Vinnan - 01.11.1985, Blaðsíða 22
Svipmynd frá félagsmálanámskeiðinu. (Ljósm. Þjóðv.).
Kraftur í námskeiöa-
haldi hjá Iðjufólki
Tímaiaun fyrir
friði og frelsi
Á 32. þingi Sænska máliðnaðar-
sambandsins var ákveðið að efna til
þjóðarátaks undir kjörorðinu: Ein
tímalaun fyrir frið og frelsi.
Hugmyndin er sú að allir gefi ein
tímalaun í sjóð, sem síðan mun
styrkja ýmis félög og samtök sem
berjast gegn hungri, frelsissvipting-
um og fyrir friðarmálefnum. Aðal-
átakið verður á degi Sameinuðu
þjóðanna, 24. október nk., en söfn-
unin varir frá 5. september til 31.
desember.
Nokkrir málsmetandi menn í Sví-
þjóð munu sitja í sjóðsstjórninni.
haft tök á því að gera það á svo víðtæk-
an hátt sem Tómstundaskólinn hefur
gert. MFA getur stutt Tómstundaskól-
ann með aðstöðu og þjónustu og þann-
ig þjónað markmiðum, sem í rauninni
eru okkur sameiginleg.
Áhugamál tengd
listsköpun
— Á hverju hefur fólk mestan áhuga?
— Það má eiginlega skipta þessu í
tvennt. Annars vegar eru handverks-
námskeið og virkileg tómstundaáhuga-
mál oftast tengd einhvers konar list-
sköpun, ég nefni hér t. d. ljósmynda-
töku, myndlist og skrautritun. Hins
vegar eru svo námskeið, sem styrkja
þátttakendur í því sem þeir eru að gera
í starfi; í þessu sambandi vil ég nefna
námskeið eins og bókhald smærri fyrir-
tækja og rekstur og stofnun smærri fyr-
irtækja. Þetta eru mjög hagnýt nám-
skeið þó að þau séu ekki eiginleg starfs-
þjálfun.
Ég má líka til að koma þvi að hér, að
við höfum í bígerð tvö námskeið um
starfsráðgjöf fyrir fólk, sem vill breyta
til í starfi eða fara út á vinnumarkaðinn.
Hér erum við fyrst og fremst að hugsa
um tvo hópa; ungt fólk, sem er að leita
fyrir sér um heppilegan starfsvettvang
og hins vegar fólk, sem hefur verið lengi
í sama starfi og vill skipta, eða hefur
verið heimavinnandi.
— Að lokum, Ingibjörg. Ert þú á
námskeiði?
— Já, vitanlega er ég á námskeiði.
Hvað annað? Þh
Þann 24. september sl. hófst á vegum
Iðju sex kvölda félagsmálanámskeið og
sækir námskeiðið 21 félagsmaður.
Námskeiðið, sem stóð til 10. október, er
í samstarfi við MFA.
Halldór Grönvold sagði að nám-
skeiðsfólkið væri mjög áhugasamt og
hefði því komið til tals að lengja nám-
skeiðið. Hann sagði að búið væri að
ákveða nokkur námskeið til viðbótar,
þar á meðal eitt trúnaðarmannanám-
skeið nú í lok mánaðarins, annað í
febrúar og hið þriðja í apríl. Þessi nám-
skeið eru í samvinnu við MFA.
Þá verður efnt til fræðslufundar í
Við slógum á þráðinn til Halldórs
Grönvold, starfsmanns Iðju, og sagði
hann að um 25% félagsmanna væru í
bónusvinnu og væri langstærsti hlutinn
fólk sem starfaði í fata- og vefjariðnaði.
Búið er að ganga frá samningum við
saumastofu Hagkaupa, saumastofu
Álafoss og verið að ganga frá samning-
um við Sjóklæðagerðina. Þó að sami
heildarrammi liggi til grundvallar þess-
um samningum þá þarf að gera sérstaka
vinnustaðasamninga vegna mismun-
andi efna er fólk vinnur með og mis-
nóvember um réttindi verkafólks í slysa-
og veikindaforföllum og í mars verður
þriggja kvölda námskeið um launa-
samninga og launakerfi.
í undirbúningi er tölvunámskeið í
samráði við MFA, sérstaklega ætlað
fólki sem starfar í fata- og vefjariðnaði.
Tölvunni er beitt í öllum bónusútreikn-
ingum og því nauðsynlegt fyrir marga
að vita hvernig tölvan er mötuð af upp-
lýsingum.
Það er félagssjóður Iðju sem stendur
straum af kostnaðinum við fræðslu-
starfið, sem aldrei hefur verið líflegra en
nú.
munandi tækjakosts. Dæmi um þetta er
að bónusgreiðsla er hærri þegar saum-
að er úr ull en venjulegum gerviefnum.
Bónusfyrirkomulag hefur verið reynt
í plastiðnaðinum og sælgætisiðnaðin-
um en þótti ekki gefa nógu góða raun
hvað sem síðar kann að verða.
— Eru margir á atvinnuleysisskrá
núna?
— Nei, þeir eru aðeins þrír og tveir
þeirra eiga stutt í að komast á eftirlaun.
í dag er feikileg eftirspurn eftir fólki,
einkum til starfa í fata- og vefjaiðnaði.
Bónussamningar Iðju
— mikil eftirspurn eftir fólki
Iðja, félag verksmiðjufólks í Reykjavík, hefur samið um sömu við-
miðunartölu fyrir bónusfólk innan sinna vébanda og fékkst í samn-
ingum milli VMSÍ og VSÍ, þ.e. kr. 94.38.
22 VINNAN