Vinnan - 01.11.1985, Side 23
Hin mikla og glæsilega bygging Al-
þýðuhúsið á Akureyri var formlega
vígt 26. júlí sl. Margt manna var
samankomið við vígsluna, sem fór
hið besta fram. Jón Helgason, for-
maður Einingar, hélt aðalræðuna
og lýsti tildrögum að byggingu húss-
ins og framkvæmdum öllum. Fer
ræðan hér á eftir, en millifyrirsagnir
eru blaðsins.
Alþýöuhúsiö á Akureyri:
Sameign
Ágætu gestir og félagar.
í nafni Framkvæmdanefndar
verkalýðsfélaganna býð ég ykk-
ur öll hjartanlega velkomin til
þessarar opnunarhátíðar í húsi
verkalýðsfélaganna og Alþýðu-
bankans að Skipagötu 14.
Húsinu hefur þegar verið
gefið nafnið Alþýðuhúsið, og í
dag er það formlega tekið í
notkun. Ýmsu er þó enn ólokið
til þess að þaö geti talist fuíl-
frágengið. Við vonum, að það
taki þó ekki langan tíma að
ljúka því, sem enn er eftir, og
verður húsið þá haft til sýnis
fyrir félagsfólk í verkalýðsfélög-
unum og aðra þá, sem áhuga
hafa á að skoða það. Verður
það sérstaklega auglýst síðar.
Sumum kann að finnast það sé eng-
inn stórviðburður, þó að verkalýðsfé-
lögin á Akureyri hafi byggt sameigin-
lega yfir starfsemi sina og séu öll saman
komin undir einu þaki, sem óneitanlega
hlýtur að hafa marga góða og hagnýta
kosti.
Alþýðubankinn og
Samvinnuferðir— Landsýn
á 1. hæð
í mínum augum er þetta stórviðburður
í sögu verkalýðsfélaganna á Eyjafjarð-
arsvæðinu, ef ekki í sögu allrar verka-
lýðshreyfingarinnar á íslandi, ekki síst
vegna þess, að hér höfum við einnig í
húsinu okkar eigin bankastofnun, sem
við væntum að verði í framtíðinni einn
af hornsteinum undir starfsemi félag-
anna og baktrygging launafólksins á
viðkomandi svæði, því að peningar eru
jú afl þeirra hluta, er gera skal á hverj-
um tíma.
Jón Helgason flytur rœðu sína.
Einnig verður hér til húsa ferðaskrif-
stofan Samvinnuferðir—Landsýn, sem
er sameign samvinnufélaganna og laun-
þegasamtakanna. í dag flutti bankinn
starfsemi sína í húsnæði sitt á neðstu
hæð hússins, og ferðaskrifstofan flytur
inn á sama stað nú um helgina. Á þess-
■ ari stundu flyt ég sérstakar árnaðarósk-
ir til stjórnenda þessara stofnana og
vona, að það eigi eftir að skapast traust
sambönd milli þessara stofnana og
verkalýðsfélaganna í húsinu, svo og við
allt Iaunafólk og aðra viðskiptavini, og
að bankinn verði sá aflgjafi, sem við
höfum lengi beðið eftir.
Saga verkalýðsfélaga á Akureyri er
orðin jafngömul öldinni, og þó ríflega
það. Snemma komst það á dagskrá hjá
fyrstu félögunum, að þau þyrftu að
eignast eigið húsnæði.
Fyrsta húseignin 1930
Það varð þó fyrst 1930, sem sá draumur
rættist, en þá keypti Fulltrúaráð verka-
lýðsfélaganna á Akureyri efri hæðina í
Strandgötu 7 (Gamla verkalýðshúsið)
og þar var aðalstarfsemi félaganna í
aðila
bænum um langt árabil. Þegar kom
fram yfir lok síðari heimsstyrjaldar var
þó farið að hugsa til nýrra framkvæmda
á þessu sviði, enda var þá skrifstofu-
rekstur að hefjast í þeirri mynd, sem við
þekkjum nú, enda þótt smátt væri farið
af stað. Þörf var fyrir meira húsnæði
fyrir skrifstofur og stærri sali til funda-
halda og samkomuhalds í ört vaxandi
kaupstað.
Tvívegis oerðar teikningar
Nefndir voru nokkrum sinnum settar á
laggirnar til að vinna að undirbúningi
félagsheimilisbyggingar verkalýðsfé-
laganna. 1951 gerði Halldór Halldórs-
son arkitekt frumteikningar að félags-
heimili, og áratug síðar gerði Sigvaldi
Thordarson arkitekt hið sama. í hvor-
ugt skiptið varð þó af framkvæmdum.
En teikningarnar eru til og segja merka
sögu um það, hverjar hugmyndir
manna voru á hverjum tíma.
Alþýðuhúsið keypt 1952 —
síðar gefið Félagi aldraðra
Rétt er að taka fram, að 1952 keyptu fé-
lögin hús á Oddeyrinni, Alþýðuhúsið
við Lundargötu. Það hús hentaði þó að-
eins til stærri fundahalda og skemmt-
anahalds, og var notað til slíks þar til
það var gefið Félagi aldraðra eftir að
framkvæmdir við Skipagötu 14 hófust.
En 1979 var enn farið af stað. Þann
23. apríl það ár var fundur haldinn með
stjórnarmönnum og fulltrúum 12 stétt-
arfélaga á Akureyri. Á fundi þessum
voru tvö mál á dagskrá og tengdust þó
nokkuð, annarsvegar stofnun útibús
Alþýðubankans hf. á Akureyri, og svo
bygging félagsheimilis verkalýðsfélag-
anna.
Um þetta leyti var verið að ljúka gerð
deiliskipulags af miðbæ Akureyrar, og
VINNAN 23