Blik - 01.03.1936, Blaðsíða 4

Blik - 01.03.1936, Blaðsíða 4
2 B L I K hinar háu, verið ykkur hvatning, ef rótt er á litið. Til ykkar, sem hlotið haflð háu einkunnirnar, vildi ég segja þetta: Kappkostið að haida þeim í skóla lífsins, ekki fremur en verða vil} fyrir dómi mannanna, heldur um- fram allt fyrir dómi ykkar eigin samvizku. Leggið alúð við hana, en daufheyrizt ekki við rðddu hennar, þá mun ykkur ávalt takast að gera mun á réttu og röngu. Og í ljósi trúarinnar munu þið þá flnna til híns guðdómlega samhengis i líflnu. Alýktanir henn- ar munu leiða til þess sahnleika, sem sigrar að lokum. Þið, sem hlotið haflð lægii eíc- kunnirnar, skoðið þær ekki rétt- an mælikvarðá á manngildi ykkar og manndöm. Látift því ekki hug- fallast. Það sannast mjög oft, að starfshæfni mannsins kemur ekki í Ijós við prófborðið. Margt próf- lágt ungmenni hefir orðið hinn nýtastí maður í þjóðfólaginu. Og það vona ég, að sannist á ykkur_ Sá orðstír er su einkunn, sem mest er um vert. Og verið þá fyist og fremst trú yfir litlu. f>ið hafið langflest, gert, eins og þið haflð getað, og reynzt okkur piýðilegir unglingai, siðprúðir, duglegir og ástundunarsamir. Við kennararnir megum því gleðjast og þakka ykkur. Slíkir ágætir eiginleikar nemenda gera kennslustarfið auðveldara og skemmtilegra, og það er aðdáan- legt, hvað sum ykkar hafa lag* mikið á sig og afkastað miklu Börnin og unglingarnirberaheim- ilum sínum, foreldrum og skólum vitni. Dýrmætasta eign skólanna, eins og foreidranna, eru góð börn, góð, dugleg og siðprúð ungmenni. Við íslendingar metum mjög mikils miklar gáfui. Það er ofur- eðlilegt, svo gáfuð sem þjóðin er. En sá tími mun og koma, að hún lærir að meta sem vert er viljastyrk og siðgæðisfestu-. — Við lifum á ógnaöld. Sterkir straumar aukinnar áfengisnautnár flæða um landið. Við vitum það, að i kjöl- far hennar fer margt annað illt. Hún drepur svo margt nýtilegt og gott, og leiðir fjölda góðra ung- menna á viliigötur, gerir þau að mannleysum og ræflum. Ég minn- ist margra fluggáfaðra æskumanna frá skölaárum mínum. Það hrygg- ir mig að hugsa til þess, að sum- ir þeirra — alltof margir — hafa farið í hundana, sem stundum er kallað, fyrir skort á siðgæðisfestu og orðið áfengisnautninni að bráð. Þegar ég var drengur, var mér sagt, að ég gengi hana móður mína ofan i jörðina, ef ég gengi aftur á bak. Auðvitað finnst ykkur það fjarri öllum sannleik. Ég hefi stundum um þstta hugsað síðan, og ég hefi komizt að þeirri niður- stöðu, að það má færa þetta til

x

Blik

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Blik
https://timarit.is/publication/1522

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.