Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1908, Síða 38
32
XIII. C. Læknisskýrsla
frá holdsveikraspítalanum í Laugarnesi um árið 1907.
(Les lepreux dans 1’ hopital de Laugarnes pendant 1’ année 1907).
Influenza gekk þar seinni part vetrar 1906—’07 og fengu hana fleslir sjúkl-
ingarnir, en eigi dóu neinir úr henni.
Mislingasóttina fengu flestir hinna yngri starfsmanna spítalans, þar á meðal
ein hjúkrunarkonan, en með strangri einangrun tókst að verja þá 5 holdsveiklinga,
sem heíðu getað fengið þessa veiki.
Eins og að undanförnu fengu allmargir sjúklingar heimakomu, en engir dóu
úr henni.
Á þessu ári voru tveir sjúldíngar lálnir fara i burtu úr spítalanum, þar eð
þeim virtist albatnað. Annar þeirra er nú (1910) dáinn, en banameinið mun ekki
liafa verið holdsveiki. Hinn sjúklingurinn hefur eigi lieldur nein áreiðanleg holds-
veikiseinkenni enn þá.
Alls dóu 9 sjúklingar þetta ár.
Varanleiki veikinnar var:
40 ár (1); 14 ár (1); 13 ár (1); 11 ár (1); 10 ár (1); 6 ár (1); 5 ár (1); 4 ár (1)
og 2 ár (1).
Tata hjukrunardaga var 19543. Meðattal sjúldinga daglega 53.5.
Tafla I. Líkþráir Limafallssjúkir Samlals
karlar konur karlar konur
Tala sjúklinganna 1. jan. 1907 25 10 10 12 57
Það ár kom ... ... ... 1 1
Sjúklingafjöldinn 1907, alls 25 10 10 13 58
Heim fóru það ár 1 ... 1 ... 2
Dánir 1907, alls 8 ... ... 1 9
Tala sjúklingannna B1/i2 1907 16 10 9 12 47
Eins og sjá má af þessari töflu fækkaði sjúklingum spítalans þetta ár all-
mikið þar sem 58 voru þar í byrjun ársins, en eigi nema 47 í árslok. Þessi eini
sjúklingur sem kom í spítalann þetta ár var norðan úr Húnavatnssj'siu.