Vinnan


Vinnan - 01.11.1986, Síða 8

Vinnan - 01.11.1986, Síða 8
Hugsunarleysi kostar tugþúsundir — bara það hvernig þú kaupir hlutinn getur kostað þig verulega PAÐ ER dýrt að vera fátækur — það er margsann- að en að það sé dýrt að nýta sér nútíma verslunar- hætti — það kemur sennilega mörgum spánskt fyrir sjónir. En svona er þetta nú. — Verslanir virðast nýta sér ókunnugleika neytenda og athug- unarleysi og hafa af þeim okurvexti þegar verslað er með afborgunum. Málið snýst um hvert sé hið rétta verð hlutarins sem versla á, í þeim tilfellum sem boðið er upp á mörg mismunandi verð eftir þvi hvernig hluturinn er greiddur — ellegar þá þegar boðið er upp á staðgreiðsluaf- slátt. Vinnan gengur út frá því að hið rétta verð hlutarins sé stað- greiðsluverðið. Pað sé raun- verulegt verð hlutarins með öll- um tollum, aðflutningsgjöldum og eðlilegri álagningu verslun- arinnar. Og geri verslunin at- hugasemd við þetta og rök- styðji á einhvem máta að í stað- greiðsluverði felist einhver af- sláttur á eðlilegri álagningu verslunarinnar, þá breytir það í raun engu frá sjónarhorni neytandans því fyrir hann er staðgreiðsluverðið hið raun- verulega verð — allt yfir því em aukaálögur sem hann greiðir. En er munurinn mikill? Gerð tækis og verslun Xenon 22" sjónvarp (Nesco) Orion myndband (Nesco) Finlux (Sjónvarpsbúðin) Fisher myndband (Sjónvarpsb.) Finlux 22" stereo (Sjónvarpsb.) Luxor (Hljómbær) Það er rétt að taka fram að þessar verslanir vom ekki vald- ar af því að þær skæm sig á nokkurn hátt úr að þessu leyti heldur réð hrein tilviljun við hvaða verslanir var talað. Þá er rétt að taka fram að í Hljómbæ er ekki talað um sér- stakt afborganaverð heldur boðið upp á 5% staðgreiðsluaf- slátt og þannig reiknaði Vinnan út staðgreiðsluverð tækja frá þeim. Vinnan telur hins vegar að enginn munur sé i raun á því hvort auglýst eru sérstök stað- greiðsluverð eða staðgreiðsluaf- sláttur. En er ekki eðlilegt að þeir sem greiða versluninni allt verð fyrirtækisins njóti þess í ein- hverju? Er ekki hagkvæmara fyrir verslunina að fá allt and- virðið scimstundis í stað þess að lána það í fleiri mánuði? Sjálfsagt svara margir þess- ari spurningu játandi og verður afborg- staðgr. mism. unarverð verð 52.900 kr. 46.900 kr. 6.000 kr. 41.900 kr. 36.900 kr. 5.000 kr. 55.535 kr. 52.755 kr. 2.780 kr. 44.950 kr. 39.950 kr. 5.000 kr. 60.535 kr. 57.555 kr. 2.980 kr. 63.000 kr. 59.850 kr. 3.150 kr. Þessi sjónvörp eru til sölu — en verðið fer eftir ýmsu; með lagni geturðu fengið að borga 85% vexti af því sem versl- unin lánar þér. ekki deilt um það, en litum á hver verðmunurinn verður þegar upp er staðið. Tökum sem dæmi kaup á tækinu efst á listanum — 22" sjónvarps- tæki frá Nesco. Við kaupum með afborgunum — 10.000 kr. út og rest á 6 mánuðum. Og ítrekum að Vinnan telur hið rétta verð vera 46.900 kr. þann- ig að í raun sé aðeins verið að lána okkur 36.900 kr. með jöfn- um greiðslum í sex mánuði eða alla upphæðina að meðaltali í 3 mánuði. (tafla) Verslunin lánar ekkert Ef svarið við spurningunni hér að ofan er já — að sá sem stað- greiðir eigi að njóta þess og að hagkvæmara sé fyrir verslun- ina að fá upphæðina stað- greidda en að lána hana í allt að 6 mánuði, þá er rétt að upplýsa að það er alls ekki verslunin sem lánar kaupandanum eftir- stöðvarnar heldur viðskipta- banki viðkomandi verslunar. Vinnan kannaði verð sex sjónvarps- og myndbandstækja og er verðlag þeirra sem hér segir: Islenskir SOKKAR í vetrarkuldanum framleiðum fjölbreytt úrval sokka - allar stærðir og gerðir. Landsþekkt gæðavara. VÍKUR PRJÓN Sími 99-7250 Smiðjuvegi 15, Vík Að öllum líkindum er skulda- bréfið sem kaupandinn skrifar undir við kaupin ekki í eigu verslunarinnar nema þann daginn. En hver hirðir mismuninn. Sölumaður Nesco upplýsti í samtali við Vinnuna að við- skiptabanki verslunarinnar keypti skuldabréf sem gefin væru út við afborgunarvið- skipti en neitaði hins vegar að gefa upp hversu há afföll væru í þeim viðskiptum — þ.e. bank- inn kaupir þessi skuldabréf með afföllum þannig að versl- unin fær ekki fullt andvirði þeirra í sinn hlut. Sölumaður- inn sagði að upplýsingar um þessi afföll væru ekki gefnar en viðurkenndi að mun hagstæð- ara væri fyrir blaðamann Vinn- unnar (sem ekki kynnti sig sem slíkan heldur sem væntanlegan viðskiptavin) að taka lán í eigin banka og staðgreiða tækið. Þó upplýsingar um kaup- gengi viðskiptaskuldabréfa liggi ekki á lausu í Nesco reynd- ist auðvelt að fá þær í banka- kerfinu. Við birtum hér kaup- gengi, eins og það var skráð í Alþýðubankanum fyrir röskri viku og má reikna með að sama gengið sé notað í flestum bönk- um og munur, ef einhver er, sé hverfandi. Óverðtryggð skuldabréf Mán. Nafn- vextir Kaupgengi 1 15.022% 0.98830 2 15.022% 0.98259 3 15.022% 0.97697 4 15.022% 0.97144 5 15.022% 0.96600 6 15.022% 0.96065 7 15.022% 0.95538 8 15.022% 0.95019 Hver fær hvað? Neytandinn fær sjónvarpstæki — tæki sem verslunin metur að sé 46.900 kr. virði við stað- greiðslu — en í stað þess að greiða 46.900 kr. að viðbættum vöxtum af því sem fengið er að láni, greiðir kaupandinn alls 56.050 kr. eða 9.150 kr. um- fram raunvirði tækisins. Þetta jafngildir, miðað við að það sem fengið er að láni sé 36.900 kr. 85.02% ársvöxtum og fyrir þá sem lána, þar sem þeir geta ávaxtað ágóða sinn 3 sinnum yfir árið (hvert lán er að meðal- tali aðeins til 3 mánaða) jafn- gildir ávöxtunin 118.3% vöxt- um. Útibú í kringum landið REYKJAVÍK:....91-31815/686915 AKUREYRI:......96-21715/23515 BORGARNES:........... 93-7618 BLÖNDUÓS:........95-4350/4568 SAUÐÁRKRÓKUR:......95-5913/5969 SIGLUFJÓRÐUR:........96-71489 HÚSAVÍK:.......96-41940/41594 EGILSSTAÐIR:..........97-1550 VOPNAFJÖRÐUR: ...97-3145/3121 FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: .97-5366/5166 HÖFN HORNAFIRÐI: .....97-8303 interRent 8oUtnnciii NÓVEMBER 1986

x

Vinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.