Blik - 01.03.1936, Blaðsíða 12

Blik - 01.03.1936, Blaðsíða 12
10 BLIK III. flokkur var sendur til móts við Reykvíkinga, og vissulega íyrsta sannefnda frægðarförin, sem K. V. hefir farið til Reykjavíkur. Við forUm héðau með „Primula" 9. 'júli og fengum fremur vont veður. Morguninn 10. júlí fórum við snemma á fætur, því skyggui var gott, og vorum við á þilfari til að litást um, þangað til við komum til Reykjavikur. Af hafn- arbakkanum var okkur boðið til samdrykkju í K.R.-húsinu. Um daginu skoðuðum við Reykjavík og nágrennið. Meðan við dvöldum 1 Reykjavík, át.tum við því láni ■að fagna að sjá hina ágætu þýzku knatlsþyrnumenn leika á móti Reykvíkingum. Kappleikir þessir voru okkur hin mesta skemmtun og læiðum við einnig mikið af þeim. Meðan við dvöldum í Reykja- vík, skoðuðum við söfnin, Lands- bóka , Náttúrugripa- og Forngripa- safnið, og einnig merkustu og stæistu byggingarnar. Á söínun- «m sáum við mikið, svo sem gömul handrit, gamla markverða hluti o. m. fl. Merkasta ritió, sem við sáuin, var Guðbrands- biblia, sem kennd er við Guðbrand biskup forláksson. Okkur furðaði á að sjá allt þtítta og hinar stóru byggingar. Ems og fyrr er getið, fevðuðumst við mikið um nágrenni Reykjavík- U'. Fyrsta skemmtiferðin okkar var farin t.il Þingvalla, hins forna þingstaðar okkar íslenditiga. A leiðinni þangað komum við við á Alafossi, og sáum þar klæða- verksmiðjuua, sundlaugarnar o. fl. Á meðan við dvöldum þar, var okkur boðið t.il kaffidrykkju, og síðan sýndi leikfimiflokkur stúlkna okkur leikfimi, sem íór þeim mjög vel úr hendi. Síðan fórurn við i laugina og höfðum góða- skemmtun af því sem öðru. Eftir að hafa dvalið um stund á Ála- íossí, lögðum við af stað til ífing- valja, og bar okkur þar margt markvert fyrir auga, t. d. Al- mannagjá, Öxará, Peningagjá, og svo hið mikla og stærsta stöðu- vatn íslands, Þingvallavatn. Yfir- Peningagjá liggur smá brú. Þegar við fórum yfir hana, skoðuðum við gjána, og sáum peningana í henni. Það merkilega um gjána er, hvað vatnið í henni er kalt, og dettur engum manni i hug að ná sér þar í peninga, þótt honum bráðliggi á þeim. Á ífingvöllum var margt feiða- fólk um þessar mundir, þvi veði- ið var mjög gott, sólskin og blíða. Þar var okkur boðið til kaffi- drykkju, og síðan lékum við okk- ur að ýmsum leikjum ogskemmt- um okkur vel. Eftir að við höfð- um skoðað okkur um, lögðum við af stað til Reykjavíkur, og komum þangað að klukkutíma liðnum. I Reykjavík vorum við á þönum að skoða bæinn, því tíminn var naumur. Þann 16. júlí lögðum við af

x

Blik

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Blik
https://timarit.is/publication/1522

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.