Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1908, Page 40
34
D. Læknisskýrsla
frá holdsveikraspítalanum í Laugarnesi uni árið 1908.
(Les lepreux dans 1' hópital de Laugarnes pendant 1’ année 1908).
Heilbrigðisástandið var heldur gott. Heimakoman var svipuð og vant er, eða
heldur kom hún sjaldnar íyrir. Um aðrar farsóttir var ekki að ræða þetta ár í spí-
talanum.
1908 dóu fimm holdsveiklingar, en sex komu aftur í þeirra slað, Þeir voru
sinn úr hverju af eftirfarandi lögsagnarumdæmum:
Reykjavík
Barðastrandarsýslu
Eyjaíjarðarsýslu
Skaftafellssýslu
Árnessýslu
Gullbringu- og Kjósarsýslu.
Tveir þessara sjúklinga höfðu aldrei verið skrásettir. Einn sjúklingurinn var
látinn fara úr spítalanum 1902 eftir tveggja ára veru þar, af því öll áreiðanleg holds-
veikiseinkenni voru lioríin, en sumarið 1908 kom sjúkdómurinn aftur í Ijós og var
sjúklingurinn því tekinn aptur í spitalann.
Tala hjúkrunardaga var 17264. Meðallal sjúklinga daglega 47.3.
Tafla I. Líkþráir Limafallssjúkir Samtals
karlar konur karlar konur
Tala sjúklinganna 1. janúar 1908 ... 16 10 9 12 47
Það ár komu 3 2 1 ... 6
Tala sjúklinganna 1908, alls 19 12 10 12 53
Dánir 1908 5 ... ... ... 5
Tala sjúklinganna 3l/n 1908 14 12 10 12 48