Vinnan


Vinnan - 01.11.1986, Qupperneq 2

Vinnan - 01.11.1986, Qupperneq 2
Konur I verksmiðjum: Heildarlaun: 28.000 á mánuði KARLAR sem starfa aö fiskvinnu hafa að meöaltali um 10.000 kr. hærri heildartekjur en konur í fisk- vinnu. Konur í verksmiöjuvinnu hafa um 20.000 kr. lægri heildartekjur en karlar í verksmiðjuvinnu og konur sem vinna við verkstjórn hafa um 20.000 kr. lægri heildarlaun en karlar sem vinna viö verk- stjórn. Þetta má m.a. lesa úr þeim niðurstöðum launakönnunar Kjararannsóknarnefndar sem verið er að kynna þessa dag- ana. Miðstjórn Alþýðusam- bandsins hefur fjallað um þær niðurstöður sem þegar liggja fyrir m.a. ályktað að jafna verði þessum launamun kynjanna í næstu kjarasamningum — og jafnframt hafa forystumenn Alþýðusambandsins lýst því yfir að í næstu kjarasamning- um verði stefnt að því að færa kauptaxta nær raunverulegu kaupi — og það var aðallega þess vegna sem þessi launa- könnun var framkvæmá. Við gerð síðustu kjarasamn- inga í febrúar sl. tókst sam- komulag milli aðila um að stefna að því að jafna launa- mun í landinu og færa kaup- taxta að greiddum launum og að Kjararannsóknarnefnd framkvæmdi ofangreinda könnun til að fá nákvæmar upplýsingar um hvaða kaup væri greitt í hinum ýmsu starfsgreinum. Enn hefur ekki verið unnið endanlega úr þeim gögnum sem bárust en upplýsingar liggja fyrir um fjöldamargar starfsstéttir samt. Eins og áður segir staðfestir könnunin grun um talsvert launamisrétti kynjanna og ennfremur kemur fram mikill launamunur milli landshluta og starfsgreina. En þar sem úrtak könnunar- innar var alls ekki nógu gott vantar upplýsingar bæði um heila landshluta og heilar starfsgreinar. Pannig eru upp- lýsingar um bæði Vestfirði og Austfirði mjög gloppóttar. í stuttu máli má segja að marktækar upplýsingar hafi borist frá félögum 21 verka- lýðsfélags af 54 félögum sem eiga aðild að Alþýðusamband- inu. Frá 6 verslunarmannafé- lögum af 21 sem skráð er í Al- þýðusambandinu, frá 12 iðn- aðarmannafélögum af 48 sem aðild eiga að Alþýðusamband- inu og 2 félögum iðnverkafólks af 2 sem tilheyra Alþýðusam- bandinu. Loks bárust svör frá 4 sérfélögum en af 32 félögum vörubílstjóra sem tilheyra ASI kom ekkert svar. Hins vegar er ljóst af þeim nið- urstöðum sem þegar liggja fyr- ir að hlutfall almennra dag- vinnulauna af heildarlaunum er lágt. Sem dæmi má nefna að dagvinnulaun kvenna í fisk- vinnu eru aðeins um 50% heildarlauna, og sömu sögu má segja af fleiri stéttum. Það hlýtur að verða stefna verkalýðsfélaganna í komandi kjarasamningum að færa taxt- ana nær greiddu kaupi og minnka vægi liða á borð við bónus og ógreiddrar yfirvinnu. Pá er mikill launamismunur milli starfsstétta og greinilegt að ekki hafa allir notið launa- skriðs síðustu ára. Til dæmis kemur í ljós að konur í verk- smiðjuvinnu hafa að meðaltali 28.037 kr. i heildarlaun á mán- uði. Ritnefnd: Ásmundur Stefánsson. (ábyrgö- armaður). Helgi Guðmundsson. Kristin Mántylá. Lára V. Júliusdóttir. Práinn Hall- grimsson. — Ritstjórl: Sverrir Albertsson. — Afgreiðsla og auglýsingar: Grensásvegi 16. 108 Reykjavík. Sími 83044. — Setning: Alprent hf. Prentun: Blaðaprent. TIMARIT ALÞÝÐUSAMBANDS ÍSLANDS Starfsfólk stofnana ASÍ: Alþýðusamband islands: Ásmundur Stefánsson forseti ASÍ, Kristin Mántylá skrifstofustjóri. Björn Björnsson hagfræðingur og umsjónarmaður Reiknistofu ASÍ. Bolli B. Thoroddsen hag'ræðingur. Sigurþór Sigurðsson hagræðing- ur, Lára V. Júlíusdóttir lögfræðingur ASÍ. Ingibjörg Haraldsdóttir gjaldkeri. Baldur Magnússon umsjónarmaður Reiknistofu, Guð- laug Halldórsdóttir fulltrúi. Ragnhildur Ingólfsdóttir fulltrúi, Áslaug Ásmundsdóttir ræstir. — FóIJc i hlutastörfum, eða ráðið til skemmri tíma: Helgi Guðmundsson MFA. Kristjana Kristinsdóttir Sögusafn. — MFA: TVyggvi Þór Aðalsteinsson framkvæmdastjóri. Snorri S. Konráðsson fræðslufulltrúí. Práinn Hallgrimsson fræðslufulltrúi. — Listasafn alþýðu: t^orsteinh Jónsson forstöðumaður. Guðmundur Konráðsson starfsmaður. — Þessar stofnanir eru til húsa að Grensásvegi 19. 108 Reykjavík. Simi ASÍ: 83044. pósthólf 8720. Sími MFA: 84233, pósthólf 8476. Sími Listasafns alþýðu: 81770. þósthólf 8720. Ágirndinni engin takmörk sett A næstu tveimur mánuðum munu þúsundir launþegatapaþúsundum krónaí botnlausahít milliliða og okurvaxta. Ein mesta kauphátíð ársins er að hefjast með gegndarlausum aug- lýsingum og sibylju fjölda fjölmiðla, nýrra út- varpsstöðva og sjónvarpsstöðva og einn meg- intilgangur allra þessara auglýsinga er að fá fólk til að kaupa — kaupa strax borga seinna, bara að það kaupi. Og megininntak auglýsinganna er hversu mikil vildarkjör þessarverslanir bjóða upp á —- svo mikil vildarkjör að manni dettur helst í hug að verslunin tapi á viðskiptunum og geri það með glöðu geði því verslunareigandinn stundi sín viðskipti af hreinni hugsjón. En það er eitthvað bogið við þetta allt saman. Eins og ónefnd söguhetja ónefndrar bókar sagði eitt sinn: Gefi kaupsýslumaður þér vind- il, þá ætlar hann að græða heilan kassa á þér. Nú liggja fyrstu niðurstöður launakönnunar- innar fyrir eins og greint er frá hér ofar á síð- unni. Niðurstöður þessarar könnunar eru um margt athyglisverðar. Til dæmis kemur í Ijós að kona sem vinnur verksmiðjustörf hefur 28.000 krónur í heildarlaun að yfirvinnu meðtalinni á mánuði. Laun sem þessi eru skammarbletturá þjóðfélaginu. Þá liggur fyrir að konur eru almennt mun lægra launaðar en karlar — einnig fyrir sam- bærileg störf. Þetta þarf að lagfæra. Þá kemur í Ijós að kauptaxtareiga í mörgum störfum lítið skylt við þau laun sem borguð eru fyrir þessi störf. Samningasveit Alþýðusambandsins og fé- laga þess munu hafa niðurstöður launakönn- unarinnar meðferðis til næstu kjarasamninga nú um áramótin. Kröfugerðin hefurekki endan- lega verið mótuð en það er Ijóst að jöfnun launamunar verður ofarlega á blaði. Konur sætta sig ekki við að störf þeirra séu metin minnaen karlasem vinnasömu störf. Einstaka stéttir, sem hafa einskis notið af því launa- skriði sem verið hefur undanfarin ár, sætta sig ekki við að sitja eftir. En við hverja á að semja. Kosningaskjálfti virðist hafa heltekið Alþingi og hefur suma daga þingsins vart verið fundafært vegna þátt- töku þingmanna í prófkjörum. Þröstur Ólafs- son, framkvæmdastjóri Dagsbrúnar hefur lýst yfir að rétt sé að semja aðeins til stutts tima nú, og þá aðallega um nýtt launaflokkakerfi, en bíðameðmeginatriði þartil ný stjórn hefurtek- iðvið. Þessum hugmyndum Þrastarhefurverið fálega tekið af Vinnuveitendasambandinu. Hvernig sem þessi mál þróast þá hlýtur það að vera skýlaus krafa Alþýðusambandsins að við gerð næstu kjarasamninga þá komi fulltrú- ar ríkisvaldsins fram af fullri ábyrgð. Það er mikið í húfi. M eð gerð síðustu kjarasamninga tók Alþýðu- sambandið forystu í baráttu við verðbólgu og náði árangri sem stjórnmálamennirnir höfðu lengi reynt að ná — en ekki tekist. Þá sagði Ás- mundurStefánsson, forseti ASÍ, í leiðara Vinn- unnar: „Það hefurverið brotið biað I samninga- gerð með þeim kjarasamningum sem nú liggja fyrir. Megináherslan er lögð á aðhald í verð- lagsmálum og beinarverðlækkanirog stefnt er að því að ná stighækkandi kaupmætti með kauphækkunum sem hvorki eru stórar í prósentum eða krónum.“ Leiðara sinn nefndi Ásmundur: „Tilraun sem verður að takast". Og nú geta lesendur Vinn- unnar flett upp á baksíðu blaðsins og séð þar hvernig kaupmáttur hefur þróast á þessu ári. Verðbólga hefur snarminnkað á þessu ári og verðlag á afurðum okkar hækkað og olíukostn- aður minnkað. Það er því hægt að segja að hér ríki nokkuð góðæri. Launafólk þessa lands vill og áfullan rétt áað njóta þessa góðæris. Engir á landinu hafa borið jafn stóran hluta byrða mögru áranna undanliðinna en launþegar og nú verður það skýlaus krafa fólksins að það fái einhvers að njóta. Það er því nauðsynlegt að fulltrúar ríkisins og atvinnurekenda komi fram af fullum heilindum við gerð næstu kjarasamninga þannig að unnt Sverrir Albertsson skrifar leiðarð verði að halda áfram því endurreisnarstarfi sem Alþýðusambandið hafði forgöngu um [ síðustu samningum. Það verður að tryggja launþegum verulega kaupmáttaraukningu á næsta ári og jafnframt að tryggja það að stjórn efnahagsmála fari ekki úr böndunum. w I þessu biaði Vinnunnar hefst flokkur greina sem fjalla um fjármál einstaklingsins og heim- ilisins. í þessum greinaflokk mun Vinnan fá sérfræðinga á þeim sviðum sem fjallað verður um, til að skýra fyrir launafólki það frumskóg- armyrkviði sem verslun og viðskipti er hér á landi. Og við afhjúpum ömurlegt vaxtaokur sem við- gengst í afborgunarviðskiptum, þar sem versl- un og banki skipta með sér vaxtagróða upp á 118% á ári. Launamaðurinn borgar brúsann. Það er kominn tími til að almenningur segi STOPP — hingað og ekki lengra. Við höfum lif- að óðaverðbólgutíma þar sem allir misstu verð- skyn og grædd var skulduð milljón. Við*sáum hvernig ýmsir gæðingar höfðu næsta ótak- markaðan aðgang að lánsfjármagni sem þeir nýttu til brasks og mynda nú stóra stétt stór- eignamanna. Sparifjáreigendur og launafólk borgaði. Við höfum lifað tíma þar sem efnahagsvanda þjóðarinnar var velt beint yfir á launafólkið og umsamdar kjarabætur jafnvei afnumdar með lagasetningu. Á þessum sama tíma hefur stétt braskara og gróðamanna snarvaxið og ágirnd þessara hópa virðist ekki kunna nein takmörk. Þar sem lög og reglur virðast ekki ná yfir braskið og okrið mun Vinnan reyna að leggja sitt af mörkum. Hjá versluninni liggur þekking og reynsla og fjármagn. Tækni til að freista launamannsins með lævísum auglýsingum og fölskum tilboðum. Vinnan ætlar að fá menn sem einnig búayfirkunnáttu og notaþekkingu þeirratil að kynnahvernig launafólk geti varast óprúttnabraskaraog hvernig það geti metið til- boðin og auglýsingarnar. Frásögnin hér að aftan af okri sjónvarpsbúð- annaog sú staðreynd að fjöldi fólks á viðskipti við þessa okrara sýnir að ekki er vanþörf á um- fjöllunum af þessu tagi. Það ertil lítils að berj- ast fyrir launahækkunum ef þærtapast svo all- ar aftur beint í hít milliliðanna. 2°Utnnfin

x

Vinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.