Vinnan


Vinnan - 01.11.1985, Side 21

Vinnan - 01.11.1985, Side 21
MFA tekur upp samstarf viö Tómstundaskólann: Aðsóknin kom á óvart Þessi míkli áhugi á starfi Tómstundaskólans hefur sannarlega fariö fram úr okkar björtustu vonum. Við bjuggumst viö góöum undirtektum, endabýðurskólinn uppáýmislegt, sem ekki er á boðstólum annars staðar, en miðað við það mikla frístundanám, sem í boði er þá hefur þessi mikla aðsókn að skólanum komið skemmtilega á óvart. Stundvísi og áhugi — Að hvaða leyti er námið í Tóm- stnndaskólanum fiábrngðið venjnlegu skóianámi? — Það eru t. d. ekki próf hjá okkur, en það sem vekur sérstaka athygli hér í Þrúðvangi, þar sem kennslan fer fram, er stundvísi og áhugi þátttakenda. Oft- ast eru þátttakendur komnir á staðinn talsvert áður en kennsla hefst og ég held ég megi næstum því segja að kennslu- stundir hefjast að jafnaði skömmu fyrir auglýstan tíma. Það er því betra fyrir fólk að vera stundvíst í Tómstundaskól- anum. .. Ingibjörg Guðmundsdóttir, skólastjóri Tómstundaskókms. tekur fjölmiðlun hjá okkur, verður væntanlega hæfari til að takast á hend- ur verkefni á því sviði. Svipmynd frá skólastarfinu. Vrö erum að ræða við Ingibjörgu Guðmundsdóttur, skólastjóra Tóm- stundaskólans. Á fimmta hundrað manns hafði samband við skólann nú við skráningu á haustönn og þegar eru skráðir á námskeið í skólanum hátt í þrjú hundruð þátttakendur á 27 nám- skeiðum. Samstarf tókst nýlega milli MFA og Tómstundaskólans um rekstur skólans fyrir það starfsár, sem nú er að hefjast. Við spyrjum Ingibjörgu Guð- mundsdóttur, hvaða möguleika Tóm- stundaskólinn veiti væntanlegum þátt- takendum í frístundanámi. — Það eru í rauninni víðtækir möguleikar sem bjóðast í námi við Tómstundaskólann. Víð bjóðum ekki upp á hreina starfsmenntun í þeim skilningi eða formlega skólamenntun. En fólk getur hins vegar valið sér ákveð- ið námskeið hjá okkur eins og t. d. ætt- fræði eða stjómun og rekstur fyrir- tækja og aukið þar verulega við þekk- ingu sína. Fóik vilí bæfa við sig þekkingu — Hvaða ástæður ráða því að fólk leit- ar inn í frístundanámskeið Tómstunda- skólans? — Ástæðurnar em vitanlega marg- vtslegar. En meginástæðan er oftast sú að fólk hefur áhuga á tilteknu efni og vill bæta við sig þekkingu, ná sambandi við aðra með svipuð áhugamál og þroska sig. Við lítum ekki á þetta sem beina starfsmenntun, þótt sum nám- skeiðin nálgist að vera það. Ég nefni námskeiðið um fjölmiðlun í því sam- bandi. Við útskrifum ekki blaðamenn. En sá sem hefur áhuga á því sviði og Mér dettur líka í hug að nefna, að fólk situr á sumum námskeiðum okkar í allt að þrjá klukkutima án þess svo mikið að taka sér kaffihlé. Það er til marks um mikinn áhuga og rækt við námið. — Hafa allir efni á að stunda nám í Tómstundaskólanum? — Við reynum að stilla námskeiðs- gjöldum eins mikið í hóf og kostur er. 20 stunda námskeið kostar að jafnaði 2.600 krónur. Vitanlega verð ég vör við að fólk hættir við þátttöku vegna fjár- hagsástæðna, en við bindum t. d. vonir við að félagasamtök, fyrirtæki og ekki síst verkalýðsfélög komi inn í þetta og létti undir með félagsmönnum sínum, greiði t. d. hluta þátttökugjalds eða styðji þessa starfsemi á annan hátt. — Hvernig list þér á samstarfið við MFA? — Ágætlega. MFA hefur haft áhuga á að sinna meira frístundanámi, en ekki VINNAN 21

x

Vinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.