Vinnan


Vinnan - 01.11.1985, Blaðsíða 19

Vinnan - 01.11.1985, Blaðsíða 19
Rafiðnaðarskóli stofnaður Rafiðnaðarskólinn, en að honum standa Eftirmenntunarnefnd raf- iðnar og Eftirmenntun rafeindavirkja, var opnaður með viðhöfn 20. september sl. Skólinn er í leiguhúsnæði að Skipholti 7. Þessi nýja og bætta aðstaða gerir nú kleift að bjóða bæði upp á dag- og kvöldnám- skeið. Forsvarsmenn skólans eru þeir Guðmundur Gunnarsson og Örlygur Jónatansson. Frá stofnun Rafiðnaðarskólans, á innfelldu myndinni er Guðmundur Gunnarsson að rekja aðdragandann að stofnun skólans. Aukin tengsl skóla og atvinnulífs Inga Jóna Þórðardóttir, fulltrúi hjá menntamálaráðuneytinu, opnaði skól- ann í fjarveru Ragnhildar Helgadóttur menntamálaráðherra. Hún sagði m. a. að menntamálaráðherra hefði mikinn áhuga á að stuðla að auknum tengslum skóla og atvinnulífs og væri samvinna vinnuveitenda og launþega í rafiðnað- inum þar til eftirbreytni. Inga Jóna Þórðardóttir sagði að nú væri unnið að endurskoðun iðnfræðslulöggjafarinnar og vonaðist hún til að störfum nefndar- innar lyki um miðjan vetur og þá væri hægt að leggja fram nýtt frumvarp um iðnfræðslu síðla vetrar. Eftirmenntun hentug og nauðsynleg Guðmundur Gunnarsson, sem borið hefur hita og þunga af eftirmenntunar- málefnum rafvirkja á undanförnum ár- um sagði m. a. í ávarpi sínu: „Öllum er kunnugt um hina öru þró- un rafbúnaðar undanfarin ár, sem segja má að hafi hafist með tilkomu hálfleiö- arans og síðan tekið verulegt skrið upp úr 1970, þegar örtölvan kom. Þessi þróun hefur valdið mikilli breytingu á verkefnum rafiðnaðar- manna. í dag starfa hlutfallslega mun fleiri rafiðnaðarmenn en nokkru sinni áður við rekstur, viðhald og þjónustu svo og hönnun, framleiðslu og uppsetningu stýri- og tölvubúnaðar fyrir atvinnu- vegina. Nær öll störf í rafiðnaðinum eru sífellt að verða flóknari og sérhæfð- ari. Þetta hefur kallað á meiri menntun og sérhæfingu. Eftirmenntunarkerfi er mjög heppilegt til að koma til móts við þessa þróun, með námskeiðum er hægt að koma nýjungum á framfæri við vinnumarkaðinn á tiltölulega skömm- um tíma. Þau eru einnig nauðsynleg þegar menn vilja færa sig milli starfa og þurfa að afla sér frekari menntunar. Gott samstarf viö Iðnskólann Þetta hefur valdið því að þörf rafiðnað- armánna fyrir námskeiðin er mikil og við höfum orðið að fjölga þeim veru- lega. Nær öll námskeið eftirmenntun- arnefndanna hér á höfuðborgarsvæð- inu hafa verið haldin í Iðnskólanum í Reykjavík. Við höfum átt mjög gott samstarf við starfsfólk rafmagnsdeild- anna þar. En aukin starfsemi okkar, og vaxandi áhugi og þörf fyrir dagnám- skeið, hefur valdið því að nauðsynlegt var að koma upp okkar eigin kennslu- aðstöðu. Þar sem liðlega helmingur nám- skeiða rafvirkjanna eru haldin úti á landi sáum við fram á að þörf eftir- menntunarnefnda samtakanna fyrir kennsluaðstöðu féll mjög vel saman, og í sameiningu gátum við náð mjög góðri nýtingu á húsnæði og tækjum. Góðir gestir, undirstaða aukinnar iðnaðaruppbyggingar hér á landi felst í því að til séu iðnaðarmenn, sem geta séð um rekstur og viðhald á þeim tækjum sem iðnaðurinn þarf á halda. Iðnaðar- menn, sem þekkja það nýjasta og besta í sinni iðngrein hverju sinni. Þær miklu fjárhæðir, sem samtök rafiðnaðarmanna hafa lagt í eftir- menntun sína og sókn félagsmanna inn á námskeiðin, sýnir vilja rafiðnaðar- manna til að vera með í uppbygging- unni. Þá leyfi ég mér að nota þetta tækifæri til þess að þakka þeim fyrirtækjum og einstaklingum sem sýnt hafa starfi okk- ar velvild, m. a. með því að gefa okkur kennslutæki eða greiða fyrir þessu starfi á annan hátt. Hugartölvan Sverrir Hermannsson iðnaðarráðherra var einnig viðstaddur opnun skólans og flutti hann stutta en snjalla tölu. Hann sagði m. a. að sér hefði verið tjáð að tölvutæki af nýjustu gerð, sem skólinn VINNAN 19

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.