæ þar sem stúlkurnar skiptust á að sofa og hvíla sig — þær urðu að deila herberginu og rúmfletum á þennan hátt. Það var erfitt að komast í samband við þessar stúlkur og þær voru flestar hræddar. Ég og Jón Rafnsson heitinn gengum um bæinn á kvöldin til að hitta stúlkurnar, gengum inn á alla kaffistaði og fengum okkur limonaði og sættum færis að spjalla við stúlkurnar. Á Hótel Borg var erfitt að nálgast fólkið, en við náðum leynilegum fundi með starfsfólkinu á herbergi, sem vinur Jóns hafði þá á leigu. Við Jón vorum búin að sjást svo lengi á götum bæjarins að fólk var farið að bjóða okk- ur heim sem pari. Félagið, sem í dag heitir Félag starfsfólks í veitingahúsum, varð svo til skömmu eftir að ég hætti formennsku og fluttist til Hollands. Svona var þetta í þá daga, maður gekk í þau störf, þar sem maður áleit að mað- ur gæti orðið að liði. Ég fór einhvern tíma á stríðsárunum „Náöum leynilegum fundi á herbergi á Hótel Borg ...“ á vegum ASÍ til Akureyrar til að undir- búa stofnun Iðju. Þá starfaði ég með Erlingi Þórðarsyni, sem var heitur en gamaldags alþýðuflokksmaður. Við ætluðum að halda fund á ákveðnum stað á Akureyri, en Erlingur sagði að þar gætum við ekki haldið fund, því að þar héldu kommúnistar fundi og salur- inn væri smitaður! Það var svona hart í þá daga. — í 10. grein samninga Sóknar um laun í veikinda- og slysatilfellum stend- ur að starfsmenn njóti ókeypis læknis- hjálpar, lyfja og sjúkrahússvistar að svo miklu leyti sem sjúkrasamlag eða al- VINNAN 17

x

Vinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.