Stefnir - 01.07.1984, Blaðsíða 5

Stefnir - 01.07.1984, Blaðsíða 5
AÐ ÞESSU SINNI JÚLÍ1984 ATLANTSHAFSBANDALAGID: FRIÐUR OG FRELSI9 35 ÁR. Meginefni Stefnis er að þessu sinni helgað utanríkis-, öryggis- og varnar- málum í tilefni af 35 ára afmæli Atlants- hafsbandalagsins - öflugustu friðar- hreyfingar samtímans. Það efni sem hér um ræðir er erindi bandaríska öldungar- deildarþingmannsins Charles Mc Mat- hias, sem hann flutti á fundi nreð ungum sjálfstæðismönnum á dögunum um þýð- ingu varnarbandalags Vesturveldanna. Þá eru í ritinu greinar eftir Arnór Sigur- jónsson, Einar K. Guðfinnsson, Guð- mund Heiðar Frímannsson og Sólrúnu B. Jensdóttur. Greinar þessar eru að uppistöðu til erindi sem flutt voru á ráð- stefnu Sambands ungra sjálfstæðis- manna um öryggis- og varnarmál á síð- astliðnu hausti. Einnig er í ritinu saman- burður á styrk Atlantshafs- og Varsjár- bandalagsins á sviði Evrópukjarna- vopna, sem tekin var saman af Gunnari Gunnarssyni starfsmanni Öryggismála- nefndar fyrir framangreinda ráðstefnu SUS. ÍSLAND í NORRÆNU SAMSTARFI Einn af hornsteinum utanríkisstefnu íslendinga er þátttaka í norrænu sam- starfi. í þessu hefti Stefnis eru greinar eftir þau fndriða G. Þorsteinsson, Snjó- laugu Ólafsdóttur og Ólaf ísleifsson um gildi þessa samstarfs. ÞINGFRÉTTIR STEFNIS Með þessu hefti hefst reglulegur fréttaflutningur Stefnis af Alþingi, í beinunr tengslum við þingflokk Sjálf- stæðismanna. Markmiðið er einkum það að auka þjónustuna við lesendur ritsins og veita Sjálfstæðisfólki um land allt betri innsýn í hvað ber hæst á Alþingi og í okkar þingflokki á hverjum tíma. í þingmálum er ætlunin að veita reglulegar upplýsingar um hvaða lög og þingsályktanir eru afgreidd, en að auki verður fjallað ítarlegar um tiltekin mál, sem annað hvort hafa verið afgreidd eða eru í deiglunni. Þá mun sitt hvað annað verða tínt til. Umsjónarmaðurþingmála er Friðrik Friðriksson framkvæmda- stjóri þingflokksins og f. varaformaður SUS. EFNISYFIRLIT Ritst jórnargrein Geir H. Haarde: Það skiptir máli....... 7 Friður og frelsi í 35 ár Charles Mc. Mathias: Ávarp til ungra sjálfstæðismanna .......................... 9 Arnór Sigurjónsson: Valdajafnvægið á Norður-Atlantshafi ....................... 11 Einar K. Guðfinnsson: Um hvað snúast átökin í alþjóðamálum .................... 16 Guðmundur H. Frímannsson: Friðar- hreyfing eða feigðarboði? ................ 20 Sólrún B. Jensdóttir: Orsakir ófriðar .. 22 Samanburður á styrk Atlantshafsbanda- lagsins og Varsjárbandalagsins ......... ísland í norrænu samstarfi Indriði G. Þorsteinsson: Erlend áhrif á íslandi ................................ Snjólaug Ólafsdóttir: Stefna íslendinga í norrænu samstarfi ...................... Ólafur ísleifsson: ísland og norrænt samstarf.......... Þingmál fí-'SBíM!)7d 'I 3 8 7 0 2 2 24 27 30 32 ■•kí '' Stefnir er stærsta tímarit sinnar tegundar sem gefið er út á (slandi. Útgefandi er Samband ungra sjálfstæðismanna og það kemur út fjórum sinnum á ári. Markmið þess er að breiða út hugsjónir sjálfstæðisstefnunnar og kynna starfsemi ungra Sjálfstæðismanna. Tímaritið var stofnað 1950 og hefur því samfellt komið út í rúma þrjá áratugi. Tímaritið er gefið út í 2500 eintökum hverju sinni. Áskriftarverð Stefnis er kr. 4(K) á ári en verð í lausasölu er kr. 120. Áskrift- arsími (91) 82900 og heimilisfangið: Stefnir, Sjálfstæðishúsinu Valhöll, Háaleitisbraut 1, 105. Reykjavík. STEFNIR 5

x

Stefnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.